Skinfaxi - 01.04.1961, Page 17
gátum aftur andað eðlilega.
I karlaflokki stökk Ólafur Unnsteins-
son 6.21 m., en Þórður Indriðason 5.81 m.
Urðu þeir nr. 2 og 7 og komust báðir
í sunnudagskeppnina.
1 langstökki kvenna stökk Helga Ivars-
dóttir 4.50 m., en Kristín Einarsdóttir
4.46 m. Var árangur þeirra góður miðað
við aðstæður, en nægði þó ekki til að
komast áfram.
Var nú lokið keppni í fjórum greinum,
og liöfðu landarnir tekið forystuna í
karlaflokki, en íslenzku stúlkurnar voru í
6. sæti.
Þurftum við nú að fara tveggja kíló-
metra leið til að matast, en veitingatjöld
voru við aðalleikvanginn.
Mesta afrek mótsins var án efa það,
hve greiðlega gekk að afgreiða mat fyrir
hinar 14 þúsundir íþróttafólks, sem þarna
voru.
Fæðið var og mjög gott.
Klukkan 14,30 þennan dag var aftur
fylkt liði á leikvanginum. I þetta skipti
vegna komu konungs til mótsins.
Á slaginu hálf þrjú óku tvær gljá-
fægðar bifreiðir inn á völlinn og stað-
næmdust við konungsstúkuna. Mikill við-
búnaður var við komu konungs, og Ijós-
myndarar beindu skeytum sínum að borða
lögðum manni, sem sat í aftursæti fremri
bifreiðarinnar.
En mikil urðu vonbrigði þeirra, þegar
hurðin opnaðist og maðurinn steig út.
Það var þá alls ekki konungurinn! Hann
var klæddur venjulegum fötum og hafði
sjálfur ekið aftari bifreiðinni. Og loks
þegar ljósmyndararnir höfðu áttað sig,
var konungur seztur í sæti sitt í stúk-
unni.
Eftir stutta en hátíðlega athöfn leyst-
ust liðin upp og tekið var til við keppn-
ina að nýju.
Auk frjálsíþróttakeppninnar fór fram
á mótinu keppni í skotfimi, í handknatt-
leik, þar sem leika þurfti 235 leiki til
að fá úrslit og í knattspyrnu, þar sem
16 lið kepptu til úrslita. Til gamans má
geta þess, að ef fimleikasýningarnar og
íþróttakeppnin hefði farið fram á einum
og sama vellinum, hefði mótið staðið 19
daga, miðað við 10 stunda dagskrá!
Frjálsíþróttakeppnin hélt svo áfram síð-
degis.
T kúluvarpi kvenna urðu ísl. stúlkurn-
ar nr. 3 og 7. Oddrún Guðmundsdóttir
varpaði 10.75 m. og Erla Oskarsdóttir
9.79 m. Þessi ágæti árangur flutti ísl.
kvennaliðið úr 6. sæti upp í 2. sæti eftir
fyrri dag.
I 100 m. hlaupi karla var hlaupið í 12
riðlum, og aftur lentum við í síðustu
riðlunum.
Ólafur Unnsteinsson vann 11. riðil á
11.6 sek., sem var annar bezti tíminn í
hlaupinu. Þóroddur Jóhannsson varð ann-
ar í 12. riðli á 11.8 sek. og náði 7.—9.
sæti.
Eftir fyrri daginn hafði ísl. karlaflokk-
urinn tekið örugga forystu, 600 stigum
á undan næsta liði.
Þennan dag fór fram aukakeppni í 5x80
m. boðhlaupi kvenna og 100 m. boðhlaupi
karla. Sigurvegarar hinna 5 riðla áttu
síðan að keppa til úrslita á sunnudags-
mótinu.
í karlasveitinni voru þessir: Ragnar
Guðmundsson, Ólafur Unnsteinsson, Valdi-
mar Steingrímsson og Birgir Marinósson.
Sveitin náði beztum tíma í hlaupinu,
S K I N F A X I
17