Skinfaxi - 01.07.1952, Blaðsíða 19
SKINFAXI
67
Sex fulltrúar 4 „H“ félaganna frá hinum ýmsu fylkjum Banda-
rikjanna meS skýringarmyndir, er sýna búfjáraukningu 4 „H“
félaganna seinasta aldarfjórðunginn.
það þarf að fá leiðtoga, en það er venjulega einhver
fyrirmyndarbóndinn eða húsfreyjan, skólakennarinn
eða presturinn. Leiðtoginn verður að vera sjálfboða-
liði. Hann á að segja til og hjálpa félögunum með verk-
efni sin, en það er undirstöðuatriðið i félagsskapnum,
að hver 1‘élagi verður að leysa af hendi eitthvert starf
eða verkefni og er venjulega unnið að hverju verkefni
í a. m. k. eitt ár. Og það er úr mörgu að velja. Hann
getur tekizt á hendur að læra um garðrækt og síðan
að sá i og hirða ákveðna spildu i garðinum. Hann held-
ur skýrslu um sáðvörur og uppskeru, tekjur og gjöld.
Hann getur tekizt á hendur að hugsa um ákveðinn
fjölda af hænsnum og hann getur alið upp kálf af hrein-
ræktuðum stofni. Þá er hægt að vinna að því að fyrir-
byggja slys á viðkomandi húgarði, kynna sér slysa-
varnir og kenna fólki að forðast slysin. Stúlkurnar geta
tekið að sér að matreiða ákveðinn fjölda máltiða, sjóða
5*