Morgunblaðið - 09.09.2008, Side 36
Ef til vill er ekki við
miklu að búast af hin-
um venjulega borgara ef
Bush er hinn þjóðkjörni leið-
togi … 38
»
reykjavíkreykjavík
EINNAR mínútu löng stuttmynd
Barkar Sigþórssonar, Support, sem
hlaut Silfurrefinn á síðustu Reykja-
vík Shorts & Docs-hátíð sem besta
stuttmyndin, hefur verið valin í flokk
25 mínútulangra stuttmynda sem
keppa um Filminute-verðlaunin í ár.
Verðlaun eru veitt í tveimur flokk-
um, annars vegar valin sú mynd sem
dómnefnd þykir best og hins vegar
sú sem flest atkvæði hlýtur í vef-
kosningu. Það eru engir aukvisar í
dómnefnd Filminute, m.a. Paul
Haggis, leikstjóri Óskarsverðlauna-
myndarinnar Crash og David Kenn-
edy, annar stofnenda auglýs-
ingastofunnar Wieden & Kennedy.
Support er fyrsta stuttmynd Barkar
og árangurinn því frábær. Börkur
hefur á seinustu árum leikstýrt tón-
listarmyndböndum, auglýsingum og
ljósmyndað fyrir auglýsingar, m.a.
fatamerkið Nikita.
Einnar mínútu rammi til að segja
sögu er ansi knappur, að sögn Bark-
ar. Auglýsingagerðin hafi vissulega
veitt honum góða þjálfun í því að
segja mikið á stuttum tíma. „Það er
aldrei að vita,“ svarar Börkur spurn-
ingu um hvort hann ætli að færa sig
frekar yfir í stuttmyndagerð. Hann
langi að gera kvikmyndir á endanum
og stuttmyndir séu ágætis æfing
fram að því. „Maður sér bara til hvað
framtíðin ber í skauti sér,“ bætir
Börkur við. Hægt er að horfa á
mynd Barkar á síðu Filminute.
helgisnaer@mbl.is
Þröngur tímarammi
Á sjúkrahúsi Stilla úr Support. Þröstur Leó Gunnarsson leikur í myndinni.
Frumraun Barkar Sigþórssonar í stuttmyndagerð keppir
um Filminute-verðlaunin Myndin er aðeins ein mínúta
Vefsíða Barkar: borkurs.com
Vefsíða Filminute: Filminute.com
Eins og fram
kom í laugar-
dagsblaði Morg-
unblaðsins er nú
unnið hörðum
höndum að því
að reisa um
7.400 fermetra viðbyggingu við
Egilshöll. Stefnt er að því að
opna fjóra bíósali í viðbygging-
unni sem Sambíóin munu reka og
var haft eftir Haraldi L. Haralds-
syni, framkvæmdastjóra Egils-
hallar, að opnunarmynd nýja
kvikmyndahússins yrði engin
önnur en næsta Bond-mynd,
Quantum of Solace. Þetta mun
hins vegar ekki vera alveg á
hreinu ef marka má viðbrögð
Senu við fréttinni en Sena er um-
boðs- og dreifingaraðili allra
James Bond-mynda hér á landi.
Samkvæmt þeim hefur ekkert
samkomulag náðst við Sambíóin
um sýningu myndarinnar og seg-
ir Sena að allar hugmyndir um
að opna húsið formlega með
Bond-mynd séu úr lausu lofti
gripnar. Gæti svo farið að Sam-
bíóin yrðu að finna aðra stór-
mynd til að marka tímamótin.
Já, það er aldeilis harkan í bíó-
húsa-bransanum.
Opnunarmynd Egils-
hallarinnar í uppnámi?
Ofurblogg-
arinn Jens Guð
var á meðal
þeirra sem sóttu
fimmtugsafmæli
Sverris Storm-
skers á sunnu-
daginn. Að hans
sögn mætti fjöldi fólks til afmæl-
isins sem haldið var á skemmti-
staðnum Steik & leik við Grens-
ásveg. Má þar nefna Jón Baldvin
Hannibalsson og eiginkonu hans
Bryndísi Schram, Markús Þór-
hallsson og Halldór Einarsson,
kollega Sverris af Útvarpi Sögu,
og fleiri og fleiri. Sverrir Storm-
sker var að sjálfsögðu hrókur alls
fagnaðar og lék á píanóið. Að
sögn Jens svignuðu borð undan
kræsingum af ýmsu tagi og allir
virtust skemmta sér konunglega.
Mælir hann svo sérstaklega með
staðnum sem hann mærir fyrir
góða reykaðstöðu.
Fimmtugur Stormsker
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ÉG fór þangað í vor, þegar Abramovich var
ennþá ríkisstjóri. Þá fór ég með Ara Trausta og
Ragga Th. ljósmyndara. Ég tók töluvert af mynd-
um en þegar ég kom heim fann ég að mig langaði
að gera meira, þannig að ég
settist niður og fór að skrifa
meira handrit, og fór að ein-
blína meira á Abramovítsj
sjálfan,“ segir kvikmynda-
gerðarmaðurinn Valdimar
Leifsson sem vinnur nú að
heimildarmynd um sjálfstjórn-
arhéraðið Chukotka í Síberíu.
„Við ætluðum bara að gera
stutta ferðamynd, en svo
fannst mér þetta svo skemmti-
legt að ég ætla að kafa dýpra í
þetta. Þannig að ég er að fara þangað aftur fljót-
lega því mig langar að segja söguna í gegnum fólk
sem ég kynntist þarna.“
Chukotka er gríðarlega afskekkt, þar búa
50.000 manns á svæði sem er sjö sinnum stærra en
Ísland. „Þetta er níu tíma flug frá Moskvu, og
þetta er eins norðaustarlega og maður kemst.
Þetta er eiginlega beint á móti Alaska,“ útskýrir
Valdimar.
Allt í blóma
Rússneski auðjöfurinn Roman Abramovítsj var
landstjóri á svæðinu frá árinu 2000 og þangað til í
júlí síðastliðnum. Að sögn Valdimars hefur hann
gert kraftaverk á svæðinu. „Hann er hálfgerður
guð þarna uppfrá, hann er búinn að byggja skóla
og sjúkrahús og fleira, og borgar það úr eigin
vasa. Sumir halda að hann sé bara búinn að stela
þessum olíupeningum en ég held að hann sé að
gera mjög góða hluti. Það er lítið búið að einblína
á þetta og fólk á þessu svæði er mjög ánægt með
hann. Eftir að Sovétríkin liðuðust í sundur var allt
að fjara til fjandans þarna, bara hungursneyð og
leiðindi. Svo kom hann í heimsókn, og blöskraði
ástandið. Þannig að hann fór að setja peninga í
svæðið en þeir hurfu bara, það voru einhverjir
skúrkar sem stjórnuðu öllu. Þá var honum ráðlagt
að bjóða sig fram til landstjóra, sem hann og
gerði, og vann kosningarnar. Þá fór hann að end-
urskipuleggja innri strúktúrinn, byggja skóla og
svona, allt á sinn kostnað. Þannig að það blómstr-
ar allt þarna núna.“
Aðspurður segir Valdimar að Abramovítsj viti
að myndin sé í bígerð. „Hans aðstoðarmaður á
svæðinu er minn tengiliður. Ég hef hins vegar
aldrei hitt Roman, og hann veitir aldrei viðtöl.
Honum er víst mjög illa við það, og ég á ekki von á
því að hann geri það í þessu tilfelli.“
En vill Abramovítsj ekki koma að mynd sem
dregur upp góða mynd af honum? „Hann veit í
rauninni ekki um hvað hún fjallar, hann hefur
ekki séð handritið. Þannig að ég veit ekkert hvort
hann verður ánægður eða ekki. Ég fæ líka alveg
frjálsar hendur,“ svarar Valdimar, sem hefur þó
fengið þyrlu Abramovítsj að láni, enda erfitt að
komast um hið strjálbýla svæði með öðrum hætti.
Að sögn Valdimars mun myndin kosta á bilinu 8
til 10 milljónir króna, en hann fær styrk úr Kvik-
myndasjóði, auk þess sem Sjónvarpið hefur keypt
sýningarrétt. Hann segist þó gera ráð fyrir að
myndin verði sýnd víðar. Stefnt er að því að ljúka
við myndina fljótlega upp úr áramótum.
Landið hans Romans
Valdimar Leifsson gerir heimildarmynd um Roman Abramovítsj og landsvæðið
Chukotka í Síberíu þar sem milljarðamæringurinn hefur unnið kraftaverk
Reuters
Ríkur Hér á landi er Abramovítsj hvað þekktastur sem eigandi hins frábæra knattspyrnuliðs Chelsea.
Valdimar
Leifsson
;.1%&
=:
F "
!
" #
$
%
&'
$%!&'!
()"
-)
(
!
)& &