Morgunblaðið - 17.11.2008, Side 22

Morgunblaðið - 17.11.2008, Side 22
22 Umræðan MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. NÓVEMBER 2008 EF EINHVERN tímann er mikil þörf á að nýta hráefnið okkar betur og minnka um leið skaðleg áhrif á um- hverfið okkar, þá er það nú á niðursveiflutímum. Það færist í vöxt að fyrirtæki hér á landi taki upp gæðakerfi og umhverfisstjórnunarkerfi, þar sem stór þáttur er að nýta vel hráefnið og skila afgöngum og restum flokkuðum til endurvinnslu og eyðingar. Flokk- un úrgangs og endurnýting á hráefni er mikilvæg til að viðhalda hringrás- inni. Einnig er í slíkum umhverfiskerf- um og gæðakerfum lögð rík áhersla á að minnka orkunotkun svo sem rafmagns-, olíu- og vatnsnotkun. Þetta á við í öllum greinum atvinnulífsins og ekki er síst þörfin í sjávarútvegi þar sem við getum gert enn betur við að nýta hráefnið og vinna það með hreinni framleiðslutækni. Það hafa verið tekin stór skref til framtíðar í lífrænni ræktun á Ís- landi og hreinni fram- leiðslutækni er varla til og vörur frá viðkomandi framleiðendum eru í háum gæðaflokki og eru bragðgóðar. Iðnaðurinn sem ofast byggir á inn- fluttu hráefni getur enn aukið nýt- ingu hráefnis og skil til endurvinnslu og eyðingar. Þar geta fyrirtækin byrjað að stíga sín fyrstu skref með því að taka upp „létt“ umhverfiskerfi. Fengið ráðgjafar- eða vottunarfyr- irtæki til að taka með sér skref fyrir skref í að breyta framleiðslutækni og breyta strúktúr fyrirtækisins í um- hverfisvænni átt. Verslun, þjónustugreinar og ann- arskonar fyrirtækjarekstur er ekki undanskilin og allir geta tekið á um- hverfismálunum í sínum ranni. Auðvitað reyna íslensk fyrirtæki að nýta sitt hráefni vel, en betur getum við gert ef framleiðslan er keyrð eftir viðurkenndum gæða- eða umhverf- iskerfum, ekki síst þar sem mikil starfsmannavelta er. Undirritaður hefur talsverða reynslu af umhverfismerkinu Svan- inum. Þar kom okkur mest á óvart hvað slík vottun hafði víðtækari áhrif á rekstur lítils fyrirtækis en okkur grunaði. Þar er kannski helst að nefna að slíkt kerfi er mikið gæða- kerfi í leiðinni og er gott stýritæki í rekstrinum, ásamt því að nýting hrá- efnis jókst verulega. Lýsandi dæmi um nýtingu hráefnis sem ég nefnt oft hér að ofan er að kerfið hefur kennt okkur að nýta pappírinn betur og skila honum hreinni frá okkur til endurvinnslu. Frá því að við tókum upp Svaninn ár- ið 2000 hefur pappírsúrkast minnkað um 7-9%. Það er há tala og ekki síst þegar fyrirtæki eru að nota hundruð tonna af hráefni. Með því að hafa áhrif á hönnun er möguleiki að efni sé betur nýtt og það á við í öllum atvinnugreinum að halda sig eins nálægt staðli og hægt er. Án þess að ég hafi þekkingu á hvernig því er háttað, þá ættu umhverfismálin að vera stór þáttur í námi sem tengist almennri hönnun. Í okkar tilfelli er hráefnið pappír. Við notum í okkar framleiðslu um 80% umhverfis- merktum pappír, með Svansmerkinu, ásamt öðrum viðurkenndum merkj- um eins og Evrópublóminu eða við- urkenndan pappír af Svansmerkinu. Slíkur pappír kemur úr nytja- skógum sem eru endurræktaðir og pappírinn er unninn í pappírsmyllum sem nota hreina framleiðslutækni. Það er því mikilvægt að pappír sé áfram unninn á hreinan og vel nýt- anlegan hátt eða án skaðlegra efna eins og hægt er. Því er hann mjög gott afgangshráefni til endurvinnslu. Hringrásinni er þannig náð án verulegrar fyrirhafnar. Íslensk fyrirtæki eiga eftir að sigla inn í erfiða tíma á næstu misserum. Því tel ég að huga þurfi að þessum málum sem ég nefni hér í fáum orð- um, sem hefur fjárhagslegan og um- hverfislegan ávinning í för með sér, og ímynd fyrirtækjanna vex enn frek- ar. Oft var þörf, nú er nauðsyn Ólafur Stolzenwald skrifar um nýtingu hráefnis og hreina framleiðslutækni »Með því að hafa áhrif á hönnun er mögu- leiki að hráefni sé betur nýtt og það á við í öllum atvinnugreinum að halda sig eins nálægt staðli og hægt er. Ólafur Stolzenwald Höfundur er prentsmiðjustjóri hjá umhverfismerktri prentsmiðju. ÁKVÖRÐUN mið- stjórnar Sjálfstæðis- flokksins síðastliðinn föstudag um að sam- þykkja tillögu for- mannsins, Geir H. Haarde, að efna til víð- tækrar stefnumótunar í Evrópumálum og flýta landsfundi til loka jan- úar er til marks um hversu mikið hef- ur breyst á skömmum tíma í sam- félagi okkar. Þær efnahagslegu hamfarir sem skollið hafa á þjóðinni kalla á víðtækt endurmat á stöðu okkar og hags- munum. Ísland er nú í breyttum heimi. Hvernig styrkjum við heimilin í landinu, hvernig ætlum við að byggja upp íslenskt atvinnulíf á nýjan leik samhliða því að við metum hvern- ig hagsmunir íslenskrar þjóðar verði best tryggðir á alþjóðavettvangi? Þar verður m.a. að vega og meta þann möguleika hvort hagsmunum Íslands sé best borgið með aðild að ESB. Er það einnig í samræmi við það sem fram kemur í landsfundarályktun Sjálfstæðisflokksins í apríl 2007. Kalt hagsmunamat verður að ráða för þeg- ar um hagsmuni íslensku þjóðarinnar er að ræða. Því höfum við lofað. Umræður um tengsl Íslands og Evrópusam- bandsins eru ekki nýjar af nálinni, þær hafa ver- ið fyrirferðarmiklar jafnt innan Sjálfstæðis- flokksins sem í almennri þjóðfélagsumræðu undanfarna tvo áratugi. Segja má að þær hafi hafist af fullum þunga er viðræður hófust um að- ild EFTA-ríkjanna að innri markaði Evrópu- sambandsins sem lauk með samningnum um Evrópska efnahagssvæðið er und- irritaður var í Portúgal í maí 1992. Aðild Íslands að Evrópska efna- hagssvæðinu var langt í frá óum- deild. Um hana spunnust heift- arlegar deilur rétt eins og þegar Ísland gerðist aðili að EFTA árið 1970. Þeir sem lögðust gegn samn- ingnum töldu hann vera aðför að sjálfstæði þjóðarinnar, ógna land- búnaði jafnt sem sjávarútvegi og há- værar kröfur voru uppi um þjóðar- atkvæðagreiðslu, m.a. af hálfu verkalýðshreyfingarinnar. Það var því alls ekki sjálfgefið að Ísland gerðist aðili að EES og sú mikla harka sem einkenndi deilur um samninginn sýnir glöggt hversu við- kvæm Evrópumálin eru í þjóðmála- umræðunni. Ljóst var á þessum tíma að ekki var pólitískur vilji fyrir hendi til að ganga skrefinu lengra og fylgja hinum Norðurlandaþjóðunum inn í sambandið. Skoðanir eru og verða áfram skipt- ar um hversu langt beri að ganga í Evrópumálum. Umræðan verður hins vegar að fara fram og mikilvægt er að sem flestir leggi þar lóð sitt á vogarskálarnar. Í því mikla og spenn- andi starfi sem nú er að fara í gang innan Sjálfstæðisflokksins ætlum við að vega og meta hagsmuni íslensku þjóðarinnar í nútíð og framtíð á sem breiðustum grunni. Með lýðræðis legri umræðu þar sem allir geta átt aðkomu hyggjumst við leiða þetta mál til lykta innan flokksins. Slík ákvörðun verður eingöngu tekin á landsfundi. Framundan eru spennandi tímar í starfi Sjálfstæðisflokksins og ég vil hvetja alla sjálfstæðismenn að koma að þessari vinnu og leggja sitt af mörkum við þessa mikilvægu stefnu- mótun. Við skulum virkja grasrótina í þessari stærstu og lýðræðislegustu stjórnmálahreyfingu landsins. Ég veit að umræðan verður heit og að stundum verður hart deilt. Við vitum að skoðanir eru og verða skiptar en jafnframt að við munum ná niður- stöðu, þar sem hagsmunir Íslands til framtíðar verða fyrst og síðast lagðir til grundvallar. Tökum þátt Umræðan um Evr- ópumálin verður að fara fram segir Þor- gerður Katrín Gunnarsdóttir » Skoðanir eru og verða áfram skiptar um hversu langt beri að ganga í Evrópumálum. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Höfundur er menntamálaráðherra. Ríkisstjórnin sem tók við í fyrra sett börnin í forgang og í ágúst kynnti heilbrigðisráðherra sér- stakar aðgerðir til að auka þjón- ustuna við börn með geðsjúkdóma. Margir hafa sjálfsagt haldið að þarna væri á ferðinni enn eitt átakið sem myndi fjara út eftir nokkra mánuði og gleymast. Reyndin varð önnur því biðlistar eftir þjónustu hafa styst og styst og fyrir nokkru heyrði ég uppörv- andi viðtal við geðlækni á BUGL sem sagði að biðlistarnir væru enn að styttast. Ég man ekki eftir að börnin á BUGL hafi í annan tíma átt sér öflugri málsvara en núver- andi heilbrigðisráðherra. Það ber að þakka. Það var einnig mjög ánægjulegt að sjá það á dögunum að loksins, loksins, er risin ný og glæsileg göngudeildarbygging á Dalbraut fyrir börn og unglinga. Það er al- veg ljóst að yfirlýsingarnar um að setja börn með geðraskanir í for- gang eru ekki orðin tóm, að minnsta kosti er það ekki skiln- ingur Guðlaugs Þórs Þórðarsonar. TÓMAS HAFLIÐASON, Mosarima 13, Reykjavík. Fyrir börnin á BUGL Frá Tómasi Hafliðasyni ÞJÓÐFÉLAGIÐ okkar er mjög upptekið af fjármálakreppunni um þessar mundir, enda ástæða til. Margir eiga um sárt að binda, eru hræddir og vilja fá lausn mála sinna. Íslendingar krefjast úrræða og eru samt neyddir til að vera í eins konar „biðstöðu“ meðan óvissuástand rík- ir. Margt fólk er að ganga í gegnum erfiðleika sem tengjast ekki fjár- málakreppunni, eins og sjúkdóma, skilnaði eða missi ástvina. Hælisleit- endur á Íslandi tilheyra þessum hópi. Frá sl. sumri hefur verið frek- ar mikil umræða um málefni hæl- isleitenda. Þrátt fyrir hana hafa grundvallaratriði í hælismálum ekki breyst til hins betra. Hjá þeim er viðvarandi óvissuástand frá fyrsta degi á Íslandi þar til máli þeirra er ráðið til lykta, en það getur tekið mörg ár. Þrír hælisleitendur hafa verið í hungurverkfalli frá 1. nóvember sl. Þeir eru allir karlmenn frá Asíu- eða Afríkuríkjum og hafa dvalist á gisti- heimili í Reykjanesbæ í tvö til fjögur ár. Þeir segja: „Við vorum búnir að bíða tvö, þrjú, fjögur ár en ekkert gerðist. Við þáðum smá vasapeninga og föt frá öðru fólki og búum í gisti- heimili þar sem fjölskylda okkar er ekki. Við getum ekki lært eða unnið þó að við viljum það gjarnan. Við er- um jú þakklátir fyrir aðstoð og vel- vilja, en samt er slíkt ekki líf sem við viljum.“ Þeir vita að íslenska þjóðfélagið er núna að glíma við mjög sérstaka erf- iðleika en segja jafnframt að að- stæður heimalöndum þeirra séu slæmar þar sem mannréttindi og réttlæti eiga undir högg að sækja og þess vegna urðu þeir að flýja þaðan. Þeir komu til Íslands til þess að lifa af, en hérna þurfa þeir áfram að glíma við annars konar erfiðleika. Með hungurverkfallinu eru þeir að vonast til að fá almennilegt dval- arleyfi á Íslandi og vekja athygli á aðstæðum sínum. „Okkur langar ekki í ráðstafanir til bráðabirgða. Slíkt ferli er nú orðin óþolandi pína fyrir okkur. Við þolum tvö, þrjú ár af þessari óvissu en við getum ekki þol- að þessar aðstæður áfram mörg ár til viðbótar.“ Sem prestur innflytjenda og einn- ig sjálfboðaliði hjá öðrum samtökum fer ég oft í heimsókn til þeirra. Ég hef þekkt þá í langan tíma enda hafa þeir verið á gistiheimilinu nokkur ár. Það er ýmislegt sem við getum rætt sem vinir. Ég ætla ekki að mæla með því að þeir haldi áfram í hung- urverkfallinu, en mér finnst hins vegar þeir hafa margt til síns máls, sem nauðsynlegt er að skoða. Það er engin ástæða til þess að fólk þoli óvissu og stöðnun í lífi sínu í mörg ár, þegar það kemur og leitar hælis á Íslandi. Okkur ber að hjálpa til við að gera aðstæður sem mannúðleg- astar fyrir þessa einstaklinga. Hvað stendur í vegi okkar? Í tilvikum þessara manna hefur engin veruleg ástæða til brottvís- unar fundist á seinustu árum. Er þá ekki réttara að veita þeim dval- arleyfi með skyldum og ábyrgð sem í því felst að vera löglegur íbúi í land- inu, fremur en að koma fram við þá eins og stofufanga? TOSHIKI TOMA, prestur innflytjenda. Viljum við valda „löglegri“ þjáningu? Frá Toshiki Toma Bréf til blaðsins Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík  Bréf til blaðsins | mbl.is PÓLITÍK og fag- mennsku hefur verið stillt upp sem andstæð- um í umræðu um ný bankaráð hinna end- urreistu ríkisbanka. Það er vafasöm nálgun. Eftir að búið er að kafkeyra fjármálakerfi landsins með jafn hrikalegum afleiðingum og raun ber vitni, heyrist talað um hættuna sem stafi af því að hleypa Alþingi að stjórn bankanna. „Bankaráðin flokkspóli- tísk á ný“ segir í fyrirsögn Frétta- blaðsins fyrir nokkrum dögum. Vand- lætingartónninn er augljós. En hverjir hafa stýrt bönkunum síðustu fimm árin eða síðan þeir voru einkavæddir? Eru það ekki fagmenn: Hagfræðingar og verkfræðingar, fólk með alls konar gráður og stimpla upp á vasann sem fagmenn í peningamál- um eða þá menn með áratuga reynslu úr fésýslu; fagmenn úr lífsins skóla. Er ég þá að segja að það sé jafnvel slæmt að hafa aflað sér reynslu eða menntunar á fjármálasviðinu? Nei, ég er að segja að fag- mennska án gagnrýn- innar hugsunar sé slæm og að fagmennska og eiginhagsmunir rími illa saman. Það er kjarni máls. Byrjað að sjá til sól- ar? Þessa dagana heyrum við að mjög mismunandi sjónarmið eru uppi á meðal hagfræðinga um lausnir á efnahagsvand- anum. Það er góðs viti. Byrjað að sjá til sólar út úr þokunni. Múghyggjan er aldrei varasamari en þegar hún birtist okkur sem vísindi. Einstaklingur sem kann að hlusta á mismunandi sjónarmið og hefur til að bera dómgreind til að vega og meta markmið og mismunandi leiðir til að ná þeim, kann að vera betri stjórnandi en sá sem kann fagið en skortir dómgreindina. Svo getur þetta tvennt farið saman. Ég fagna auknum lýðræðislegum áhrifum í fjármálalífinu. Stjórn- málaflokkarnir endurspegla mismun- andi viðhorf í þjóðfélaginu. Með að- komu þeirra er ólíklegra en ella að einsleit hugsun verði ríkjandi við Ögmundur Jón- asson fjallar um bankaráð og end- urreisn bankanna Ögmundur Jónasson »Múghyggjan er aldrei varasamari en þegar hún birtist okkur sem vísindi. Höf. er alþingismaður. stjórn bankanna eins og verið hefur. Forðumst mistök fortíðar Hitt þarf að vera kristaltært, að þetta á ekki að vera fortíðin með sín- um mistökum upp á nýtt! Mistök, sem kunna að hafa verið gerð fyrr á tíð, á ekki að endurtaka heldur verð- ur að tryggja í hvívetna heiðarleg og opin vinnubrögð þar sem við- skiptavinir banka eru hvorki látnir njóta né gjalda flokkstengsla. Það má aldrei gerast. Aldrei. Slíka drauga eigum við að skilja eftir í gröfinni. Endurreistir bankar í almannaeign verða að lúta ströngu og lýðræðislegu aðhaldi frá almannavaldinu. Auðvald- ið hefur sýnt okkur hversu vanmegna það er – og ófaglegt ef því er að skipta. Niðurstaðan er sú að fjölbreytni í viðhorfum er eftirsóknarverð. Það eru fagleg vinnubrögð líka. Próf- gráður tryggja hvorugt. Pólitík eða fagmennska?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.