Morgunblaðið - 20.09.2008, Qupperneq 8
8 LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
FIÐRILDI af tegundinni red admiral eða rauður aðmíráll sást í Seyðisfirði
hinn 15. september sl. Þar var það í góðu yfirlæti og gæddi sér á vallhumli.
Erling Ólafsson náttúrufræðingur segir að ekki sé einsdæmi að slík fiðrildi
komi hingað til lands svo seint og jafnvel allt fram í október, oftast koma
þau þó um hásumarið. Fiðrildin berast hingað frá meginlandi Evrópu með
suðaustan vindum.
Með útbreidda vængi getur rauður aðmíráll verið allt að sex sentímetrar.
Flækingur í september
Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur
ylfa@mbl.is
VEIKING krónunnar hefur ekki far-
ið fram hjá erlendu ferðamönnunum
frekar en okkur Íslendingunum.
Meðan margir kvarta yfir því hversu
dýrt er að fara til útlanda, gista þar á
hóteli, borða úti og versla, gleðjast
ferðamennirnir yfir því hve hagstætt
er að dvelja hér – a.m.k. hagstæðara
en áður.
Ekki aðeins sýna tölur frá Global
Refund á Íslandi að erlendir ferða-
menn hafi eytt mun meiri peningum í
ágúst samanborið við sama mánuð í
fyrra heldur fengust þau svör hjá Ice-
landair og Iceland Express að bók-
anir í ferðir hingað frá útlöndum
hefðu aukist samfara aukinni veik-
ingu krónunnar.
Meira selt en gert var ráð fyrir
Bæði Icelandair og Iceland Ex-
press hafa dregið úr framboði flug-
ferða í vetur. Að sögn Guðjóns Arn-
grímssonar, upplýsingafulltrúa
Icelandair, er eftirspurnin nokkru
meiri en gert var ráð fyrir þó hún sé
minni en í fyrra. „Íslendingar eru um
það bil þriðjungur af okkar farþegum
og hér heima sjáum við litla breytingu
í ferðum einstaklinga,“ segir hann.
Sala utan Íslands hafi aukist en „við
reynum svo auðvitað að stýra þessu
sjálf í takt við sveiflurnar í genginu,
þ.e. að selja sem mest af sætum núna
t.d. á evru- og dollarasvæðum.“
Lára Ómarsdóttir, upplýsinga-
fulltrúi Iceland Express, segir að
framboð félagsins á ferðum hafi dreg-
ist saman um 10%. „Við erum samt að
selja fleiri miða,“ segir hún. „Ætli það
sé ekki eins með Iceland Express og
lágverðsverslanirnar, það hefur ekki
verið mikill samdráttur heldur aðeins
aukning.“
Versla fyrir háar fjárhæðir
„Það sem hefur gerst nú í fyrsta
skipti í langan tíma er að íslenska
krónan er veik gagnvart öllum gjald-
miðlun. Niðurstaðan er sú að ferða-
menn að eyða miklu meira en þeir
hafa áður gert,“ segir Helgi Hrann-
arr Jónsson, framkvæmdastjóri Glo-
bal Refund á Íslandi, sem sér um að
endurgreiða virðisaukaskatt til er-
lendra ferðamanna.
Verslunarfólk hefur ekki farið var-
hluta af þessari þróun. „Mörgum
finnst ekkert mál að borga 100 þús.
kr. og sumir hafa verslað hjá okkur
fyrir 200 þúsund,“ segir Anne Katr-
ine Hame, verslunarstjóri ELM.
Að sögn Helga hefur þróunin und-
anfarið greinilega verið sú að hver
ferðamaður kaupi fyrir hærri upp-
hæð í hvert skipti en áður. „Fyrstu
þrjá mánuði ársins samsvaraði aukn-
ingin gengi krónunnar en eftir að
krónan gaf svona rosalega eftir hefur
þetta aukist mikið.“
Krónan glæðir áhuga
Fjöldi Íslendinga heldur að sér höndum í neyslu vegna víðtækra áhrifa veikingar krónunnar en aftur á
móti hefur sjaldan verið hagstæðara fyrir erlenda ferðamenn að dveljast hér á landi og versla
Morgunblaðið/Golli
Sparar Sif Jónsdóttir segist hafa breytt neysluvenjum sínum, bæði með því
að draga úr akstri og hugsa betur um hvað hún kaupir inn. „Ég er farin að
hugsa meira um hvað ég eyði krónunum í,“ segir hún og bætir við að henni
finnist allir í kringum sig gera slíkt hið sama.
!
" #
" $%
& ' #
(' # ) # * )# + ' ),,
! "
- .
, , , , , , , , , , , , /
/
/
! "
-., , , , , , , , , , , ,
///
/
///
//
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
„ÞAÐ ER ákveðin vísbending um að við þurfum að auka
eftirlit ef við fáum tilkynningar frá fólki, en því er ekki
fyrir að fara í Laugardalnum,“ segir Árni Þór Sigmunds-
son, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuð-
borgarsvæðinu. Í Morgunblaðinu í gær var haft eftir
móður níu ára stúlku að Laugardalurinn væri ekki
öruggur og mörgum foreldrum ofbjóði vegna áreitis og
jafnvel ofbeldis gagnvart börnum og fullorðnum. Árni
kannast ekki við tilkynningar um slíkt né Ásmundur Vil-
helmsson, framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar Þrótt-
ar.
Þróttur er með knattspyrnuaðstöðu í Laugardalnum
og sækja þangað fjölmargir ungir iðkendur á hverjum
degi og fram á kvöld. Ásmundur segist ekki hafa heyrt
kvartanir vegna óöryggis í Laugardalnum og ummæli
konunnar koma honum eiginlega í opna skjöldu. Hann
segir þó að í Laugardal, líkt og á öðrum stórum opnum
svæðum megi alltaf gera betur, s.s. hvað varðar lýsingu
og annað í þeim dúr. Hann lítur hins vegar ekki svo á að
keyra þurfi börn á æfingar.
Ekki heyrt af eða séð afbrot
Eldri maður hringdi jafnframt í Morgunblaðið vegna
fréttarinnar í gær. Hann segist hafa gengið um Laug-
ardalinn á hverjum degi í mörg ár, klukkutíma í senn og
hvort sem er að morgni eða kvöldi. Maðurinn segir oft
mikla umferð um dalinn en aldrei hafi hann heyrt af né
séð þar afbrot framin. Og ekki hafi hann séð fíkniefnasala
halda þar til, líkt og móðirin lét í veðri vaka.
Árni Þór segist muna eftir tveimur minni háttar lík-
amsárásum í Laugardalnum, en þar af hafi önnur verið
vegna rifrildis á knattspyrnuæfingu. Hvað varðar spraut-
unálar sem móðirin segir hafa fundist segir Árni Þór:
„Við höfum verið að reka okkur á að sprautur hafa fund-
ist á ólíklegustu stöðum. Ég vil benda foreldrum á að
brýna fyrir börnum sínum að láta svona hluti eiga sig, en
láta vita af þeim.“
Kannast ekki við áreiti
og ofbeldi í Laugardal
Aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni segir fjölda
tilkynninga gefa vísbendingu um þörf á frekara eftirliti
„ÉG versla miklu frekar í lágverðs-
verslununum nú en áður,“ segir Sig-
urður Höskuldsson. Hann segist vera
farinn að hugsa öðruvísi en áður, nú
velti hann frekar fyrir sér hvað hann
kaupir í matinn. „Ég reyni að hugsa
meira um matinn. Maður var ekki að
spá mikið í hann áður, var með stórar
steikur og svoleiðis mat en nú er
maður farinn að draga aðeins saman
og passa í hvað maður eyðir pen-
ingnum.“
Sigurður segist einnig vera farinn
að aka bílnum sínum minna en áður.
„Í staðinn fyrir að fara á bílnum mín-
um get ég tekið rútu í vinnuna og ég er farinn að gera það meira,“ segir
Sigurður en hann vinnur í álverinu í Straumsvík. Þar er starfsfólki boðið
upp á rútuferðir á vinnustaðinn og er Sigurður farinn að nýta sér þann val-
kost í mun meira mæli en áður. „Það er rosalega freistandi að fara á bíl en
þetta safnast þegar saman kemur.“
Farinn að hugsa öðruvísi
Sparsamur Sigurður segist hugsa
meira um hvað hann kaupir inn.
Bæði Kennarasamband Íslands
(KÍ) og Bandalag háskólamanna
(BHM) hafa á sínum snærum íbúð-
ir í Kaupmannahöfn sem fé-
lagsmenn þeirra geta leigt. Þrátt
fyrir að danska krónan hafi á rúmu
ári styrkst um 50% hefur hvorugt
félagið orðið vart við minnkandi
eftirspurn eftir íbúðunum.
Hjá KÍ fengust þær upplýsingar
að íbúðin, sem félagið er með í
ársleigu, sé bókuð til áramóta en
hún er leigð fjóra mánuði fram í
tímann. Oft sé fólk að fara á nám-
skeið eða aðra vinnutengda við-
burði sem ekki sé hægt að sleppa.
BHM leigir út þrjár íbúðir í
Kaupmannahöfn. Félagið hefur
undanfarin ár einungis verið með
eina í útleigu og er því erfitt að
meta breytinguna í eftirspurninni.
Allar íbúðirnar eru fullbókaðar í
október og hefur afar lítið verið
um afpantanir.
Engin breyting í útleigu íbúða KÍ og BHM