Skinfaxi - 01.07.1952, Síða 47
SKINFAXI
95
Ritari Úlfljóts, Torfi Steinþórsson skólastjóri, Hrollaugs-
stöðum, liefur i bréfi til U.M.F.Í. skýrt nánar frá, hvernig
framkvæmd þessarar tillögu er liugsuð. Hann segir að keppni
þessi eigi að vera tilraun til að efla félagsstarfsemina og þó
einkum þjóðlega menningu æskulýðsins. Ákveðið liafi verið
að byrja nieð keppni í bókmenntaþekkingu. Valdar liafa verið
bækurnar: Piltur og stúlka og Gunnlaugs saga ormstungu. Er
ætlast til að ungmennafélagarnir lesi þær yfir áður en keppn-
in hefst. Þótti rétt að fara þannig af stað, að keppnin yrði
sem flestum auðveldust. Þetta er þó keppni milli félaganna en
ekki einstaklingskeppni. Nefndin semur siðan nokkrar spurn-
ingar, þar sem spurt verður um eitthvað úr þessum tvcim
sögum. Halda skal siðan fund í öllum félögunum, helzt sama
daginn. Skal þá birta spurningarnar og skulu fundarmenn
svara þeim skriflega. Reynt verður að stilla spurningunum
það i hóf, að mikil likindi séu til, að flestir geti svarað þeim,
ef þeir hafa lesið sögur þessar nýlega.
Nefndin fer síðan yfir svörin og reiknar út stig félaganna.
Þau verða fundin á þann liátt, að talin verða saman öll rétt
svör, sem berast frá hverju félagi og síðan deilt í þá tölu
með félagsmannatölu viðkomandi félags, þó að frádregnum
þeim félögum, sem sannanlegt er, að séu ekki staddir á sam-
bandssvæðinu þann dag, sem keppnin fer fram. Með þessu
fyrirkomulagi hefur fámennt félag jafn mikla möguleika til
þess að sigra í keppninni og það félag, sem fjölmennara er.
Síðar væntum við að geta liaft bókavalið nokkuð þyngra.
Ákveðið er að keppnin fari fram i marz. Skinfaxi mun síðar
birta niðurstöður hennar.
Hér er áreiðanlega um athyglisverða menningarstarfsemi
að ræða, sem önnur héraðssambönd ættu að taka upp. Verði
undirtektir héraðssambandanna almennar í þessu máli virt-
ist eðlilegt að U.M.F.Í. efndi til samkeppni milli þeirra um
einhver þau atriði, sem þægileg væru i framkvæmd.
Stjórn Úlfljóts skipa nú: Aðalsteinn Aðalsteinsson Höfn,
formaður, Torfi Steinþórsson Hrollaugsstöðum, ritari og Rafn
Eiríksson Miðskeri, gjaldkeri.
Norræna æskulýðsmótið
í Vraa lýðháskólanum í Norður-Jótlandi 1.—7. júlí í sum-
ar er nú undirbúið að fullu. Margir kunnir danskir fyrirles-
arar, einkum prestar og kennarar, flytja erindi á mótinu um
hin margvíslegustú efni. Meðal þeirra eru þessi: Listin og
heimilislifið, æska og skáldskapur, sveitirnar og dönsk æska,