Skinfaxi - 01.04.1951, Blaðsíða 32
32
SKINFAXI
ir formann félagsins, sem heitir Uni danski. Var þetta
fyrsti þáttur leikritsins og gerist í höll Haralds hárfagra. Var
þetta öðrum þræði skrautsýning, en að hinum snjöll lýsing
á hirðlífi þeirra tíma, og voru þar fluttar drápur, eins og vera
bar, afbragðs vel gerðar. Leikþætti þessum var mjög vel tekið
af hinum mörgu samkomugestum. Itvikmynd var sýnd af lands-
móti U.M.F.Í. á Hvanneyri 1943.
Nokkrir boðsgestir sátu samkomuna og fluttu þessir ræður:
Ingimar Jóhannesson, kennari, sem jafnframt afhenti félaginu
borðfána að gjöf, Daníel Ágústínusson, sambandsritari U.M.F.Í.
og Sigurður Greipsson, formaður Héraðssambandsins Skarp-
héðins. Samkvæminu stjórnaði Vigfús Jónsson, oddviti, sem
verið hefur einn af forvígismönnum félagsins frá upphafi.
Að lokum var dansað lengi nætur.
Samkoman var hin ánægjulegasta í hvívetna og lofaði góðu
um framtíð þessa félags, sem svo oft hefur starfað með sér-
stökum myndarbrag.
D. Á.
Guðmundur Þórarinsson, kennari, Eyrarbakka:
(
AFIV8ÆLISLJÓÐ
á 30 ára afmæli U.M.F. Eyrarbakka.
Komum saman, syngjum ljóð,
seiðum til vor liðna daga.
Hérna vonavígið stóð,
vörður sínar æskan hlóð,
— hér var unnið margt af móð,
minningarnar geislum braga.
Komum saman, syngjum ljóð,
seiðum til vor liðna daga.
Minninganna mildur blær.
merlar hlýtt um liðnar stundir.
Æskan björt er öllum kær,
unaðsfagurt vorið hlær,
helgum töfrum hjörtu slær
himinbjartir vona lundir.
Minninganna mildur blær,
merlar hlýtt um liðnar stundir.