Skinfaxi - 01.12.1932, Síða 40
192
SKINFAXI
alþýðu. Einkum eru börn og smælingjar dregin Ijóslifandi
og af hjartanlegri samúð. Skal bent til dæmis á sögurnar:
„Daddan“, „Móðir og sonur“ og „Tá ið Mikkjal gekk til“,
einstaka sögur eru spreng-hlægilegar, þó að víðast beri meira
á alvöru. — Hin bókin er: Platon: Verjuröða Sókratessar —
Iíriton — Faidon, og hefir skáldið J. H. 0. Djurhuus þýtt úr
grísku á færeysku. — Báðar bækurnar eru í vandaðri útgáfu.
Þær fást í Bókaverzlun E. P. Briem i Reykjavík.
Naturens Vidundere heitir mánaðarrit um náttúrufræði,
sem nýlega er byrjað að koma út í Danmörku. Ritsjóri þess
er magister Ingvald Lieberkind, en hann skrifar flestum mönn-
um skemmtilegar og alþýðlegar um náttúrufræði. Rit þetta er
afarvandað að öllum frágangi, prentað á gljápappír og mcð
i'jölda glæsilegra mynda. Hvert hefti er 24 bls. í 4 bl. broti
og kostar eina danska krónu fyrir áskrifendur.
Guðmundur Davíðsson á Þingvöllum, fyrrum sambands-
stjóri, hefir sent Skinfaxa tvo bæklinga, sem hann hefir gefið
út, og eiga báðir erindi til æskumanna. Annað er H a n d b ó k
fyrir almenning einkum nemendur alþýðuskólanna, — sam-
safn af geysi margvíslegum fróðleik, sem oftlega þarf að nota.
Hún kostar kr. 2,50. — Ilitt er lítill pósi, 3(5 bls., Náttúru-
v e r n d, I. bók. Er bókin ætluð til skilningsauka á verndun
villtrar náttúru, og til styrktar náttúruverndarfélagi, er G.
D. hyggst að stofna, og er þess þörf. Pési þessi er hinn
þarfasti og flytur ágætar bendingar, m. a. glögga leiðbein-
ingu um skóggræðslu.
8. desember í ár eru liðin 100 ár síðan Björnstjerne Björn-
son fæddist, stórskáidið norska. Er þess minnzt á margan
liátt. Hér heima hefir komið út lítil bók: Karl Konow: En d-
urminningar um Björnstjerne Björnson, í þýðingu eftir
Einar Gtiðmundsson kennara, skemmtileg bók, og virðist
snoturlega þýdd. — Sami E. G. hefir og gefið út iítið en
lagtlegt safn: „íslenzkar þjóðsögur“.
S K I N F A X I.
Búast má við, að Skinfaxi verði eitthvað að draga sam-
an seglin næsta ár, frá því sem verið hefir þrjú hin síðustu.
Skattar til U.M.F.Í. heimtast illa inn, og ríkisstyrkur sam-
bandsins lækkar, svo að fjárhag þess hrakar. Mega félögin
sjálfum sér um þetta kenna, en eigi ritstjóranum.