Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.02.1934, Side 28

Skinfaxi - 01.02.1934, Side 28
28 SKINFAXI Það var öllum ljóst, að ástandið var slæmt. Ósam- ræmi í verðlagi olli misrétti og miklum erfiðleikum. Allt fram til 1927 ber þó lítið á viðleitni þings og stjórna að ráða bót á meinsemdunum. Það er hvergi tekið fast á ncinu. Avinnuleysingjunum við sjóiun og einyrkjabændunum er bent á einstaklingsframtakið. En það hefir stoðað lítið. Það er eins og eittlivað vefj- ist fyrir. -—- Ef til vill eru það aðstæður einstakling- anna, Iieppni o. fl. Nei, i aðgerðaleysi þings og stjórn- ar voru samvinnufélögin slylta og sloð bændanna — þar sem Iiver studdi annan. 1927 verður allmikil breyting á afstöðu þings og stjórnar til sveitanna. Þá um fjögra ára tímabil eru gerð lofsvcrð átök (il um- bóta fyrir sveitir landsins. Að þeim stóð Framsókn- arflokkurinn með stuðningi jafnaðarmanna. Það er vert að gefa þvi gætur, að þcssir umbótamenn stóðu á sínum tíma framarlega í ungmennafélagsskapnum bér á landi. Helzu umbótamálin voru: Héraðsskól- arnir og sundlaugarnar, Byggingar- og landnáms- sjóður og Búnaðarbankinn, auk mikilla framkvæmda i vega- og brúagerð, símalagningu, bygging mjólkur- búa o. fl. Þótt merkilegt megi lieita, var síður cn svo, að stjórnmálaflokkarnir væru sammála um þessar umbætur. Hinir lágu vextir Byggingar- og landnáms- sjóðs voru nefndir ölmusur, stofnun héraðsskóla óþarfi og vitleysa o. s. frv. Það kom berlega i ljós í baráttunni fyrir þessum umbótamálum, að álit og vilji stjórnmálamanna, margra hverra að minnsta lcosti, var takmarkaður af þröngsýnum hagsmunum einstakra flokka og stétta. Það kom berlega í Ijós, bvað fulltrúar þjóðarinnar eiga oft erfitt með að líta yfir þjóðmálin frá hærri sjónarmiðum, sjónarmiðum alþjóðar. Það ber meira á hrossakaupum og fálmkenndum handabófsverkum, beldur en skipulagsbundnum átökum til bjargar at- vinnumál um þj óðarinnar.

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.