Morgunblaðið - 20.09.2008, Síða 19

Morgunblaðið - 20.09.2008, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 2008 19 MENNING Eftir Skapta Hallgrímsson skapti@mbl.is „ÞAÐ er alltaf gaman að fá viðurkenningu og sérstaklega frá móðurlandinu,“ sagði listakon- an Steina, Steinunn Briem Bjarnadóttir Vas- ulka, við Morgunblaðið eftir að hún fékk heið- ursorðu Sjónlistar við hátíðlega athöfn í Flugsafni Íslands á Akureyri í gærkvöldi. Steina hefur lengi verið búsett erlendis og vissi ekki hvað Sjónlist var áður en henni var tilkynnt að hún ætti að fá heiðursorðuna. „Ég hafði aldrei heyrt um þetta, en ég er í góðum félagsskap með Högnu og Magnúsi,“ sagði Steina. Högna Sigurðardóttir arkitekt hlaut heiðursorðuna í fyrra og Magnús Pálsson myndlistarmaður 2006, þegar Sjónlistahátíðin var fyrst haldin. „Mér, svona gamalli mann- eskju, finnst ég allt í einu orðin bráðung – af því að þau eru bæði eldri!“ sagði Steina. Það vakti athygli blaðamanns að Steina var með litla myndbandsupptökuvél og stillti henni þannig upp á borði að hún á nú upptöku af því þegar hún tók á móti heiðursorðunni. „Ég er að vinna að ævisögunni og tek myndir af öllu. Ef eitthvað er ekki myndað kemst það ekki að í ævisögunni.“ Hún kveðst hafa safnað slíkum upptökum allar götur frá því hún kynntist miðlinum. Svo skemmtilega vill til að á morgun, sunnu- dag, fer fram Sjónþing um Steinu í menningar- miðstöðinni Gerðubergi í Reykjavík og þá verður jafnframt opnuð yfirlitssýning frá tæp- lega 40 ára ferli hennar sem videolistamanns. Í mörg ár vissi hún ekki einu sinni að Breið- holt væri til. „Svo heyrði ég talað um það sem eitthvert subbuhverfi, en var voðalega hissa þegar ég kom í Breiðholtið og sá hve vel það er skipulagt og svo er þar þetta dæmalausa Gerðuberg, sem ætti að vera í hverju hverfi í Reykjavík,“ sagði hún í samtali fyrr í gær. Steina fæddist í Reykjavík árið 1940 og lagði stund á tónlist frá unga aldri. Nítján ára fékk hún styrk til framhaldsnáms í fiðluleik við Tónlistarháskólann í Prag í Tékkóslóvakíu. Þar kynntist hún tilvonandi eiginmanni sínum Woody Vasulka, vélaverkfræðingi sem lagði stund á kvikmyndagerð og giftu þau sig árið 1964. Steina starfaði um skeið sem fiðluleikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands en flutti síðan til New York með manni sínum. Þegar Steina er spurð hvernig það hafi at- vikast að hún gerðist videolistamaður – ein af þeim fyrstu í veröldinni – segir hún það hafa verið mikla heppni. „Ég var orðin dauðþreytt á að spila á fiðlu. Það er ekkert gaman að spila á fiðlu í New York; bara farið úr einni hljómsveit í aðra og helst spiluð alls konar söngleikja- músík og ég var dauðþreytt, en vissi ekki ná- kvæmlega hvað ég ætlaði að gera næst.“ Woody, eiginmaður Steinu, sem var kvik- myndagerðarmaður, var farinn að kynna sér videoið; myndbandið, og fékk vinnuveitanda sinn til þess að kaupa græjur. „Við lágum í þessum tækjum og það leið ekki langur tími þar til ég var orðinn vitlaus í þetta líka, og þá urðum við að hætta að vinna annars staðar og fara út í þetta! Það var seint á árinu ’69.“ Verkin sem sýnd verða í Gerðubergi eru allt frá upphafi ferilsins til dagsins í dag. Steina segir það hafa verið geysilega spenn- andi á sínum tíma að kynnast videoinu. Hún gat farið út um allt og spurt fólk hvort hún mætti taka það upp. Á hvað? var spurt. Á video, svaraði Steina. Video! Hvað þýðir það orð? var þá spurt. „Fólk áttaði sig ekki á því að þetta var mynd og hljóð. Maður gat farið hvert sem var með videovélina og tekið upp. Ég náði í margt skemmtilegt; t.d. tók ég upp tvo klukkutíma þar sem Miles Davis spilaði. Ég kom til að taka upp aðra grúppu og hélt áfram eftir að hann byrjaði. Þá urðu allir dauðskelkaðir því hann var frægur fyrir að kýla fólk. Ég sagði að hann myndi varla kýla konu, en svo kom í ljós að hann hafði barið allar sínar eiginkonur …“ En Steina slapp, og á þess vegna tveggja klukku- tíma upptöku af tónlistarmanninum fræga. „Mjög skemmtilegt myndband,“ segir hún. „Gaman að fá viðurkenningu“ Yfirlitssýning og Sjónþing í Gerðubergi um listakonuna Steinu sem hlaut heiðursorðu Sjónlistar Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Heiður „Hafði aldrei heyrt um Sjónlist en ég er í góðum félagsskap með Högnu og Magnúsi.“ Sjónþingið um Steinu í Gerðubergi á morgun hefst kl. 13.30 og stendur til kl. 16. Stjórn- andi er Þorbjörg Br. Gunnarsdóttir, sýning- arstjóri en spyrlar eru Halldór Björn Runólfs- son, safnstjóri Listasafns Íslands og Margrét Elísabet Ólafsdóttir, fagurfræðingur. Yfirlits- sýningin verður opnuð á sama tíma og stend- ur til 2. nóvember. Sýningin verður opin virka daga frá kl. 11-17, og um helgar frá 13-16. Að- gangur er ókeypis og hægt að fá leiðsögn eft- ir samkomulagi. Steina hefur sýnt víða í Evr- ópu, Ameríku og Asíu og henni hafa hlotnast ýmsir af helstu styrkjum og viðurkenningum sem veitt eru listamönnum í Bandaríkjunum. Hún var fulltrúi Íslands á Feneyjatvíær- ingnum árið 1997 en þar var sýnt verk hennar Orka. Þau hjón Steina og Woody Vasulka hafa búið um árabil í Santa Fe í Nýja-Mexíkó. Sjónþingið og yfirlitssýningin í Gerðubergi „AUGNASINFÓNÍA“ er heiti yfirlitssýningar á verkum Braga Ásgeirssonar sem opnuð var um síðustu helgi í Vestursal Kjarvalsstaða – Listasafni Reykjavíkur. Sýningin spannar 60 ára listferil Braga, eða allt aftur til náms- áranna. Bragi, sem er fæddur í Reykjavík árið 1931, hóf listnám við Handíða- og myndlista- skólann árið 1947, þá 16 ára gamall, og þaðan lá leið hans í Listaháskólann í Kaupmannahöfn, Ósló og að lokum til München. Hann hélt sína fyrstu einkasýningu í Listamannaskálanum ár- ið 1955 og ári síðar hóf hann kennslu við Mynd- lista- og handíðaskóla Íslands sem hann sinnti næstu 40 árin og mótaði m.a. grafíknámið við skólann. Bragi starfaði sem myndlistargagnrýnandi hjá Morgunblaðinu frá árinu 1966 til þessa árs, þótt hann hafi látið hefðbundna gagnrýni eiga sig síðustu árin og haldið sig við sunnudags- pistla, Sjónspegil, en hann kvaddi lesendur Morgunblaðsins fyrir skömmu með sínum síð- asta spegli. Sem pistlahöfundur hefur Bragi verið málsvari klassískra gilda og uppfrætt al- menning um listasöguna. Þessum hluta af fram- lagi Braga til myndlistar er gerð athyglisverð skil í Norðursalnum, fræðslusal Kjarvalsstaða, undir yfirskriftinni „Bragi í hólf og gólf“. Meginatriði Augnasinfóníunnar er þó listin sjálf og er sýningunni skipt eftir tímabilum. Bragi hefur hvað helst verið gagnrýndur fyrir að færast úr einu í annað eftir tíðaranda og halda sig ekki við „hinn rauða þráð“. Slík gagn- rýni byggist mikið til á módernísku viðhorfi og við hljótum að sjá þetta með öðrum hætti í dag. Hann synti vissulega á móti straumnum með að vinna jöfnum höndum í abstrakt og fígúrasjón þegar slíkt var bannað. En sviptingar eru þó slíkar að í fyrstu má ætla að verkin séu eftir fleiri en einn listamann. En margt býr í einum manni og þegar maður gefur verkunum nánari gaum má sjá augljósan þráð (sem er reyndar grænn en ekki rauður) því Bragi er ætíð að kljást við sömu klassísku gildin í hlutföllum byggingar, formum og áferð. Sinfónían Á ganginum á Kjarvalsstöðum eru verk sem listamaðurinn gerði á námsárum sínum, s.s. fyrsta grafíkverkið, sjálfsmynd í dúkristu árið 1952. Þetta er forspil (Prelude) Augna- sinfóníunnar þar sem kemur glöggt í ljós hversu snjall teiknari listamaðurinn hefur verið strax í upphafi. Má sjá sterk áhrif frá meist- urum módernismans, Mattisse, Picasso, Klee o.fl. Vestursalnum er svo skipt í fernt og tengist fyrsti hluti hans líka námsárunum. Hér er það tiginmannleiki konunnar sem birtist í vönd- uðum myndum, Maestoso Andante, en Bragi hefur lengi fengist við „gyðjuna“ af blendinni virðingu og ótta (vitna hér að hluta í Braga sjálfan). Annar þáttur Augnasinfóníunnar sýnir geo- metrísk verk listamannsins en þar gætir m.a. áhrifa frá gestalt skynheildarfræðum sem kem- ur fram hjá listamönnum á borð við Max Bill og Gunther Fruthrunk. Með geometríunni stígur Bragi inn á helgari svið, t.d. með tillögu að skreytingu í Skálholtskirkju og sinfónían fær á sig nýjan hljóm, Candata Allegretto. Í þriðja þætti er klastrinu (combined paint- ing) gerð góð skil og er þessu tímabili hans hampað sérstaklega í inngangi Hafþórs Yngva- sonar í sýningarskránni, sem hápunkti sinfóní- unnar, Sforzando Allegro. Hér gegnir Bragi líka frumkvöðlastarfi í Íslenskri listasögu með notkun á tilbúnum hlutum (found art/junk art) s.s. brotnum dúkkum, áprentuðum myndum úr listasögubókum og ýmsu dóti sem hefur rekið á fjöru hans. Fjórði þátturinn er svo tileinkaður nýrri verkum Braga, en eftir að hafa unnið með fundna hluti í tæpa tvo áratugi sneri hann sér aftur að málverkinu. Litir verða skarpari og tónar birtast í efninu sjálfu og þótt geometrían sé enn viðloðandi hafa fletir flosnað upp í litaf- læmi og áferðin farið að tala sínu máli. Má m.a. finna þarna samsvörun málverka við grafíkina. Þ.e. í lagskiptingu efnis og teikningu í efnið, líkt og með nál í plötu fyrir ætingu. Þetta er loka- kaflinn í Augnasinfóníunni, Espressione Alle- gretto. Eftirspil Þessi kaflaskipting virkar vel. Maður getur staðið í salnum og séð til beggja enda og þannig drepið á ferilinn í einni svipan en svo gengið á milli og rýnt í hvert tímabil fyrir sig. Hér kem- ur sýningarstjórn við sögu, en því starfi hefur Þóroddur Bjarnason, myndlistarmaður og fyrr- um starfsbróðir Braga á Morgunblaðinu, sinnt mjög vel. Þóroddur er einnig höfundur bókar um lista- manninn sem er gefin út í tilefni af sýningunni. Þóroddur starfaði lengi sem blaðamaður og heldur sig við það form. Textinn er í viðtals- formi þar sem Bragi segir frá ferli sínum og inn í hann spilar Þóroddur önnur brot úr æviskeiði listamannsins auk tilvitnana í eldri texta sem þjóðkunnir menn á borð við Valtý Pétursson, Halldór Björn Runólfsson og Halldór Laxness hafa ritað um listamanninn, að ógleymdu ljóði Matthíasar Johannessens tileinkuðu Braga, „Smásjá hugans – Ferðalag frá einni hugmynd til annarrar“. Líkt og á sýningunni er bókinni skipt í tíma- bil. Byrjar á mótunarárunum sem byggjast mikið til á ferðalögum og ljóst að Bragi hefur sogað að sér áhrif ólíkra menningarstrauma. Sagan heldur áfram gegnum grafíkina, klastrið (sem kallað er popptímabilið) og málverkið. Í síðasta kafla bókarinnar, Lífið og tilveran, segir Bragi frá raunum þeim að vera heyrnarlaus og fær mann sannarlega til að skoða list hans með öðru hugarfari. Þetta er skemmtileg og fræðandi lesning, myndskreytt með myndum af verkum Braga og sem slík fantagóð heimild sem virkar ágæt- lega sem eftirspil (Postlude) sinfóníunnar. Helst sakna ég þó sjónrænna líkinga við al- þjóðlega listamenn, en eins og Þóroddur greindi sjálfur frá í þættinum Sjálfstætt fólk á Stöð 2 ber okkur að horfa á Braga sem alþjóð- legan listamann. Röng hlutföll Það er augljóslega mikil undirbúningsvinna við sýninguna. Vel er valið úr verkum og þótt ég hafi séð mörg þeirra áður kom sýningin mér samt á óvart og gaf mér enn dýpri innsýn í list Braga enda kærkomið tækifæri til að end- urmeta framlag hans til myndlistar og sjá verk hans í nýju ljósi. Ég er líka á því að þetta yfirlit sé mjög vel tímasett því að aukinn og ferskur áhugi virðist vera að vakna hjá ungu fólki á listamönnum sem voru að störfum fyrir SÚM tímabilið. Kles- sulistahreiðrið tókst til að mynda mjög vel í Listasafni ASÍ í vetur og sýningin á verkum Kristjáns Davíðssonar í Listasafni Íslands var smellur í fyrra. Eini ljóðurinn á sýningunni er hversu lítil hún er. Og er það að mörgu leyti undarlegt og pínu púkó, úr því að á annað borð er verið að hafa yfirlit á ríkulegum 60 ára listferli með bók og heilmiklu tilstandi, að miða það bara við einn sal. Þarna eru augljóslega röng hlutföll miðað við byggingu og form. Og hefði betur mátt gefa Kjarval smáfrí í Austursalnum og helga Kjar- valsstaði Braga Ásgeirssyni í þessa tvo mánuði af eilífðinni. Þetta á jú að vera sinfónían öll. Bragi Ásgeirsson – Sinfónían öll MYNDLIST Listasafn Reykjavíkur – Kjarvalsstaðir Opið alla daga frá 10-17. Sýningu lýkur 16. nóv- ember. Aðgangur ókeypis. Bragi Ásgeirsson – Yfirlitssýning bbbbm Augnasinfónía „Hann synti vissulega á móti straumnum með að vinna jöfnum höndum í ab- strakt og fígúrasjón þegar slíkt var bannað.“ Jón B. K. Ransu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.