Skinfaxi - 01.04.1951, Side 7
SKINFAXI
7
KRISTJÁN JDNSSDN, SNORRASTÖÐUM :
(Skinfaxi flytur hér fró-
sögn ungmennafélaga af
skemmtiferðalagi félags á
félagssvæði lians. Var farið
á hestum sem áður fyrr, og
héraðið skoðað undir leið-
sögn kunnugra. Sést gjörla
af frásögninni, að gestrisni
og höfðingsbrag er enn að
finna i sveitum landsins,
þótt mörgum sé í þeim efn-
um gjarnt á að tala aðeins
um forna frægð. — Skin-
faxi tekur þessari frásögn
tveim höndum, svo og lýs-
ingunni á félagsheimilinu
á nálægu félagssvæði við
höfund þessarar greinar
(Breiðablik, sjá bls. 24).
Eru Umf. hvattir mjög til
að skrifa niður slíkar frá-
sagnir af athöfnum félaganna, skemmtunum, nytjastörfum og
ferðalögum. Þessar greinar þurfa ekki að vera langar né viða-
miklar ritsmíðar, aðeins trúar frásagnir af viðfangsefnunum
víðs vegar um landið. Bezt er, að myndir fylgi slíkuin þáttum.
Þessir þættir af starfinu í hinum ýmsu félögum vítt um byggð-
ir landsins tengja ritið við Umf., bæði einstaklinga og félags-
lieildir. — Ri t s t j.).
Húsleysi er eitt hið mesta mein alls félagsskapar,
ekki sízt unga fólksins, sem yfirleitt á ekki eigin hús-
um að ráða. Þau ungmennafélög eru því mjög á ber-
angri með öll sín störf, sem vegna ódugnaðar, fjár-
skorts, og e.t.v. nú síðast vegna synjunar fjárhagsráðs,
hafa ekkert afdrep fyrir starfsemi sína.
Eitt af þessum félögum er U.M.F. Eldborg.
Og þegar húsið skortir til fundarhalda og skemmt-
Kristján Jónsson.