Skinfaxi - 01.04.1961, Side 16
Þegar liðin höfðu tekið sér stöðu fyrir
framan stúkuna, lék hljómsveit fánasöng-
inn, „Hil dig vor fane“, en allir viðstaddir
tóku undir. Fánaberar heilsuðu, en fánar
Norðuriandanna fimm voru dregnir að
hún.
Þetta augnablik mun seint líða úr huga
þeirra, sem þarna voru viðstaddir.
Loftið hafði verið þungbúið, en einmitt
á þessari helgu stund brutust geislar sól-
arinnar í gegnum svört regnskýin og slógu
gullnum bjarma á hvanngræna flötina,
hina marglitu búninga og blaktandi fána-
borgina. Stórfengleg sjón.
Öll setningarathöfnin tók einn og hálfan
tíma. Og það stóð heima, að þegar síðustu
íþróttamennirnir voru að yfirgefa völlinn,
opnuðust flóðgáttir himinsins að nýju, en
aðeins stutta stund. Hófust nú fimleika-
sýningar á leikvangnum, en það voru þær,
sem öðru fremur settu svip sinn á þetta
mót. Stóðu þær yfir alla mótdagana þrjá,
frá klukkan 12 á hádegi til klukkan 21 að
kvöldi.
Voru sýningar þessar stórglæsilegar, en
fóru að mestu fram hjá okkur, sem vorum
við frjálsíþróttakeppnina, en hún fór fram
á leikvangi íþróttaskólans. Eftir að hafa
horft á sýningar kvöldsins, var haldið í
náttstað, og voru gestgjafarnir allir mætt-
ir til þess að sækja okkur.
Frjálsíþróttakeppnin hófst svo morgun-
inn eftir klukkan 10 árdegis.
Veður var sæmilegt, en brautir afar
slæmar, og versnuðu þegar á leið.
Keppnin var fyrst og fremst stiga-
keppni milli hinna 27 amta og íþróttasam-
taka, sem þarna áttu flokka.
Alls voru 54 keppendur í hverri grein, 2
frá hverjum flokki.
Stig voru reiknuð eftir alþjóðastiga-
töflu.
Aðeins þrjár tilraunir voru leyfðar í
köstum og stökkum og tíminn látinn ráða
í hlaupum.
Til þess að keppnin gengi fljótar, var
keppendum skipt niður í 9 flokka, 5
kvenna- og 4 karlaflokka.
Ekki fór keppni í öllum flokkum fram
samtímis, svo að aðstöðumunur varð tals-
verður í nokkrum greinum.
Þar sem keppnin fór fram hjá allflest-
um mótsgestum, var ákveðið að halda
aukamót á aðalveikvanginum sunnudaginn
23. júlí, og voru tveir beztu úr hverjum
flokki valdir þangað.
Fyrsta grein mótsins var 80 m. hlaup
kvenna. Hlaupið var í 10 riðlum.
Beztur tími náðist í fyrsta riðli, 10,7
sek., en Guðlaug Steingrímsdóttir sigraði
9. riðil á 11,3 og Björk Ingimundardóttir
10. riðil á 11,1 sek.
Björk fékk 5. bezta tímann, en báðar
komust þær í sunnudagskeppnir.
Voru þær óheppnar að lenda í síðustu
riðlunum, þar sem brautin versnaði þegar
á leið.
I kringlukasti karla reyndust landarn-
ir vera í sérflokki.
Þar sigraði Þorsteinn Alfreðsson með
42.88 m. kasti, en Guðm. Hallgrímsson
varð annar með 42.36 m.
Skömmu seinna hófst keppni í lang-
stökki karla og kvenna.
Aðstæður voru mjög slæmar. Ofan á
bættist svo það, að óheppnin virtist elta
okkur á röndum. Þegar ein umferð var
eftir, hafði aðeins einn keppandinn okk-
ar náð gildu stökki. Sem betur fór, gerðu
allir gilt í síðustu umferð, svo að við
16
S K I N F A X I