Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.02.1934, Page 9

Skinfaxi - 01.02.1934, Page 9
SKINFAXI 9 vildi, enda var lieimili hans á öðrum enda sveit- arinnar og erfitt um fundarsókn þaðan. Sagði liann þá af sér formannsstörfum, en var félagi eftir sem áður, og lagði félaginu lið i orði og verki lil dauðadags. Dauða Iians bar að liöndum fyrr en nokkurn varði. Sumarið 1914 sýktist liann af blóðeitrun í fæti, fékk lungnabólgu í legunni og andaðist 19. ágúst, rúm- lega þrítugur að aldri, og kom andlátsfregn hans sem þruma úr heiðskíru lofti vfir sveitunga hans og vini. Þorfinnur var óvenju heilsteyptur maður. Sann- færing hans var lieil og óslcipt, í hverju máli sem var. Vinum sínum var hann manna tryggastur og einlægastur, en harður og óvæginn þótti hann í deil- um og hlífðist þá litt, við livern, sem um var að eiga. Hins vegar var hann drenglyndur og sáttfús, og var því vel metinn af andstæðingum sem öðrum. Þótli og flestum, sem það skarð yrði seint fyllt, scm varð við fráfall hans. Sigríður er fædd 12. júní 1886. Hún var vel gefin, hæði til munns og handa. En þótt hún væri bók- lineigð, sem annað frændfólk hennar, þá snerist þó liugur liennár meira að verklegum störfum. Hún lærði ung hæði ldæðasaum og matreiðslu, saumaði mikið, bæði heima og heiman, og þótti óvenju af- kastamikil við það slarf og flest önnur. — Hún gekk í Unglingafélagið þegar, er það var stofnað, og síð- ar i Ungmennafélag Biskupstungna. Tók lnin þátt í félgsstörfum með kappi og fjöri, og taldi ekki eftir sér neina erfiðleiða við fundasókn, né aðra fyrir- höfn í félágsins þarfir. Hún talaði ekki oft á fund- um, en sagði skoðun sína skýrt og skörulega, þcgar henni fannst áslæða til. En starfstími hennar i fé- laginu varð ekki langur. Hún giftist 17. október 1911 Jóhanni Ólafssyni frá Helli í Ölfusi, góðum dreng og prúðmenni, og góðum ungmennafélaga. Þau reistu

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.