Skinfaxi - 01.07.1952, Blaðsíða 6
54
SKINFAXI
í þeim, því að mér færai'i menn gengu þar fram fyrir
skjöldu og vörðu mitt mál.
Þegar umræðurnar höfðu náð hámarki og allt virtist
ætla að fara i bál og brand, tilkynnti fundarstjóri að
merkilegt mál lægi fyrir fundinum og allt mætti ekki
lenda í þessu rifrildi. — Var þá umræðum slitið án
ályktunar.
Frk. Inga Lára Lánisdóttir kvaddi sér þá hljóðs og
hóf mál sitt á því, að vestur við Klettafjöll i Ameríku
væri eitt mesta stórskáld Islendinga, Stephan G.
Stephansson, sem aldrei hefði Island séð síðan hann
flutti frá Islandi með foreldrum sínum 19 ára gamall.
Fór hún siðan nokkrum orðum um fegurð og gildi
ljóða hans. — — — Skýrði hún frá þvi, að fyrir
nokkru liefði birzt smágrein í Skinfaxa, blaði U.M.F.
Islands, þar sem sú tillaga var borin fram, að U.M.F.
Islands skyldi gangast fyrir því, að Stephani G.
Steplianssyni yrði lioðið heim. — Greinina hafði
skrifað Jónas Þorbergsson núverandi útvarpsstjóri, og
var hann staddur þarna á fundinum, nýkominn frá
Ameríku. — — Það var eins og þegar snögglega kyrrir
eftir útsynnings brim.
Fundarmenn voru allt i einu orðnir ein lilustandi
heild. -— Hrifningin gagntók hugina, og tillagan var
samþykkt með dynjandi lófataki. Einliver stakk upp
á því að hefja þegar fjársöfnun. Samskotalisti var lát-
inn ganga um salinn og á skammri stundu höfðu safn-
ast 450 krónur. — Þetta var ekki stór upphæð — sízt
á nútima mælikvarða, en skólafólk og unglingar höfðu
færri krónur handa á milli þá en nú, og þegar tekið
er tillit til þess, þá er þetta stór fjárhæð. — Nú var
undirhúningurinn hafinn. Ungmennafélögin, eða nefnd
kosin af þeim, skrifaði fjölmörgum félögum í bænum
og óskaði eftir stuðningi þeirra við málið. Sex félög
kusu nefndir til viðræðu við nefnd ungmennafélaganna,
og á þeim fundi var kosin sjö manna framkvæmdar-