Skinfaxi - 01.07.1967, Page 9
„Rœktun lýðs og lands“ eru einkunn-
arorð ungmennafélaganna, og sjald-
an hefur góðu markmiði verið valið
eins fallegt og hnitmiðað kjörorð.
Landgræðslumálin hafa notið vax-
andi skilnings almennings og stjórn-
valda síðustu. árin, og er það fyrst og
fremst að þakka góðri forystu þeirra
roanna, sem um þessi mál annast. Það
er því ekki út í hött, að samstarf hef-
ur tekizt um landgræðslu og gróður-
vernd á þann veg, að ungmennafélag-
ar leggi fram krafta sína í sjálfboða-
vinnu til þess að vinna að þeim stóru
verkefnum, sem fyrir liggja í land-
græðslu og gróðurvernd.
Ingvi Þorsteinsson magister kynnti
ungmennafélögum viðhorfin í land-
græðslumálunum í viðtali í Skinfaxa
í desember s.l. Það leið ekki á löngu,
þar til stjórn Háraðssambandsins
Skarphéðins fór á fund Ingva til að
ræða við hann um það, hvaða skerf
sunnlenzkir ungmennafélagar gætu
lagt til landgræðslustarfa á afréttum
Sunnlendinga.
Það varð að ráði, að gera tilraun
með sjálfboðaliðsstarf urn 30 ung-
mennafélaga í sumar. Ekki þarf að
orðlengja það, að hugmyndin var
framkvæmd með góðum áhuga.
Sunnudaginn 9. júlí voru 30 ung-
Landgræðsluhópurinn fyrir framan sæluhúsið í Hvítárncsi
(Ljósm. Tómas Jónsson)
SKINFAXI
9