Skinfaxi - 01.04.1961, Qupperneq 18
Setningarathöfn Vejlemótsins.
en var dæmd úr leik. Urðu þetta nokkur
vonbrigði, en stúlkurnar bættu það upp
með því að setja íslandsmet í sínu boð-
hlaupi á 55.1 sek. Sveitin var þannig
skipuð: Margrét Hafsteinsdóttir, Margrét
Sveinbergsdóttir, Ásta Karlsdóttir, Guð-
laug Steingrímsdóttir og Helga Ivars-
dóttir.
Þannig endaði keppnin fyrsta daginn.
Um kvöldið sýndu þrír glímumenn ísl.
glímu á Vejleleikvangi. Áhorfendur voru
mjög margir þetta kvöld, og virtist áhugi
vera mikill fyrir sýningunni. Áður en hún
hófst, hélt Jón Þorsteinsson, íþróttakenn-
ari í Sönderborg, stutt erindi um íslenzku
glímuna og kynnti hana. Síðan gengu
þátttakendur inn á leikvanginn.
Sýningin hófst svo, eftir að fánaber-
inn, Ármann J. Lárusson, hafði heilsað.
Sýningin naut sín mjög vel á grænni
flötinni, baðaðri í flóðljósum með íslenzka
fánann í bakgrunn. Við hlið hans stóðu
tvær stúlkur í þjóðbúningum.
Var almenn hrifning meðal áhoríenda
meðan á sýningunni stóð og glímumönn-
um óspart klappað lof í lófa, er þeir
gengu út af vellinum.
Blöðin birtu daginn eftir margar mynd-
ir af sýningunni og fóru lofsamlegum
orðum um hana.
18
SKINFAXI