Skinfaxi - 01.04.1951, Side 27
SKINFAXI
27
Mat á hestum.
— - kúm.
— - fé.
— - þunga (t. d. steins, trjábols).
— - landspildu.
— - uppskeru (t. d. kartöflum).
Framreiðsla og búnaður borðs.
Lokræsagröftur.
Plæging með dráttarvél.
Sláttur með dráttarvél.
Dráttarvélaakstur.
Gróðursetning skógarplantna.
í gögnum þeim, sem ég hef undir höndum, eru nákvæmar
lýsingar á því, hvernig keppni í hverju þessara atriða er háttað,
og hvernig afköstin, nákvæmnin og þekkingin er metið til
stigs. Mér fróðari menn um þessi landbúnaðarstörf verða að
taka að sér að þýða og staðfæra þessi gögn, svo að þau komi
okkur að gagni.
Taki ungmennafélögin lil við keppni í starfsgreinum, þarf
þegar frá uppliafi að búa svo um hnútana, að þessi viðleitni
verði ekki kák eitt eða það að sýnast, heldur mótist af festu,
þekkingu og framtaki, svo að viðleitnin verði sannkallað „trú-
boð“, og áhrifa gæti inn í liið daglega líf.
Tökum óhikandi, en þó með varfærni, til við keppni og
sýningar i starfsíþróttum til eflingar á starfi ungmennafé-
laga, virðingu á vinnunni og trú á landið.
Leitum samvinnu um þessi mál við Landbúnaðarráðuneytið,
Búnaðarfélag íslands, Landssamband bænda og einstök bún-
aðarfélög og búnaðarsamtök.
Til keppnanna og sýninganna verður æft við hin daglegu
störf. Keppnir og sýningar settar á svið á mótum einstakra
félaga, mótum tveggja eða fleiri félaga, héraðsmótum og jafn-
vel landsmótum U.M.F.Í. Þá er ágætt tækifæri að koma þessu
að, þegar stofnað er til landbúnaðarsýninga.
Okkur ætti að takast að standa fyrir slikum keppnum og
sýningum, eins og okkur hefur tekizt með íþróttirnar, en
eitt verðum við að leggja áherzlu á, og það er að láta mótin
ganga vel, útrýma hangsinu og silaskapnum, sem allt of viða
einkennir mótin hjá okkur, til stórra óþæginda fyrir kepp-
endur, til enn meiri leiðinda fyrir áhorfendur og til skaða
fyrir málefnið.
Vegna þess að mér er kunnur áliugi ungmennafélaga á því
að hefjast handa með starfskeppni þegar i sumar, þá leyfi ég