Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.11.1955, Page 11

Skinfaxi - 01.11.1955, Page 11
SKINFAXI 107 nýlega endurbætt og því í bezta lagi, og einnig þar er sérlega gott svæði fyrir áhorfendur. En á þessum tveim stöðum fór mótið fram að rnestu leyti. Þegar bér við bættist, að veðrið var báða mótsdagana eins og bezt varð á kosið, verður ekki annað sagt en að- staða liafi verið bin ágætasta, ,enda fór mótið mjög vel fram. Mótið undirbúið. Það er ákaflega mikið verk að undirbúa landsmót- in eins umfangsmikil og þau eru orðin. En þennan undirbúning leysti U.M.S.E. með mikilli prýði, undir forystu sambandsstjórnar og framkvæmdastjórans. Skrifstofur liafði mótsstjórnin í Hótel Varðborg. Þar var einnig framreiddur matur fyrir keppendur og starfsmenn mótsins, en gistingu fengu þeir í heima- vist menntaskólans. Gestir fengu tjaldstæði á tún- inu fyrir ofan sundlaugina. Þá liafði U.M.S.E. veit- ingasölu í matsal heimavistarinnar. Veitingatjöldum var komið fyrir í nánd við íþróttavöllinn og var þar rekin veitingasala ýmiss konar. Aðalstrœti.

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.