Morgunblaðið - 20.09.2008, Page 20

Morgunblaðið - 20.09.2008, Page 20
20 LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur kolbrun@mbl.is Ö gmundur Jónasson, þingmaður Vinstri-grænna og formaður BSRB, hefur mjög látið til sín taka á hinu pólitíska sviði á und- anförnum vikum og hvergi dregið af sér í gagnrýni á ný sjúkratryggingalög heil- brigðisráðherra sem hann segir skref í átt að einkavæðingu heilbrigðisþjónustunnar. Af hverju er þér svo illa við orð eins og einkavæðing og markaðshyggja, hefur ekki gengið ágætlega að láta einkaframtakið og markaðinn sjá um hlutina? „Það eru ekki hugtökin sem angra mig held- ur stefnan og hvað hún gerir því þjóðfélagi sem við höfum byggt hér upp með góðum árangri. Við erum eljusöm þjóð með merka sögu. Hér er fjöldi stórra og smárra fyrirtækja sem eru í ágætum rekstri. Við erum vel menntuð, eigum gríðarlegar auðlindir. En við höfum verið að fara afturábak undanfarin ár vegna þess að vír- us frjálshyggjunnar hefur hreiðrað svo ræki- lega um sig. Þeir sem ráða eru hættir að trúa á heilbrigða skynsemi, hættir að trúa á skapandi atvinnurekstur. Nú er það bara braskið sem blívur. Guðinn heitir græðgi og þeir sem á hann trúa eru í herkví trúarbragða og komast hvergi. Óheft markaðshyggja hefur umbreytt íslensku samfélagi í spilavíti. Við blasir þjóð- félag aukinnar misskiptingar, sennilega meiri en dæmi eru um áður í Íslandssögunni. Þegar menn tala um það í fullri alvöru að fara með heilbrigðisþjónustuna og orkukerfið, innviði samfélagsins, út á þetta sama markaðstorg þar sem mönnum hefur mistekist jafn herfilega og dæmin sanna þá hlýtur maður að vara við því. Ég vil að sjálfsögðu blandað hagkerfi þar sem markaðurinn spreytir sig og samkeppni er þar sem það á við, en samfélagsþjónustunni, inn- viðum samfélagsins, vil ég halda hjá samfélag- inu.“ Pólitískt skop Hörð gagnrýni þín á heilbrigðisráðherra hefur vakið mikla athygli. Fórstu ekki offari þegar þú settir saman mynd af honum og Gad- dafi á heimasíðu þinni? „Það kom mér á óvart hversu mjög það fór fyrir brjóstið á sumum að sjá Guðlaug Þór skeytt saman við Sarkozy Frakklandsforseta á góðri stundu suður í Líbýu. Þarna var að sjálf- sögðu um að ræða pólitískt skop. Menn sem ég met mikils í Sjálfstæðisflokknum hafa komið til mín og beðist afsökunar á húmorsleysi í sínum flokki. Hins vegar tengist þessi umrædda mynd grafalvarlegu máli sem er framtíð íslenska heil- brigðiskerfisins. Ég skil ekki af hverju menn eru hræddir við að taka upplýsta umræðu um það efni. Heilbrigðiskerfið þarf á því að halda að vera í stöðugri endurnýjun og endursköpun. Um það eiga að leika ferskir vindar. Við í verkalýðshreyfingunni höfum stuðlað að því að koma upplýsingum, fróðleik og reynslu ann- arra þjóða inn í þessa umræðu og þá rísa menn upp til handa og fóta og reyna að sporna gegn því. Ég spyr: Við hvað eru menn hræddir? Ég óttast að í stað fjölbreytni og endursköp- unar og endurnýjunar þá muni markaðsvæðing heilbrigðiskerfisins færa okkur inn í einsleitara kerfi aukinnar misskiptingar. Við munum ekki sitja uppi með fjölbreytnina sem gumað er af heldur einokunarfábreytni sem kemur skatt- borgurunum í koll. Það er umyrðalaust ætlast til að við setjum skattpeningana okkar í rán- dýrar einkalausnir sem hagnast fjárfestum sem nú gína yfir þessum rekstri.“ Hvaða fyrirtæki myndir þú vilja end- urþjóðnýta sem hafa verið einkavædd? „Almennt er ég þeirrar skoðunar að sam- félagið eigi að sjá um að samfélagsþjónustan sé góð, stoðkerfið sem svo er nefnt, skólar, heil- brigðis- og félagsþjónustan, samgöngur, lög- gæsla, rafmagn og vatn; að öðru leyti eigi að virkja sköpunarkraft einstaklinganna. Hins vegar finnst mér að við tilteknar aðstæður geti samfélagið þurft að grípa inn í þar sem fyrir- tæki hafa ekki áhuga eða burði til að takast á við þjóðþrifamál. Við eigum ekki að hugsa svar- ið í stofnunum eða fyrirtækjum heldur í starf- semi. Tökum dæmi. Það kemur á daginn að við höfum fjárfest í höfnum víðs vegar um land. Það hafa verið færðar sönnur á það að þunga- flutningar á vegum eru óhagkvæmari og dýrari en flutningar á sjó. Ef einkaaðilar koma ekki inn í sjóflutninga þá finnst mér sjálfsagt að rík- ið skoði möguleikana á slíku. Hvort það yrði gert með því að endurvekja Ríkisskip, bjóða þessa starfsemi út eða örva einkaaðila til slíks, ætla ég ekki að segja til um fyrirfram en sam- félagið á að sjá til þess að þessi starfsemi sé stunduð. Tökum annað dæmi. Markaðsverð á áburði til landbúnaðar er að tvöfaldast og fyrirsjá- anlegt að á næstu mánuðum verði enn frekari hækkanir vegna aukinnar eftirspurnar og stöð- unnar í heiminum. Þurfum við ekki í ljósi þess að hugsa út í það hvort við eigum að endurræsa áburðarverksmiðju hér á landi, hvort sem ríkið gerði það sjálft eða aðrir aðilar? Samfélagið á að hugsa á þessum nótum.“ Á að þjóðnýta bankana? „Mér finnst ekki vera sáluhjálparatriði að bankar séu í eigu hins opinbera og ég legg ekki að jöfnu bankana annars vegar og heilbrigðis- þjónustuna hins vegar. Ég og mín skoðana- systkini vöruðum hins vegar við því að fjár- málakerfið yrði einkavætt á einu bretti í okkar litla hagkerfi vegna þess að sú hætta blasti við að þeir sem hafa eignarhald á atvinnustarfsem- inni í landinu myndu jafnframt eignast bank- ana. Þeir sætu beggja vegna borðs og ættu fyr- irtækin sem síðan leituðu til sama aðila um lánsfjármagn. Þetta varð þróunin. Ég held líka að ríkisstjórnin hafi á sínum tíma gert mikil mistök í að einkavæða fjármálakerfið án þess að skapa því lög og reglur sem koma í veg fyrir að undir sama þaki séu viðskiptastarfsemi og Guðinn heitir gr Pólitíkin Ég yrði alveg óþolandi ef ég yrði settur í pólitískt bindindi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.