Skinfaxi - 01.12.1932, Qupperneq 36
SKINFAXI
188
takendur: Börn og unglingar á skólaaldri og full-
orðið fólk, bæði kvenmenn og karlmenn. Stóð nám-
skeiðið yfir mánaðar tíma, frá byrjun marzmánað-
ar og þann mánuð út.
Skíðamót fyrir þátttakendur námskeiðsins var
haldið annan páskadag, við Skíðheima á Seljalands-
dal. Var kcppt þar i skíðahlaupi á allnokkurri vega-
lengd. Enda hafði kennslan nálega öll farið þar fram,
þvi að snjólaust reyndist nær bænum. Keppendur
voru 84 og skiptust í 6 flokka eftir aldri. Fjórir flokk-
ai* karlmanna og drengja, og tveir kvenflokkar.
Fyrslir í hverjum þessara flokka urðu: Guðmundur
Gíslason (frá Ungmf. Mýrahrepps), Villielm Jónsson,
Sigríður Jónsdóttir, Ingibjörg Jónsdóttir, Högni Jóns-
son og Hörður Ólafsson.
Sambliða þessu móti fór og fram lceppni í skíða-
lilaupi milli deilda gagnfræðaskólans hér, log var
Iceppt um grip nokkurn, veggspjald útskorið. Bæði
gagnfræðaskólanemendur og skátar liér liafa og lagt
nokkra stund á skíðafar út af fyrir sig.
ÖJlum ungmennafélögum i Héraðssamb. Vestfjarða
var gefinn kostur á þátttöku í þessu námskeiði.
Nú í vetur liefir U. M. F. Árvakur fyrirhugað ann-
að námskeið og aftur ráðið Helga Torvö til kennsl-
unnar. Hyggja bæði félagar Árvakurs og mikill þorri
manna ]iess ulan bið bezta til þess.
Það, sem þegar er getið um skíðaiðkun hér i ísa-
fjarðarkaupstað, og aðgerðir U. M. F. Árvakurs, er
og sagt öðrum kaupstaða- og sveitafélögum, — og
þó einkum ungmennafélögum, — til eftirbreytni og
hvatningar, svo að nokkru meira mætti vinnast jiess-
ar liollu og þjóðþörfu íþrótt til eflingar.
Guðmimdur frd Mosdcd.