Skinfaxi - 01.08.1988, Page 6
Stjórn Ungmennafélags
Islands 1987 til 1990
Pálmi Gíslason,
formaður UMFÍ
Pálmi er fimmtugur bankaútibússtjóri,
búsettur í Reykjavík. Ásamt formennsku
erhann íframkvæmdastjóm UMFÍ. Hann
hefur unnið að fjölmörgum störfum innan
ungmennafélagshreyfingarinnar, þar á
meðal fyrir USAH, UMSK og Breiðablik.
Pálmi hefur starfað í Landsmótsnefndum
héraðssambanda frá 1961 og í
Landsmótsnefnd 15. og 18. Landsmóts
UMFÍ. Eiginkona Pálma er Stella
Guðmundsdóttir og eiga þau þrjú börn.
Hafsteinn Pálsson
Hafsteinn er 36 ára doktor í
byggingaverkfræði, vinnur við
Rannsóknarstofnun byggingariðnaðarins
og er búsettur í Mosfellsbæ. Hafsteinn
hefur mikið starfað í Ungmennafélaginu
Aftureldingu í Mosfellsbæ, m.a. sem
formaður. Hann er nú formaður Ungmen
nasambands Kjalarnesþings (UMSK).
Hafsteinn er í varastjóm UMFÍ.
Þórir Jónsson
Þórir er 42 ára húsasmíðameistari,
gjaldkeri UMFÍ og búsettur að Reykholti
í Borgarfirði. Hann er stjórnarmaðurfyrir
Vesturland. Þórir hefur mikið starfað
innan Ungmennafélags Reykdæla,
sérstaklegaaðleiklistarmálum. Hann var
formaðurUMSB til nokkurraára. Þórirer
nú oddviti Reykdælahrepps. Hann er
giftur Huldu Olgeirsdóttur og eiga þau
fjögur börn.
Þórir Haraldsson
Þórir 24 ára, búsettur á Selfossi og vinnur
í Þjónustumiðstöð UMFÍ í Reykjavík og
er varafonnaður UMFI, stjómarmaður
fyrir Sunnlendinga. Hann leggur einnig
stund á nám í lögfræði við Háskóla
íslands. Þórir hefur starfað mikið í
Ungmennafélaginu Vöku, m.a. formaður
í 1 ár. Hann var framkvæmdastjóri
Héraðssambandsins Skarphéðins (HSK) í
5 sumur. Þá var hann framkvæmdastjóri
útihátíðarinnar Gauksins í Þjórsárdal í 5
skipti fyrir HSK. Sambýliskona Þóris er
Guðrún Tryggvadóttir.
Guðmundur Haukur
Sigurðsson
Guðmundur Haukur er 37 ára,
framkvæmdastjóri Sjúkrahússins á
Hvammstanga, búsettur þar. Guðmundur
hefur mikið starfað í Ungmennafélaginu
Fram á Skagaströnd, m.a. í stjórn. Hann
hefur starfað í stjórn U ngmennasambands
A-Húnavatnssýslu og sem fram-
kvæmdastjóri þess. Guðmundur hefur
starfað mikið að félagsmálum; leiklist og
bridge málum. Hann erí aðalstjóm UMFI
fyrir Norðurland vestra. Kona
Guðmundar er Bjamey Valdimarsdóttir.
6
Skinfaxi