Skinfaxi - 01.02.1934, Síða 42
42
SKINFAXI
Því svarar 2. grein liinna nýju sainbandslaga U. M.
F. í., cn liún er svo:
„Þau ungmennafélög geta verið í U. M. F. í., sem
slarfa eftir þeirri stefnuskrá, er hér segir:
1. AÖ vinna að heill og framförum sjálfra sin og ann-
arra, og velferðarmálum lands og lýðs.
2. Að hafa bindindi um nautn áfengra drykkja, og
vinna á allan hátt að útrýmingu þcirra úr landinu.
Kjörorð U. M. F. í. er: íslandi allt.“
Þessi er hin nýja stefnuskrá okkar, ungmennafélaga,
þessi er sú játning, er við gerum um vilja okkar og
verkefni. Hún er hálf um bindindismálin og kl’cfst
þess af U. M. F., að þau „liafi bindindi um nautn á-
fengra drykkja."
Hvað er þá „að hafa hindindi“?
Það er ekki það skipulag, að sumir íclagsmenn séu
algerðir hindindismenn, en aðrir drekki, þegar þeim
sýnist svo. Sú er venjan í þeim félögum, sem ekki hafa
bindindi. Þar eru menn sjálfráðir, hvort þeir neyta
áfengis eða ekki. Enginn félagsskapur cr svo auniur,
að hann hanni mönnurn að vera í hindindi. Þess vegna
mun vai’la finnast sá félagskapur, að ekki séu í honum
einhverjir hindindismenn. Skyldi þá vera hœgt að
segja um öll félög, að „þau lxafi bindindi“?
Nei, að hafa hindindi um nautn áfengra drykkja er
allt annað. Það er að krefjast þess af félagsmönnum
undanlekningarlaust, að þeir neyti ekki ál'engis. Þess
vegna húa ungmennafélagar nú við sömu hindindis-
kröfur og í fyrra og alllaf áður. Bókstafurinn er hreytt-
ur, en andinn er einn og liinn sami.
Nú veit eg að visu, að sumstaðar er uppi sú skoðun,
að lalsvert hafi verið slakað til i áfengismálunum með
þessari breytingu. Félagsmenn séu nú frjálsari en áð-
ur og að miklu leyti sjálfráðir um það, livorL þeir séu
bindindismenn eða ekki. Hefði eg ekki vitað um þessa