Skinfaxi - 01.12.1932, Qupperneq 39
SKINFAXI
191
muni finna góðan jarðveg og hjálpa lil þess að klæða
landið á ný.
Kléb’ergi 1932.
Sigurður Helgason.
Bækur.
Sayan af Svanhvít karlsdóttur heitir barnabók nieð mynd-
uni, er koin út árið 1931. Bók þessi er skrifuð á ljósu og lipru
máli og er aðlaðandi að efni og mun eiga fyrir sér að verða
vinsæl meðal barnanna.
Ilalldór Grímsson (12 ára).
Sveinbjörn Ec/ilson: Ferðaminningar. Frásögur frá sjóferð-
um víða um heim. Útgefandi Þorsteinn M. Jónsson. — Bók
þessi hefir komið út í heftum og verið nokkur ár á leiðinni.
Nú er komið út 4. hefti II. bindis og er útgáfunni þar með
lokið. Kvað þetta vera lengsta sjóferðahók á Norðurlöndum,
og sennilega eru ekki aðrar skemmtilegri, því að Sveinbjörn
hefir sérstakt lag á að halda athygli lesenda vakandi.
Auk Ferðaminninganna hefir Þ. M. J. gefið út í hausl
Sluðlamál III., vísnasafn eftir 22 alþýðuskáld, og (i. hefti af
þjóðsagnasanfinu Grinm. í Stuðlamálum eru íriargar prýði-
legar visur, og er gott verk að gefa út slikt safn af vísum
alþýðuskálda. En ánægju lesandans er spillt með ritdómum
þeim, er safnandinn, Margeir Jónsson, lætur fylgja hverjum
visnahöfundi. Lesándinn vill dæma sjálfur. — í Grímuheft-
inu er mestur fengur í þættirium af Friðriki í Kálfagerði.
R. Friis: Tveir vinir. Rvík 1932. — Þetta er snotur og
skemmtileg barnasaga, sem Þorvaldur Kolbeins prentari hefir
þýtt úr dönsku og gefið út. Er hún prýdd myndum eftir Rik-
arð Jónsson. Telja má víst, að bókin verði vinsæl, eigi sizt
meðal drengja.
Skinfaxa hafa verið sendar tvær hækur, sem bókmennta-
félagið Varðin í Færeyjum hefir gefið út. Annað er Úrvals-
rit eftir M. A. Winther sýslumann (d. 1923), með mynd af
höf. og ritgerð um hann eftir M. A. Jacobsen bókavörð. Þetta
er mestmegnis smásögur og sögubrot, prýðilega skrifað og
gefur snilldarlega innsýn í kjör og lrugsanagang færeyskrar