Skinfaxi - 01.12.1932, Qupperneq 35
SKINFAXI
187
Skíðaiðkun og skíðanámskeið
í ísafjarðarkaupstað.
Skíðafar hefir allmikið verið iðkað liér í ísafjarðar-
kaupstað þrjá undanfarna vetur. Eu um langt skeið
áður voru það aðeins sárfáir menn, sem nokkuð
sinntu slíku eða liöfðu hug á því. Hefir það mest
orðið þessari íþrótt til eflingar, að tveir þrautgóðir
skíðamenn (Aðalsteinn Jónsson og Ólafur Guð-
mundsson) byggðu sumarið 1930 lítinn skála á Selja-
landsdal, sem liggur nokkru innan við hæinn og
liærra uppi, til atlivarfs fyrir skíðaiðkendur.
Brá svo við þá um haustið, að allmargt unglings-
fólk úr bænum tók að nota tómstundir sínar til skiða-
fara á Seljalandsdal, nær sem færi gafst.
1 fyrrasumar var liúsið umhyggt og stækkað all-
mikið. Það er sem áður skáli, að fornum, ísleuzk-
um hætti, og skiptist i matskála (eða stofu), elda-
skála, og framhýsi. — Margt skíðafólk vann meira
eða minna við það, að koma skálanum upp, og gerð-
ust þeir, sem að byggingunni unnu, meðeigendur í
hlutfalli við framlagða vinnu.
Byggð þessi kallast Skíðheimar. Er þar skíðaland
ágætt, víðsýni og fagurt umhorfs, enda liggur dal-
urinn liátt, svo að Skiðlieimar munu vera um 200
metrum yfir sjávarmál.
Síðastliðinn vetur efndi Ungmennafélagið Árvakur
til skíðanámskeiðs hér í Isafjarðarkaupstað og fékk
að kennara Norðmanninn Helga Torvö. Er hann einn
hinna slyngustu sldðamanna, og áður þátttakaudi i
skíðakappmótum í Holmenkollen við Osló. Tvo síð-
astliðna vetur hefir liann lagt stund á skíðakennslu
hér á landi. Námskciðið var ágætlega sótt; 157 þátt-