Morgunblaðið - 20.09.2008, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 20.09.2008, Qupperneq 22
Upprisa færeyska eldhússins Áhugi hans á því að læra til kokks kviknaði þegar hann var við líf- fræðinám í Reykjavík. Færeyski kokkurinn Leif Sørensen kann vel að galdra fram góða rétti. Meistarakokkur Leif Sørensen er duglegur við að nota færeyskt hráefni í rétti sína og færa það í nýjan og spennandi búning. Þjóðlegt hnossgæti Hörpuskel með harðfiskravioli. Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur annaei@mbl.is H úsið lætur lítið yfir sér utan frá og á neðri hæðinni blasir við hefðbundið kaffihús. Glitnir, hmm greini- lega ekki bara bankanafn, hugsa ég með mér um leið og ég velti því fyrir mér hvort ég sé að fara á réttan stað. Hét veitingastaðurinn ekki örugglega Gourmet? Samferðafólk mitt heldur hins vegar óhikað upp á efri hæð hússins og þar blasir við stílhreinn veitingastaður á norrænum naum- hyggjunótum. Eftir að okkur hefur verið vísað til borðs bera stimamjúkir þjónar fram harðfiskhrískökur og fiskistangir sem reynast vera frum- leg byrjun á góðri matarupplifun og ekki er annað að sjá en að gestirnir sem fljótt fylla salinn séu á sama máli. Átta réttum síðar sest ég niður með Leif Sørensen, sem talar góða ís- lensku, og kemst að því að það var einmitt á Íslandi sem kokks- hugmyndin kviknaði. Gaman að vera á tveggja stjörnu stað „Ég var á Íslandi að læra líffræði. Það eru líffræðingar allt í kringum mig og því fór ég í líffræðina líka. Á meðan ég var í háskólanum og bjó á Gamla Garði var ég hins vegar sífellt að gera matreiðslutilraunir, prufa að elda svartfugl og ýmislegt annað í þeim dúr. Þar kynntist ég síðan stelpu sem átti kokk fyrir móður og hún var alltaf að segja mér að fara í kokkinn. Þar sem bróðir minn var stöðugt að segja það sama heima í Færeyjum ákvað ég að slá til,“ segir Leif sem í kjölfarið hélt í matreiðslu- meistarnám til Danmerkur. Að námi loknu starfaði hann um tíma á veitingastaðnum Kommand- anten og var þar raunar þegar stað- urinn fékk, fyrstur norrænna veitingastaða, tvær Michelin- stjörnur. Kommandanten var þá und- ir stjórn meistarakokksins Francis Cardenau sem nú rekur sælkerastað- ina Le Sommelier og Umami í Kaup- mannahöfn. „Kommandanten þótti besti veitingastaður á Norðurlöndum á þessum tíma og það var gaman að upplifa það þegar hann fékk tvær stjörnur,“ segir Leif og viðurkennir að pressan hafi líka verið mikil. Hann hélt síðan aftur heim til Fær- eyja og er nú á þriðja ár liðið frá því hann opnaði sinn eigin veitingastað Gourmet við Vestaravág höfnina í Þórshöfn. „Ég vissi að það væru mikl- ir möguleikar í Færeyjum,“ segir Leif, en Gourmet hefur fengið góðar viðtökur hjá ferðalöngum sem og heimamönnum. Sjávarfang og skerpukjötsflögur Leif hefur líka verið ötull við að nýta færeyskt hráefni og færa í nú- tímalegan búning, sem líklega fellur í frjórri jarðveg en skerpu- og ræst- kjöt. „Sjávarfangið fæ ég beint frá sjómönnum við höfnina hér fyrir utan og eins hafa sumir þeirra samband við mig þegar þeir fá góðan fisk.“ Skerpukjötið ratar hins vegar í mjög litlu magni á matseðilinn. „Það verður þá að vera mjög þunnt, hálf- gerðar skerpukjötsflögur, því útlend- ingar geta ekki borðað það í miklu magni,“ segir Leif sem er duglegur að þróa nýja rétti og skiptir út mat- seðlinum mánaðarlega. Hann fylgist líka vel með því sem íslenskir veitingastaðir eru að gera. Fer árlega í heimsókn til Íslands til að kynna sér matarmenninguna. „Þá fer ég alltaf á staði eins og Vox og Sigga Hall á meðan hann var og hét. Gunnar [Karl Gíslason] á Vox vann raunar líka á Kommandanten, en við vorum þar þó ekki á sama tíma,“ seg- ir Leif og minnist á Hákon Örvarsson sem nú sér um veitingastaðinn Gló, sem hann kannast einnig við. „Við tókum báðir þátt í matarhátíðinni Nýja norræna eldhúsið árið 2004. Þá var ég að elda eitthvað færeyskt en hann var að vinna með skyr.“ Hörpuskel með harðfiskravíólí Stórar kartöflur, nóg fyrir fimm ravíólíkodda og í sósuna 1 egg, rauðan harðfiskur, í mjög litlu magni skötuselur, í mjög litlu magni 10 hörpuskeljar, Leifur notar færeyska hörpuskel 10 sveppasneiðar balsamedik smjör VIÐ hreinlega orguðum úr hlátri vinkonurnar þegar við fengum framreiddan hamborg- arann í skyndibitastaðnum við höfnina í Þórshöfn í Færeyjum. Árið var 1985, hamborgarinn með rauðkáli og við fimmtán ára gelgjurnar gátum ímyndað okkur fátt fáránlegra. Þegar ég átti síðan leið um Þórshöfn að nýju í kringum síð- ustu aldamót varð veitingastað- urinn Rio Bravo fyrir valinu hjá skipafélaginu sem vildi gera vel við gestina sem það var að kynna starfsemi sína fyrir. Á matseðlinum voru rækjukokteill og nýsjálenskt nautakjöt. Hvort tveggja fullkomlega ásætt- anlegt og ágætlega bragðgott, en engu að síður mörgum árum á eftir því sem þá var að gerast á íslenskum veitingastöðum. Það var því óvænt ánægja að kynnast sælkerahliðinni sem við blasti í heimsókn minni til Þórs- hafnar og nágrennis á dög- unum. Hefðbundin færeysk matarmenning lifir vissulega enn góðu lífi og heimamenn borða skerpukjöt, ræstkjöt og harðfisk með bestu lyst. Þeir eru sömuleiðis stoltir af lamb- inu sínu, bragðmiklu og þéttu kjöti sem gefur því íslenska ekkert eftir – stendur því raun- ar framar að mati Færeyinga sjálfra. Bræðingseldamennskan og alþjóðlegir matarstraumar ásamt nýrri nálgun á færeyskt hráefni eru hins vegar kærkom- in viðbót sem virðist lifa þar góðri sátt við gamla tímann. Út- koman er spennandi kokteill sem auðveldlega freistar ferða- manna. Rækjukokteill og rauðkál |laugardagur|20. 9. 2008| mbl.is daglegtlíf

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.