Skinfaxi - 01.04.1956, Síða 45
SKINFAXI
45
Umf. Biskupstungna, Árn., fór skemmtiferð til Þingvalla.
Umf. Reykjavíkur heldur áfram framkvæmdum á leikvang-
inum í Laugadal. Hefur margvíslega starfsemi í félagslieimili
sínu við Holtaveg.
Skinfaxi
Enn einu sinni vill Skinfaxi minna alla ungmnnafélaga á
skyldurnar við sig. Ritið er málgagn og boðberi unga fólksins
og því opið öllum, sem eitthvað markvert hafa til mála að
leggja. En ritið er ekki siður tengiliður milli héraðssambanda
og einstakra félaga. Fréttir af félagsstörfum, þættir úr sögu
félaga og frásagnir af merkum áföngum, eru vel þegnar. Mikill
misbrestur vill oft verða á þvi, að Skinfaxi fái fregnir af ýms-
um verkefnum, sem umf. hafa með höndum. Fréttir af íþrótta-
mótum berast oft seint og illa, frásagnir af byggingu og vígslu-
athöfnum félagaheimila koma sjaldnast beint til Skinfaxa. Úr
þessu þarf að bæta. Oft senda forráðamenn umf. og ums. frétt-
ir til blaða og útvarps. Væri ekki úr leið að senda Skinfaxa
afrit af þessum fréttum, svo að vinsa megi úr þeim og birta
hið markverðasta. Einnig er ástæða til að minna enn einu
sinni á myndirnar. Myndir af félagsstarfi, hvort sem um leik-
starfsemi er að ræða, skóggræðslu, starfsíþróttir eða bara
venjulega fundi, eru næsta skemmtilegar í riti eins og Skinfaxa,
ekki sízt er stundir liða fram.
Slcinfaxi er nú bráðum hálfrar aldar gamall. Hann er merk-
ur annáll um starfsemi umf. frá fyrstu tið. í rauninni má segja,
að í honum sé að finna sögu ungmennafélagshreyfingarinnar i
landinu. í honum eru skráðar lieimildir um fjölmörg smærri
atriði í félagsstarfinu, sem hvergi er annars staðar að finna.
Ungmennafélagar! Látið ekki undir höfuð leggjast að senda
Skinfaxa fréttir, myndir og frásagnir, svo að hann megi jafn-
an verða hlutverki sínu trúr.