Morgunblaðið - 17.11.2008, Síða 17

Morgunblaðið - 17.11.2008, Síða 17
Daglegt líf 17 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. NÓVEMBER 2008 Fáðu þér áskrift á mbl.is/askrift eða í síma 569 1122 Miðinn fylgir Morgunblaðinu til áskrifenda/Moggaklúbbsfélaga mbl.is/moggaklubburinn 2 fyrir 1 á Traitor Mánudaginn 17. nóv. í Laugarásbíói eða Regnboganum mikið eins og þegar fitan sat um miðj- una. Þeir sem voru breiðastir um mittið voru í tvöfalt meiri hættu á að deyja snemma miðað við þá sem sem ÞEIR sem eru of þungir eiga á hættu að deyja fyrir aldur fram. Þeir sem eru með stóran maga eru í mestri hættu, samkvæmt niðurstöðum nýrr- ar, stórrar, evrópskrar rannsóknar. Vísindamennirnir vigtuðu og mældu mitti og mjaðmir 359 þúsund einstaklinga á aldrinum 25 til 70 ára í tíu Evrópulöndum. Tíu árum seinna sáu þeir að konur sem voru með lík- amsþyngdarstuðulinn 24,3 og karlar með stuðulinn 25,3 voru í minnstri hættu á að deyja fyrir aldur fram. Því meiri sem frávikin voru í báðar áttir frá miðgildinu, þeim mun meiri hætta var á að deyja fyrir aldur fram. Vísindamennirnir mældu einnig mittis- og mjaðmamál. Niðurstaðan var greinileg og eins hjá báðum kynj- um: Stór magi styttir lífið. Að vera með breiðar mjaðmir dró einnig úr líkunum á langri ævi en ekki jafn- voru með fituna jafnt dreifða um lík- amann. Miðað er við að mittismál karla sé ekki meira en 94 til 102 cm og kvenna 80-88 cm. Tími til kominn að bregða málbandinu um mittið V ínþjóðin Frakkar hefur tekið upp á því að bjóða upp á vínmeð- ferð, vinothérapie, en þó í allt öðrum skiln- ingi en við eigum að venjast. Fyr- irtækið Caudalie hefur þróað að- ferðir þar sem vínberjanæringin og steinarnir er nýtt í ýmiss konar bakstra og böð sem hressa upp á líkama og sál. Varla er hægt að hugsa sér ákjósanlegri stað fyrir heilsulind sem býður upp á vínmeðferð held- ur en hinar fögru vínekrur Langhe í Piemontehéraði, en hinar vínvið- arþöktu hæðir svæðisins eru með þeim fegurstu í heimi og vínið að sama skapi margrómað, sbr. neb- biolo, dolcetto, barbera, favorita o.fl. Í heilsulindinni í San Maurizio er hins vegar boðið upp á „vín í formi unaðar- og vellíðunarathafna á borð við Bain barrique, heitt vatnsbað blandað smátt muldu berjahrati, Bain à la vin rouge, vatnsnudd með krafti úr rauðum vínvið og hinn ómótstæðilega bakstur, Gommage crushed caber- net, þar sem líkaminn er nuddaður upp úr blöndu af vínberjasteinum, hunangi, hrásykri og olíum. En af hverju vínmeðferð? Virk efna- sambönd sem finna má í vínberja- hýði (pólífenól), og eru öflug andox- unarefni, og sameindin reservatról, sem finnst í vínvið og talin er hafa margþætt jákvæð áhrif á mannslík- amann, sameinast sem öflugt nátt- úrulegt móteitur gegn öldrun húð- arinnar í hinum ýmsu vínmeðferðum og húðvörum þar sem hinar góðu dyggðir náttúrunn- ar hafa verið beislaðar. Á slóðum Cesare Pavese Eins og fram hefur komið stend- ur heilsulindin í vínhæðum Langhe, nánar til tekið beint fyrir ofan bæ- inn Santo Stefano Belbo, þar sem einn af merkustu ítölsku rithöf- undum síðustu aldar, Cesare Pa- vese, fæddist hinn 8. september 1908. Þess má geta að við opnun heimasíðu heilsulindarinnar blasir við eftirfarandi tilvitnun í Pavese: „Við munum aldrei eftir dögunum, bara augnablikunum.“ Eitt er víst að maður gleymir seint þeirri unaðstilfinningu sem vínberja- steinabakstur veitir líkama og sál, og við það að sitja á sólbaðssvölum staðarins, með bakið upp við fornan klausturmúrinn og bylgjandi græn- ar vínhæðirnar fyrir augum, gufa allar áhyggjur upp eins og dögg fyrir sólu og á því andartaki virðist heimurinn bara gjöfull og traustur. Ekkert skrýtið að Cesare Pavese yrði tíðrætt um hinar heittelskuðu hæðir æskuslóðanna í ritverkum sínum. Eftirfarandi er hins vegar síðasti hluti ljóðsins Hvellur í Pie- monte eftir Jónas Þorbjarnarson úr ljóðabókinni Tímabundið ástand: Ég hef hjólað langt ... Cesare Pavese sem allra skálda heitast og fegurst hefur unnað þessum hæðum hann ákvað jafngamall og ég núna að setja punktinn: kúlu Ljóðið er sannsögulegt að því leyti að hinn frábæri rithöfundur batt enda á líf sitt einungis 42 ára gamall. Í ár eru hins vegar hundr- að ár liðin frá fæðingu Pavese og í tilefni þess stendur stofnun Cesare Pavese í heimabæ hans, S. Stefano Belbo, fyrir ýmsum viðburðum út þetta ár, s.s. ráðstefnum, kvik- myndasýningum, tónleikum og gönguferðum um hæðirnar með til- heyrandi upplestrum úr ýmsum þeirra verka Pavese er tengjast stöðunum sem gengið er um. Leitt að heilsulindin skuli ekki vera einn af þeim stöðum sem Pa- vese rómar í skáldverkum sínum og ljóðum, en hann hefði án efa kunnað að meta hina hlýlegu stemningu viðarins og hins þurra steins sem saman mynda notalegt skjól þar sem maður getur sæst við rytma náttúrunnar og fullnægt þrám sem oft eru virtar að vettugi í glundroða hversdagsins. Það er sérlega viðeigandi að vínkjallara hins gamla klausturs, þar sem áður bjuggu munkar, hefur nú verið breytt í vín-heilsulind (eno- thermarium), hljóðlátt og töfrandi athvarf sem endurspeglar söguna og miðlar virðingu gagnvart örlæti sveitarinnar. Móðurstöð Caudalie-heilsulind- anna er staðsett í Bordeaux í Frakklandi. Hinar tvær heilsulindir Caudalie (fyrir utan San Maurizio) eru á Marques de Riscal hótelinu í Elciego á Spáni og nú í október opnaði Caudalie fjórðu „vínmeð- ferðarmiðstöð“ sína á Plaza- hótelinu í New York. Vínmeðferð og heilsumeðferð Hæðirnar Hinar heittelskuðu hæðir Pavese í Frakklandi umlykja heilsulindina Relais San Maurizio. Hanna Friðriksdóttir brá sér í lok vínupp- skerutímans í heilsu- lindina í Relais San Maurizio í Piemonte- héraði á N-Ítalíu, þar sem ein af fjórum heilsulindum Caudalie er starfrækt í fyrrum klaustri frá 17. öld. Til sölu Hluti vörulínu Claudalie með vínekrur Langhe í baksýn. Morgunblaðið/Hanna Friðriksdóttir Lúxus Einn af „sérréttum hússins: Gommage crushed cabernet: bakstur eða nudd upp úr blöndu af vínberjasteinum, hrásykri, hunangi og olíum. TENGLAR ..................................................... www.relaissanmaurizio.it www.sources-caudalie.com www.santostefanobelbo.it/english/ pavese_corpo1.htm Bumba stórhættuleg heilsunni Morgunblaðið/Sverrir Nauðsynleg mæling Fita um mittið og milli líffæra í kviðarholinu hefur verri afleiðingar fyrir heilsuna en fita annars staðar á líkamanum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.