Skinfaxi - 01.07.1952, Blaðsíða 22
70
SKINFAXI
einstaklingana, kenna þeim að rækja skyldur sínar,
hvernig þeir eigi að starfa saman og yfirleitt, hvern-
ig þeir verði sem nýtastir borgarar í þjóðfélaginu.
Að læra að vinna á þvi að vinna er vissulega góð og
skemmtileg aðferð og kjörorðið. „Að bæta jiað bezta“,
hvetur til vandvirkni og ástundunarsemi. En það er
líka fleira. Á hverju sumri sýna þeir, sem framarlega
standa í hverri grein, fyrst á 4-H sýningunum og sveitar-
sýningunum og þeir, sem skara fram úr sýna síðan á
fylkissýningunni. Þar eru valdir sigurvegarar í hinum
ýmsu starfsgreinum. Oft eru veitt námsverðlaun en
stærsti sigurinn er þó að fá að keppa við sigurvegara
úr öðrum fylkjum Bandarikjanna á ársþinginu í Chicago
og fá j)angað ókeypis ferð.
Hin stóru félög og fyrirtæki í Bandaríkjunum taka
þátt í starfinu, með því að veita verðlaun, venjulega
eitt í hverri starfsgrein, og með því að gera þeim er
ársjnngið sækja, dvölina ógleymanlega.
Westinghouse félagið veitir t.d. 6 landssigurvegurum
í heima rafmagnsvinnu 300 dala námsverðlaun, leysir
þá út með gjöfum og kostar fex-ðir þeirra á þingið.
International Hai'vester félagið verðlaunar 4 sigui-
vegai-a í aukui'yrkju og 4 sigurvegara í frystingu mat-
væla með 300 dala námsverðlaunum o. s. frv.
Fáni 4 „H“ félaganna.