Morgunblaðið - 20.09.2008, Side 25
fylgir þeim sláturgerð hjá þeim sem
vilja búa í haginn fyrir sitt heimili.
Margir svíða ennþá hausa og lappir
heima, pækla kjöt og reykja. Til er
fólk sem hreinsar garnir og brytjar
í sperðla þó minna sé um það nú
orðið en heimareyktir magálar og
rúllupylsur eru alltaf í fullu gildi.
Þessi haustvinna stendur oftast út
október og þá fer menningarlífið að
blómstra enda kórastarfið þegar
byrjað og má þar nefna gangna-
mannakórinn sem söng í réttunum
við mjög góðar undirtektir rétt-
argesta. – Menn og skepnur koma
vel undan sumri.
heilsa
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 2008 25
595 10 00
www.heimsferdir.is www.vivacuba.se • www.cubatravel.cu
okkar hafa líka verið duglegir við
að hjálpa okkur, þetta er svona
skiptivinnufyrirkomulag.“
Alma er dugleg við að panta sér
húsmuni á E-bay og hún fer líka í
Góða hirðinn öðru hvoru.
„Stofusófinn er þaðan og þegar
hann var kominn heim, þá sáum við
járnplötu undir honum þar sem
stendur Alþingi 1940. Þannig að
þessi sófi hefur vermt margan þing-
mannsrassinn,“ segir Alma sem er
einstaklega listræn kona. Hún hef-
ur unnið verk í leir í mörg ár sem
og mósaík og málverk, en hún hefur
verið í myndlistarnámi hjá Stein-
unni Marteins undanfarin 14 ár.
Það nýjasta hjá henni er að ljósrita
myndir af málverkunum sínum á
efni og búa til púða úr þeim.
Gallerí eftir vinnu
„Ég bý til verk til að selja til að
geta safnað mér fyrir verkum eftir
aðra,“ segir Alma sem hefur mikinn
áhuga á íslenskri myndlist eins og
glögglega má sjá á heimili hennar
þar sem slík verk prýða alla veggi.
Alma selur listmuni sína í Gall-
eríinu Skinhope í Mosfellsbæ og að
sjálfsögðu smíðaði Bóas allar inn-
réttingar þar. Eftir að Alma hefur
sinnt vinnu sinni í Kaupþingi þá
stendur hún vaktina í galleríinu frá
klukkan fimm til sjö og líka á laug-
ardögum. Og hún lætur þetta
tvennt ekki duga, því hún er líka
með umboð fyrir pólsku húðvör-
urnar Ziaja.
„Við hjónin erum orðlögð fyrir að
vera orkumikil og vilja hafa nóg
fyrir stafni. Okkur fer bara að leið-
ast ef við höfum ekki verkefni.“
Morgunblaðið/Kristinn
Alþingissófasett frá 1940 Sófa-
settið fannst í Góða hirðinum, lamp-
inn á E-bay, en borðin smíðaði Bóas.
Verk eftir fjölda íslenskra myndlist-
armanna eru á veggjunum.
Samvinna Eldhúsborðið og skenkinn í stofunni smíðaði Bóas en leirskálina
bjó Alma til og er hún einn af ótal listmunum eftir hana á heimilinu.
„Ég bý til verk til að selja
til að geta safnað mér
fyrir verkum eftir aðra.“ www.skinhope.is
Lukka Ein trjákvenna Sæmundar
Valdimarssonar vakir yfir stofunni.
Baðherbergið Innréttingarnar smíðaði bóndinn og hann lét parketið flæða
upp á vegg til að veita rýminu hlýlegt yfirbragð.
Pétur Stefánsson sá ástæðu til aðgleðjast:
Kvöldið er fagurt og kyrrlátt og stillt.
Kötturinn sefur í stólnum.
Nóttin er framundan fjörug og villt.
Frúin er stigin úr kjólnum.
Bjarni Stefán Konráðsson greip
það á lofti:
Allsber er konan svo alsæl og trú,
einu þó búin að gleyma,
sem mikils er virði og mikilvægt nú:
hún man ekki að Pétur er heima.
Skömmu síðar barst vísa frá
Pétri:
Nóttin er komin og nú er ég rór,
nú er ég þjakaður dofa.
Nú er ég sybbinn og nú er ég sljór,
og nú er ég farinn að sofa.
Friðrik Steingrímsson í
Mývatnssveit orti þegar:
Á vísum Péturs vel það sést
og virðist hér með sannað,
að þeir sem gapa og gaspra mest
geta lítið annað.
Við það vaknaði Pétur:
Óðarsmiður er ég klár.
Öl og tóbak þigg ég.
Í ástarleikjum afar knár,
ýmsar konur ligg ég.
Við orðin tóm ég ekki sit,
á því margir kenna
– bæði hef ég vöðva og vit
og vinsældir meðal kvenna.
Þá Friðrik:
Málið harla augljóst er,
þú allan skalann spannar.
En sitja heima og hæla sér
harla lítið sannar.
Pétur kallaði Guð til vitnis:
Að belgja sig og brúka tuð
er barnalegur háttur.
Það sem ég geri, það veit Guð,
við það er ég alveg sáttur.
Friðrik orti að bragði:
Aftur tek ég allt mitt tuð,
öllu hætti stagli,
það er augljóst, það veit Guð
að þú ert hörku nagli.
Og Pétur prísaði sig sælan:
Nú er loksins frið að fá,
Friðrik hætti að bögga.
Loksins anda maður má
milli skæðra högga.
VÍSNAHORNIÐ pebl@mbl.is
Af kvöldi og kjólnum
Of feit börn, allt niður í áttaára gömul, fá lyf til að lækkablóðsykur, blóðþrýsting og
kólesteról, að því er Aftenposten
greinir frá. Tilfellum sykursýki 2
hefur fjölgað um 151,3 prósent með-
al barna í Bandaríkjunum frá árinu
2001.
Norskir læknar vara nú við þró-
uninni í holdafari yngstu kynslóð-
arinnar en þarlendum börnum fer
fjölgandi sem þurfa að nota lyf
vegna sjúkdóma sem eru afleiðing
offitu. „Þetta eru lyf sem eru ætluð
fullorðnum en eru gefin börnum í
minni skömmtum,“ segir Grethe
Støa Birketvedt, offitusérfræðingur
og yfirlæknir við Aker sjúkrahúsið í
Osló. „Fyrst og fremst er um að
ræða sykursýki 2, háan blóðþrýst-
ing, hátt kólesteról og nábít. Fyrir
10–20 árum urðum við ekki vör við
þessa sjúkdóma í tengslum við offitu
hjá börnum en núna greinum við þá
hjá börnum niður í átta ára aldur.“
Ekki vitað um langtímaáhrif
Støa Birketvedt segist mjög
áhyggjufull yfir því að börnum séu
gefin sömu lyf og fullorðnum. „Það
er óforsvaranlegt því við höfum
engar rannsóknir sem sýna áhrif og
aukaverkanir af slíkri meðferð á
börn. Þegar fullorðinslyf eru gefin
börnum getur það í raun leitt til
meiri skaða en gagns þegar til
lengri tíma er litið.“
Í sumar greindi New York Times
frá rannsókn á 600 þúsund börnum í
Bandaríkjunum yngri en 18 ára.
Niðurstöður hennar sýndu að frá
árinu 2001 hefur tilfellum sykursýki
2 fjölgað um 151,3 prósent meðal
barna. Að minnsta kosti tvær millj-
ónir bandarískra barna sem eru of
þung þurfa lyf við ofangreindum
lífsstílssjúkdómum. Stór rannsókn
sem gerð var í Osló árið 2004 á 3500
átta ára börnum og 3600 12 ára
börnum sýndi hins vegar að fjórði
hver þriðjibekkingur og fimmti
hver sjöundubekkingur þar þjáist af
offitu.
AP
Offita Lífsstílssjúkdómar greinast
nú hjá börnum niður í átta ára aldur.
Börnum gefin fullorðins-
lyf við lífsstílssjúkdómum
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111