Skinfaxi - 01.04.1961, Blaðsíða 32
Strompleikurinn
Gamanleikur í þrem þáttum eftir
Halldór Kiljan Laxness. Leikstjóri:
Gunnar Eyjólfsson. Leiktjöld og
búningateikningar: Gunnar Bjarna-
son.
„Það má vel vera að þú sért innflytj-
andi, en mitt fólk var bara ekki inn-
flytjendur, heldur faktorsfólk og það í
marga ættliði: ég heimta að minnsta
kosti fjögur stykki af smörribrauði, og
kampavín já heyrirðu það“.
Þannig mælir Ljóna Ólfer (Óljóna) í
upphafi fyrsta þáttar í Strompleik Ijax-
Svæðamót U. M. F. í. í knattspyrnu vegna
11. Landsmót U. M. F. t. 1961.
1 96 0 :
1. leikur: HSÞ—Ums. Skagafjarðar
3—2. 2. leikur: Umf. Keflavíkur—Ums.
Kjalarnesþings 2—1. 3. leikur: Ums. V,-
Hún.—Ums. A.-Hún. 7—1.
1961 :
1. leikur: Umf. Keflavíkur—H.s. Skarp-
héðinn 8—0. 2. leikur: Ums. Strandam.—
Ums. V.-Hún. 3—0. 3. leikur: Ums. Borg-
arfj.—Ums. Strandamanna 3—2. 4. leik-
ur: HSÞ—Ums. Eyjafjarðar 1—0.
Svæðakeppni í handknattleik vegna 11.
Landsmóts U. M. F. t. 1961:
1. leikur: Ums. Kjaiarnesþings—Umf.
Keflavíkur 8—6. 2. leikur: HSÞ—Ums.
Skagafjarðar 6—5. 3. leikur: Ums. Borg-
arfjarðar—HSIl (HSH gáfu leikinn).
ness og gefur það eigi alllitlar upplýs-
ingar um hvers konar fólk hún og móðir
hennar frú Ólfer eru. 1 þriðja þætti segir
Kúnstner Hansen, einfættur styrkþegi og
listamaður, eilífur augnakarl hjá Ólfer-
fjölr.kyldunni, við Lamba þáverandi unn-
usta Ljónu: „Við vorum miljónamæringar
— sem misstum miljónina. Það er að
segja við lifðum á henni og urðum mik-
ilmenni á henni, en eignuðumst hana
aldrei“.
Við þurfum ekki frekar vitnanna við.
Laxness hefur leitt inn á sviðið ein-
hverjar aumkvunarverðustu manntegund-
ir þjóðfélagsins. Fjölskyldu „auðmanns-
ins“, sem fremur sjálfsmorð þegar gjald-
þrotið er óumflýjanlegt. Ekkjan og dótt-
irin lifa á nafni ættarinnar og nota til
þess hvaða ráð sem tiltækileg eru, önnur
en að vinna á heiðarlegan hátt fyrir
bi'auði.
Fastatekjur þessara mæðgna eru ör-
orkubætur tveggja styrkþega, Gunnu
frænku og Kúnstner Hansen. Gunna
frænka er sérstaklega góð mjólkurkýr, því
auk 100% örorkubóta samkvæmt nýju
lögunum fær hún við og við peningasend-
ingar frá ríkum frænda í útlöndum. Þegar
frændinn sendir henni hvorki meira né
minna en 2500 dollara ávísun með fyrir-
mælum um að senda hana á heilsuhæli
til Miðjarðarhafsins, er móðurinni nóg
boðið. Meðan dóttirin er að skemmta sér
með innfiytjendum og útflytjendum, byrl-
ar hún gömlu konunni eitur og gengur
frá líkinu í strompinum. Þaðan í frá má
ekki kveikja upp í arininum, en Kúnstner
Hansen er látinn sækja örorkustyrkinn
hennar Gunnu frænku eins og ekkert hafi
í skorizt.
32
S K I N F A X 1