Morgunblaðið - 09.09.2008, Page 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
HANNES Hlífar Stefánsson
þurfti að hafa heldur minna fyrir
hlutunum á Skákþingi Íslands sem
lauk á laugardaginn en á síðasta
skákþingi þegar hann tapaði fyrir
þeim Stefáni Kristjánssyni og
Snorra G. Bergssyni. Frammistaða
yngri skákmanna, þeirra Stefáns
Kristjánssonar, bræðranna Braga
og Björns og Jón Viktors Gunnars-
sonar, veldur nokkrum vonbrigðum.
Það vantaði alla ákefð í taflmennsku
þeirra og í raun er árangur Magn-
úsar Arnar Úlfarssonar mun betri
þegar horft er til þess að hann hefur
lítið teflt undanfarið og byrjaði auk
þess illa. Sennilega verður að telja
frammistöðu Henriks og Þrastar á
svipuðum nótum og vænta mátti.
Hannes Hlífar varð efstur ásamt
kínverskum stórmeisturum á síðasta
Reykjavíkurmóti og vinnur nú Ís-
landsmótið í tíunda sinn, oftar en
nokkur annar. Eftir þennan sigur
stendur Hannes á ákveðnum kross-
götum, hann hefur alla burði til að ná
mun lengra og getur unnið hvaða
skákmann sem er. Vonandi mun sig-
ur hans nú hressa upp á sjálfstraust-
ið.
Um úrslit mótsins – sjá meðfylgj-
andi töflu.
Topalov leiðir í Bilabo –
Magnús Carlsen efstur
á stigalistanum
Búlgarinn Venselin Topalov er
efstur eftir fyrri umferðina á stór-
mótinu í Bilbao á Spáni. Sex stór-
meistarar tefla tvöfalda umferð eftir
nýju stigafyrirkomulagi sem tekið er
eftir knattspyrnunni, þrjú stig eru
gefin fyrir sigur, eitt fyrir jafntefli.
Það hefði ekki breytt neinu þó gamla
kerfið væri ráðandi, Topalov væri
einnig efstur en staðan á mótinu er
þessi:
1. Venselin Topalov (Búlgaríu) 9 stig –
3 ½ v. (af 5)
2. Magnus Carlsen (Noregi) 8 stig – 3 v.
3. Lev Aronjan (Armeníu) 6 stig – 2 ½ v.
4.–6. Wisvanathan Anand (Indlandi),
Vasilí Ivantsjúk (Úkraínu) og
Teimour Radjabov (Aserbadsjan)
4 stig – 2 v.
Mikill áhugi virðist vera á stiga-
lista FIDE um þessar mundir en þar
hefur heimsmeistarinn Anand setið
sem fastast um nokkurt skeið. En
það er mjótt á munum og eftir hverja
umferð í Bilbao eru menn að reikna
elo-stigin út sem FIDE birtir opin-
berlega ársfjórðungslega. Yfir
helgina hefur norska undrið, Magn-
ús Carlsen notið þess ótvíræða heið-
urs að vera stigahæsti skákmaður
heims samkvæmt nýjustu útreikn-
ingum og er staðan þessi:
1. Magnús Carlsen 2791,3
2. Wisvanathan Anand 2790,9
3. Alexander Morosevits 2787
4. Venselin Topalov 2786,2
5. Vasilí Ivantsjúk 2781,8
En þessi staða getur breyst á
næstu dögum.
MH í 2. sæti á Norðurlandamóti
framhaldsskóla
Skáksveit Menntaskólans við
Hamrahlíð varð í 2.sæti á Norður-
landamóti framhaldsskóla sem fram
fór í húsakynnum Taflfélags Reykja-
víkur um helgina. Fimm sveitir frá
Íslandi, Danmörku, Svíþjóð og Nor-
egi tóku þátt í mótinu en að þessu
sinni vantaði sveit frá Finnlandi.
Auk MH hafði MR einnig þátttöku-
rétt en sveitin var þó að mestu án
Guðmundar Kjartanssonar sem var
að ljúka taflmennsku á Skákþingi Ís-
lands. Norðmenn voru hlutskarpast-
ir að þessu sinni en menntaskólinn
NTG, sem er starfræktur í grennd
við Osló og er fyrir afburða íþrótta-
og keppnismenn í ýmsum greinum,
var öruggur sigurvegari.
Lokaniðurstaðan varð þessi:
1. NTG (Noregur) 12 v. (af 16)
2. MH 10 ½ v.
3. Menntaskólinn Metapontum (Svíþ.) 9 v.
4. MR 7 v.
5. Menntaskólinn Sankt Annæ (Danm.) 1 v.
Í sveit MH voru Atli Freyr Krisj-
ánsson, Daði Ómarsson, Matthías
Pétursson og Tinna Kristín Finn-
bogadóttir.
Í sveit MR voru Guðmundur
Kjartansson sem tefldi eina skák,
Ingvar Ásbjörnsson, Bjarni Jens
Kristinsson, Aron Ingi Óskarsson og
Paul Frigge.
Þeir Atli Freyr Kristjánsson og
Daði Ómarsson stóðu sig báðir vel
fyrir sveit MH og voru með 75%
vinningshlutfall eða meira. Í eftirfar-
andi skák sem tefld var í úrslitavið-
ureign Menntaskólans við Hamra-
hlíð byggir svartur upp ágæta stöðu
og hefði Atli sennilega betur skotið
inn í 17. exf6 í 17. leik. Eftyir 25. ..
Rxd4! Er útlitið ekki gott hjá Atla og
þegar Norðmaðurinn getur tryggt
yfirburði sína með 26. … De4 eða 26.
… Rf5 kemur hann auga á „fléttu“.
Drottning Atla er leppuð en þá kem-
ur riddarinn til skjalanna, 29. …
hxg6 strandar á 30. Hxg6+ Kh7 31.
Hh6+! Kg8 32. Hg1+ og vinnur.
NM framhaldssskóla; 3. umferð:
Atli Freyr Kristjánsson ( MH ) –
Joachim Tomassen (NTG )
Sikileyjarvörn
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. c3 Rf6 4. d3 g6
5. g3 Bg7 6. Bg2 O–O 7. O–O Rc6 8.
De2 Hb8 9. d4 cxd4 10. cxd4 Bg4 11.
Hd1 d5 12. e5 Re4 13. h3 Bf5 14. g4
Be6 15. Rbd2 f6 16. Rxe4 dxe4 17.
Dxe4 f5 18. gxf5 Bd5 19. Dg4 Hxf5
20. Be3 e6 21. Kh2 Dd7 22. Rh4 Hf7
23. Hg1 Hbf8 24. Bxd5 Dxd5 25.
Hg2 Rxd4 26. f4 Hxf4 27. Bxf4 Hxf4
28. Dxf4 Bxe5
29. Rxg6 Rf3+ 30. Kh1 hxg6 31.
Hxg6+ Bg7 32. Hg2 Rd4 33. Hd1 e5
34. Dg4 Df7 35. Hdg1 Re6 36. Dc4
Kf8 37. Dc8+
– og svartur gafst upp.
Hannes Hlífar var langbestur
Teflt undir glerhjálmi Magnús Carlsen og Wisvanthan Anand við upphaf fimmtu umferðar.
Helgi Ólafsson | helol@simnet.is
SKÁK
TR, Faxafeni
Skákþing Íslands 2008
26. ágúst – 6. september 2008
Elsku amma mín,
ég trúi varla að þessi
tími sé kominn að þú
sért virkilega horfin
úr þessum heimi.
Eftir að mamma dó
hef ég reynt að vera meðvituð um
að ég fái aðeins takmarkaðan tíma
með ástvinum mínum og því reynt
að njóta hverrar stundar sem ég
hef fengið í þeirri von að það yrði
engin eftirsjá þegar kæmi að
kveðjustund.
Þótt mér finnist alltof snemmt
og sárt að kveðja þig þá er ég
rosalega þakklát fyrir hvað við átt-
um mikið og gott samband okkar á
milli og hvað við áttum margar
góðar stundir saman.
Þú varst svo einstök kona og al-
veg sérstaklega merkilegt hvernig
þú fórst í gegnum þessi veikindi,
þvílíka hörkutólið.
Gafst svo svona svakalega í
Ingibjörg Norðkvist
✝ Ingibjörg Norð-kvist fæddist á
Sigufirði 10. apríl
1936. Hún lést á
heimili dóttur sinn-
ar 22. ágúst síðast-
liðinn og fór útför
hennar fram 30.
ágúst, í kyrrþey.
þarna í lokin og það
var eins og þú hefðir
bara lokað á veikind-
in í einn dag sem
reyndist svo vera
þinn síðasti með okk-
ur, varst svo hress og
algjörlega þú sjálf.
Ég er alveg óendan-
lega þakklát fyrir
tímann sem ég átti
með þér þennan dag,
ég gat loksins opnað
munninn án þess að
bresta í grát og sagt
þér hversu rosalega
vænt mér þykir um þig og við átt-
um svo einlægt og gott spjall sem
ég mun aldrei gleyma og hvað þá
að þú skyldir taka upp á því að
syngja á þessari stundu svo fal-
legar línur um eilífðar smáblómið
með titrandi tár sem tilbiður guð
sinn og deyr.
Varst nú reyndar ekki alveg sátt
við að ná ekki upp í hæstu nót-
urnar, sem mér fannst nú eiginlega
bara fyndið að þú hafir ætlað þér,
svona veik kona, en það verður nú
seint tekið af þér að þú varst mjög
þrjósk og ég hef svo sannarlega
erft það, körlunum mínum til mik-
illar gleði.
Elsku amma, þú varst svo ynd-
islega mikill og skemmtilegur kar-
akter sem ég mun aldrei gleyma.
Og verð ég dugleg að segja litla
bumbubúanum sem fer nú að
mæta á svæðið frá elsku lang-
ömmu hans sem hlakkaði manna
mest til að fá hann í heiminn og
var meira að segja byrjuð að
kaupa fyrir hann gjafir þegar hann
var bara pínu ponsu baun. Meðal
annars gleym-mér-ei-sængurfötin
sem ég er búin að strauja svo hann
verði örugglega umvafinn ást þinni
þegar hann kemur heim í vögguna
sína.
Ég trúi því og treysti að þið
mamma verðið með okkur í anda
og gefið okkur styrk til að halda
ótrauð áfram.
Saknaðarkveðjur, dótturdóttir
þín og nafna
Ingibjörg Theódóra
Sigurðardóttir.
Kær bekkjarsystir og vinkona er
horfin af sjónarsviðinu, en ekki úr
huga okkar, sem áttum með henni
samleið, fyrst og fremst á ung-
lings- og mótunarárum okkar.
Inga var ákaflega gjörvileg ung
stúlka, bæði í útliti og framkomu.
Henni var létt um nám og er minn-
isstætt, þegar kennari einn vand-
aði um við hana, því að hún væri
mesti námsmaðurinn í sínum bekk.
Inga var glaðlynd, en jafnframt
djúphugsi. Hún velti málum vel
fyrir sér og átti oft í háalvarlegum
umræðum um tilveruna.
Að loknu stúdentsprófi 1956 hóf
hún nám í Hjúkrunarskóla Íslands
og útskrifaðist þaðan haustið 1959.
Starfaði hún síðan á sjúkrahúsum í
Reykjavík uns hún flutti til Ísa-
fjarðar 1963 til verðandi eigin-
manns síns, sem var Theódór
Norðkvist. Bjó hún þar æ síðan og
vildi hvergi frekar búa.
Inga starfaði við sjúkrahúsið á
Ísafirði í rúmlega þrjátíu ár, allt til
starfsloka, og eignaðist þar góða
vini.
Theódór og Inga eignuðust fjög-
ur börn. Var hún þeim góð móðir
og stolt af þeim fjársjóði sínum,
enda sóttu þau og barnabörnin,
sem öll búa á Reykjavíkursvæðinu,
mikið vestur til hennar.
Inga fór ekki varhluta af sorg-
inni. Theódór, eiginmann sinn,
missti hún af slysförum skömmu
fyrir jól 1994 og elsta barn þeirra,
Margrét, lést frá eiginmanni og
fjórum börnum 1999. Óbuguð hélt
hún áfram starfi sínu enn um sinn
og bjó ein í húsi sínu uns alvarleg
veikindi bundu enda á lífsgöngu
hennar.
Við bekkjarfélagar Ingu söknum
góðrar vinkonu og biðjum henni
guðsblessunar. Börn hennar og
fólkið hennar fá hlýjar samúðar-
kveðjur, fyrir hönd samstúdenta
MA 1956,
Þóra Björk Kristinsdóttir.
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í gegn-
um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is –
smella á reitinn Senda efni til Morg-
unblaðsins – þá birtist valkosturinn
Minningargreinar ásamt frekari
upplýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minningar-
grein á útfarardegi verður hún að
berast fyrir hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför
hefur farið fram eða grein berst ekki
innan hins tiltekna skilafrests er
ekki unnt að lofa ákveðnum birting-
ardegi. Þar sem pláss er takmarkað
getur birting dregist, enda þótt
grein berist áður en skilafrestur
rennur út.
Lengd | Minningargreinar séu ekki
lengri en 3.000 slög (stafir með bil-
um - mælt í Tools/Word Count).
Ekki er unnt að senda lengri grein.
Hægt er að senda örstutta kveðju,
HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og
votta þeim sem kvaddur er virðingu
sína án þess að það sé gert með
langri grein. Ekki er unnt að tengja
viðhengi við síðuna.
Undirskrift | Minningargreinahöf-
undar eru beðnir að hafa skírnar-
nöfn sín en ekki stuttnefni undir
greinunum.
Minningargreinar