Skinfaxi - 01.07.1952, Side 40
88
SKINFAXI
Þegar keppnin hefst eiga allir þátttakendur að hafa tekiö
fram allan útbúnaðinn. Sé um blómskreytingar og servíettu-
brot að ræða, skal slíkt gert í keppni. Þátttakendur byrja sam-
tímis og dómarar fylgjast með, hvernig starfið gengur. Dæmt
er um skipulagningu og reglusemi. Keppnin á ekki að mótast
af safni af dýrum borðbúnaði og blómum. Það, sem máli skipt-
ir er fyrst og fremst að skapa á einfaldan hátt ánægjulega mál-
tið, jafnt hversdagslega sem við liálíðleg tækifæri.
II. Stigatafla.
1. Starfsaðferð, fyrirkomulag .... 10x2 = 20 stig
2. Dúkur, servíettur ................ 10x1 = 10 —
3. Staðsetning diskanna.............. 10x2 = 20 —
4. Skreyting ........................ 10x2 = 20 —
5. Heildarsvipur .................... 10x3 = 30 —
Samtals 100 stig
III. Dómur.
1. Starfsaðferð, fyrirkomulag. — Dæmt er um niðurröðun og
fyrirkomulag í starfinu, einnig framkvæmd sjálfs starfsins og
góða reglu með borðbúnaðinn, þannig að hægt sé að leggja
hann fljótlega og rétt á borðið. Þátttakendur mega ekki fara
fleiri ferðir með hlutina en nauðsyn krefur og ekki setja fingra-
för á borðbúnaðinn.
2. Dúkur, servíettur. — Hátiðlegt er að nota snotran dúk og
fallegar servíettur en ódýr, smekklegur dúkur á að gera jafn
kleift að öðlast sama stigafjölda, sé hann aðeins vel strokinn
og rétt lagður á borðið. Dúkurinn verður að vera í samræmi
við annað, sem á borðinu er, og sönmleiðis servietturnar, sem
einnig þurfa að vera vel stroknar, og fer vel á að brjóta þær
fallega, en samt sem áður einfalt og látlaust.
3. Staðsetning diskanna. — Jafnt á að vera milli allra disk-
anna (ca. 50—60 cm.), og skal setja þá i beina röð við borð-
brúnina. Silfur, gler og postulín á að vera tandur hreint. Glös-
unum skal raðað eftir því sem á að nota þau, þannig að þau,
sem fyrst á að nota, standi lengst til hægri. Hnífar, gafflar og
skeiðar skulu sett í beina línu og raðað eftir því sem nota á.
4. Skreyting. — Blóm og kerti er algengasta borðskrautið.
Blómin eiga að vera lágskorin, þannig að gestirnir verði ekki
fyrir óþægindum af skreytingunni. Geti þátttakendur á ein-
faldan hátt komið fram með nýjar hugmyndir i sambandi við
borðskreytinguna, er að sjálfsögðu veitt aukastig fyrir það.
5. Heildarsvipur. — Dæmdur er heildarsvipur borðsins að