Morgunblaðið - 20.09.2008, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 2008 27
SENN líður að því að
fjármálaráðherra kynni
fjárlagafrumvarp fyrir
næsta ár. Sú skoðun
virðist vera almenn að
stjórnvöld þurfi að sýna
sérstakt aðhald í rík-
isfjármálum á næsta ári
vegna þeirra þrenginga
sem hagkerfið er að
ganga í gegnum þessi
misserin. Hugsunin er
væntanlega sú að allir
þurfi að herða sultarólina þegar á
móti blæs, jafnt ríki og sveitarfélög
sem og fyrirtæki og heimili.
Þessi hugsun er gölluð að því leyti
til að hún tekur ekki tillit til sérstöðu
ríkisins hvað varðar fjárhagslegan
styrk. Ríkissjóður hefur
fjárhagslega burði til
þess að sigla í gegnum
öldudal eins og þann
sem við búum við á Ís-
landi í dag án þess að
hann lendi í fjárhags-
legum erfiðleikum.
Ríkissjóður er því í
þeirri stöðu að geta nýtt
sér þann slaka sem
myndast í hagkerfinu
þegar illa gengur hjá
einkageiranum til þess
að ráðast í verkefni sem
hann þyrfti líklega að greiða hærra
verð fyrir á þenslutímum þegar laun
og verð aðfanga er í hæstu hæðum.
Að þessu leyti er skynsamlegt fyrir
ríkissjóð að tímasetja viðhald og
verklegar framkvæmdir þannig að
þær aukist í niðursveiflu og minnki í
uppsveiflu.
Nú er líklegt að fjárlaga-
frumvarpið geri ráð fyrir að skatt-
tekjur ríkssjóðs muni dragast veru-
lega saman á næsta ári (a.m.k. að
raunvirði). Þar vegur þungt að
fjármagnstekjuskattur verður að lík-
indum miklu minni en hann hefur
verið undanfarin ár. En veltuskattar
og tekjuskattar munu líklega einnig
gefa eftir.
Til þess að skila fjárlögum með af-
gangi á næsta ári þyrftu stjórnvöld
því að draga verulega saman seglin á
öllum vígstöðvum. Ef stjórnvöld
gerðu það myndu þau í raun vera að
magna upp niðursveifluna í hagkerf-
inu. Fjármálastefna ríkisins væri þá
þannig að hún ýtti undir þenslu á
þenslutímum og ýtti síðan undir
kreppu á krepputímum. Hljómar
það eins og góð stefna?
Nei, góð fjármálastefna ríkisins
stefnir að því að skila fjárlögum
hallalausum að meðaltali yfir hag-
sveifluna en ekki endilega hallalaus-
um ár eftir ár. Þegar þensla er á rík-
issjóður að skila afgangi (eins og
hann hefur gert undanfarin ár). Þeg-
ar á móti blæs á ríkissjóður að skila
halla (eins og vonandi verður á
næsta ári). Með þessu móti er fjár-
málastefna ríkisins sveiflujafnandi
en ekki sveifluhvetjandi.
Ef ríkissjóður er rekinn með
þessu móti má segja að ríkið hjálpi á
krepputímum til við að koma hjólum
efnahagslífsins aftur í gang og komi
þannig í veg fyrir víðtækt atvinnu-
leysi. Skynsemi þess að haga rík-
isfjármálum með þessum hætti var
einn af stóru lærdómunum sem hag-
fræðingar lærðu af reynslu þjóða í
kreppunni miklu á fjórða áratug síð-
ustu aldar.
Undanfarin ár hafa stjórnvöld
safnað í kornhlöðurnar. Afgangur
hefur verið af rekstri ríkissjóðs ár
eftir ár og skuldir hafa verið greidd-
ar niður. Fjárhagsstaða ríkisins er
því með eindæmum sterk í dag. En
til hvers að safna í kornhlöður ef
ekki má ganga á þær birgðir þegar á
móti blæs? Eina vitið ef áfram held-
ur sem horfir og hagkerfið verður í
öldudag á næsta ári er að ríkissjóður
verði rekinn með halla með það að
augnamiði að draga úr öldudalnum
og hjálpa til við að koma hagkerfinu
aftur upp í hámarksafköst.
Eftir Jón Steinsson »… góð fjármála-
stefna ríkisins stefn-
ir að því að skila fjár-
lögum hallalausum að
meðaltali yfir hagsveifl-
una.
Jón Steinsson
Höfundur er lektor í hagfræði við
Columbia-háskóla í New York.
Fjárlög þegar á móti blæs
Lifandi fólk Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, var í líflegum félagsskap í virðulegum strætó frá árinu 1968 í gær þegar ný
forgangsakrein fyrir almenningssamgöngur var vígð á Miklubraut. Á eftir vagninum fylgdu nýmóðins vetnisbílar en á undan fór lúðrasveitin Svanur.
Golli Blog.is
Stefán Friðrik Stefánsson | 19. sept.
Uppsveifla á föstudegi
Mikið er það nú ánægju-
leg tilbreyting að sjá já-
kvæðan viðsnúning á
mörkuðum og vonandi er
þetta aðeins upphafið á
jákvæðum fréttum á
næstunni. Eiginlega hefur
það helst líkst svæsinni hryllingsmynd
að fylgjast með mörkuðunum að undan-
förnu og þróunin í þessari viku helst líkst
martröð. Því verða jákvæðu tíðindin allt-
af miklu notalegri í svona ástandi.
Meira: stebbifr.blog.is
Jóhann Björnsson | 18. sept.
Vodafone
brýtur á barni
Á neytendasíðu Dr.
Gunna í Fréttablaðinu 11.
september s.l. segi ég frá
samskiptum Vodafone við
15 ára ungling og hvernig
fyrirtækið sendir frá sér
villandi auglýsingu í sms-skilaboði og
nýtir sér þannig trúgirni og reynsluleysi
unglings. Forsaga málsins er sú að þann
3. ágúst s.l. keypti sonur minn 15 ára
gamall sér símatilboð hjá Vodafone sem
gekk út á það að hann gat hringt í fimm
vini sína ókeypis í einn mánuð og síðan
átti inneignin að gilda í sex mánuði. Um
það leyti sem tilboðsmánuðurinn er að
renna út og sonur minn er farinn að
huga að því að hann getur ekki lengur
hringt frítt í fimm vini sína berast sms-
skilaboð í síma hans frá Vodafone
Meira: …johannbj.blog.is
Á SÍÐUSTU dögum hefur
mikil umræða átt sér stað um
launadeilu ljósmæðra og ríkisins
ásamt dómsmáli sem beint teng-
ist þeirri deilu og snýr að mála-
ferlum vegna uppsagna 98 ljós-
mæðra. Undirritaður hefur lítið
getað tjáð sig um deiluna og þær
viðræður sem fram hafa farið
enda gera þau ákvæði laga nr. 80/
1938 er snúa að sáttastörfum í
vinnudeilum ráð fyrir að tilboð og
deiluefni sem eru til meðferðar
hjá sáttasemjara séu ekki rædd á opinberum
vettvangi. Þau lög eru ekki sett að ástæðulausu.
Það er vegna þeirrar reynslu að opinber um-
ræða um deiluefni í kjaradeilum leiðir oftar en
ekki til þess að deilan verður harðari en annars
þyrfti að vera og erfiðara getur reynst að ná
niðurstöðu í því sem mestu máli skiptir – þ.e.
samningunum sjálfum.
Samið við um 113 stéttarfélög – 7 eftir
Samninganefnd ríkisins hefur nú þegar sam-
ið við 113 stéttarfélög á þessu ári. Kjarninn í
þeim samningum hefur verið í samræmi við
kjarasamninga á almenna vinnumarkaðnum,
þ.e. jöfn hækkun að krónutölu hjá öllum aðilum
sem þar með hefur komið sér hlutfallslega best
hjá þeim sem lægstu launin hafa. Vissulega er
útfærsla samninganna misjöfn eftir aðilum en í
meginatriðum hefur lítið verið vikið frá því
grunnsjónarmiði sem lagt var upp
með þegar gengið var frá samn-
ingum við stéttarfélög innan ASÍ
og BSRB í maí og júní síðast-
liðnum.
Eftir að ljósmæður samþykktu
samning við ríkið í gær á eftir að
semja við sjö félög í þessari lotu.
Það eru læknar, lögreglumenn,
tollverðir, prófessorar, leikstjórar,
leikmynda- og búningahönnuðir og
hljóðfæraleikarar Sinfón-
íuhljómsveitar Íslands. Allir samn-
ingar sem gerðir hafa verið á
þessu ári eru til skamms tíma og
munu samningalotur hefjast á nýjan leik í
mars–apríl á næsta ári.
Horfa þarf á hlutina í samhengi
Undirritaður hefur talsvert legið undir ámæli
vegna kjaradeilu ljósmæðra. Hefur sjón-
armiðum verðandi mæðra verið haldið mjög á
lofti í fjölmiðlaumfjöllun en minna rætt um þau
grundvallarviðmið og markmið sem samn-
inganefnd ríkisins hefur haft í þessari samn-
ingalotu og getið var um hér að framan. Án þess
að nokkuð sé hallað á þau mikilvægu sjónarmið
sem fram hafa komið hjá hinum ýmsu hags-
munaaðilum í þessari tilteknu kjaradeilu má
ekki líta fram hjá því að ríkisvaldið verður að
horfa til heildarinnar og tryggja að mögulegt sé
að semja við þær stéttir sem eftir eru svo og að
halda frið gagnvart þeim fjölmörgu sem þegar
hafði verið samið við áður.
Málshöfðun vegna uppsagna
Síst minni umræða hefur verið um þá ákvörð-
un að hefja málaferli vegna hópuppsagna ljós-
mæðra og voru fjölmargir sem töldu það óæski-
lega eða óheppilega framkomu af hálfu
fjármálaráðherra. Þegar fjölmargar uppsagnir
ljósmæðra fóru að streyma inn, samtímis, í lok
júní s.l. voru strax gerðar athugasemdir af hálfu
fjármálaráðuneytisins og því komið á framfæri
að litið væri svo á að uppsagnirnar væru ólög-
mætar. Þar sem viðræður voru í gangi milli rík-
isins og ljósmæðra var ekki farið strax af stað í
málaferli enda ljóst að slíkt myndi hleypa auk-
inni hörku í málið. Uppsagnirnar áttu að taka
gildi í byrjun næsta mánaðar og þegar nokkuð
var liðið á þennan mánuð var ljóst að ekki væri
unnt að bíða lengur með að fara áfram með mál-
ið enda þyrfti Félagsdómur einhvern tíma til
þess að úrskurða hvort uppsagnirnar væru lög-
mætar eða ekki.
Lögin eru skýr hvað hópuppsagnir í
tengslum við kjaradeilur varðar og gildir þá
einu hvaða starfshóp er um að ræða, hvort það
eru ljósmæður eða lögfræðingar. Undirritaður
Eftir Árna M. Mathiesen » Fjármálaráðherra þarf að
tryggja að samningar náist
við 120 stéttarfélög. Allt samn-
ingar um störf sem eru mik-
ilvæg innan kerfisins.
Höfundur er fjármálaráðherra.
Árni M. Mathiesen
hefur ekkert val í því að horfa fram hjá því telji
hann einn starfshóp fara á svig við lög en ætla
síðan öðrum hópum að fylgja leikreglunum. Það
var því enginn annar kostur í stöðunni en að
höfða mál vegna hópuppsagna ljósmæðra. Það
var ekki gert af illkvittni eða ósanngirni – ein-
ungis til þess að farið væri að lögum. Málið
verður nú fellt niður þar sem deiluaðilar hafa
náð sáttum og hefur Ljósmæðrafélag Íslands
hvatt ljósmæður til þess að draga uppsagnir
sínar til baka. Vonandi verða sem flestar ljós-
mæður við því enda er starf þeirra mikilvægt og
þáttur þeirra innan heilbrigðiskerfisins afar
nauðsynlegur.
Niðurstöðu náð
Eftir tvö verkföll ljósmæðra lagði rík-
issáttasemjari fram miðlunartillögu sem báðir
samningsaðilar hafa nú fallist á. Er það mikill
léttir fyrir alla að ekki hafi komið til langvinnari
átaka milli aðila.
Fjármálaráðherra þarf að tryggja að samn-
ingar náist við 120 stéttarfélög. Allt samningar
um störf sem eru mikilvæg innan kerfisins.
Hvert einasta starf er hlekkur í langri keðju
sem öll þarf að hanga saman til þess að tog-
kraftur hennar nýtist þjóðarbúinu. Stundum
getur virst sem þröngsýni og skilningsleysi séu
allsráðandi þegar aðeins er horft á einn lítinn
hlekk keðjunnar en staðreyndin er sú að horfa
þarf til keðjunnar sem heildar. Þannig náum við
árangri.
Í kjölfar kjaradeilu ríkisins við ljósmæður