Skinfaxi - 01.04.1961, Blaðsíða 3
JÓNAS JÓNSSON FRÁ HRIFLU
Þakkað
fyrir boð
og kveðjur
Um síðustu mánaðamót var mikill
mannfagnaður að Laugum í Reykjadal.
Skyldi halda þar allsherjarhátíð ung-
menna- og íþróttafélaga landsins. Var gert
ráð fyrir að þangað mundu sækja tíu
þúsund íþróttamenn og gestir. Ekki er
mér enn kunnugt um gestatöluna, en
enginn vafi er á að frá upphafi byggðar
hér á landi hafa aldrei verið saman-
komnir á hátíð norðan lands jafnmargir
menn eins og áhugalið það sem sótti að
Laugum í þetta sinn.
Forráðamenn ungmennafélaganna buðu
konu minni og mér að vera gestir sam-
takanna á þessari liátíð. Við þökkuðum
boðið en gátum því miður ekki sótt þetta
glæsilega mót. Við lok þessa íþróttaþings
sendi ungmennastjórnin okkur hlýja
kveðju eftir loftvegum. Ég nota þetta
tækifæri til að þakka boð og heillaóskir.
Þessi vinsemd ungmennasamtakanna er
því óvenjulegri þar sem hér er vikið að
áratuga kynnum, sem gleymast að öllum
jafnaði fljótlega í önn dagsins.
Hið mikla mannamót að Laugum leiðir
kuga minn til þessa staðar fyrir 63 ár-
um. Þá voru 60 drengir á fermingaraldri
og nokkrir fullorðnir menn að sundnámi
um hálfsmánaðar skeið við lítinn, hlýjan
stöðupoll, sem er enn til í mjög fegraðri
mynd framan við skólahúsin á Laugum.
Myndarlegur torfgarður var hlaðinn þvert
yfir djúpa lág. Þá var veitt volgum smá-
Jónas Jónsson.
læk ofan úr fjallshlíðinni niður í dældina.
Þannig var mynduð sund- og kennslulaug.
Mývetningar voru þá mestir íþróttamenn
í Þingeyjarsýslu. Þar var notuð hin fræga
stóragjá hjá Reykjahlíð, sem er enn í
fullu gildi, tær með þægilegum baðhita.
Fleiri náttúrugæði eru í Mývatnssveit,
sem greiddu fyrir skynsamlegum íþrótta-
iðkunum ungra manna. Sundkennarinn,
Sigfús Bjarnason, faðir Björns háskóla-
bókavarðar og Halldórs skattstjóra, var
einn af liinum merkilegu sveitamönnum
þeirrar aldar. Stórvel gefinn, fjöllesinn og
SKINFAXI
3