Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.08.1988, Side 18

Skinfaxi - 01.08.1988, Side 18
þar sem þau eru í fremstu röð í sínum aldursflokki hérlendis og vissu nákvæmlega hvað þau voru að gera. Tvo eftirmiðdaga fengu þau síðan heimsókn frá dönskum jafnöldrum í badmintoninu til að keppa við. Ekki var laust við að einhver í íslenska badmintonhópnum væri eitthvað óöruggur með sig meðan á upphitun stóð. Það var þó engin ástæða til þess þar sem okkar fólk stóð sig með prýði, leikimir voru jafnir og skemmtilegir fyrir utan leiki Birgir Örn Birgis og Sigríðar Geirs í tvenndarleikjunum en þau unnu flesta sína leiki. Enda eru þau ekki íslandsmeis- tarar í sínum flokki fyrir ekki neitt. Nú svo má ekki gleyma “landsleikjum” íslands og Danmerkur í körfu og blaki, sem íslendingar unnu að sjálfsögðu. Reyndar er það nú ekki nema hálf sagan. Það voru danskir skólanemar sem þarna voru tugum saman í skólabúðum sem komu að máli við Islendinga og eggjuðu þá til orrustu í körfuknatleik. Askorun- inni var að sjálfsögðu tekið. Þegar á hólminn var komið rúlluðu Islendingar dönskum upp, lokatölur urðu einhvers staðar nálægt 120 - 35. Auðvitað vorum við mjög góð í körfunni en hluti skýringarinnar var sá að þeir sem vildu leik voru úr einum dönskum skóla af mörgum. Þeir höfðu ekki samband við neina aðra landa sína á svæðinu. Þrátt fyrir þetta fannst Dönum ósigurinn mikil niðurlæging. Daginn eftir var því aftur komið að máli við Islendinga og nú átti aðetjakappi viðokkuríblaki. Blakið er vinsælt í dönskum skólum og nú átti að taka íslenska í bakaríið. Greinilegt var að ekki höfðum við öll spilað blak að einhverju ráði. Kristjana Hrafnkels, Kittý, úr Húnavatnssýslunni hafði þó sitthvað sýslað við blak og stjórnaði sínum mönnum eins og herforingi. A leikinn var nú mættur mikill söngkór danskur sem átti að halda dampinum hjá sínu fólki. Þar að auki höfðu þeir dönsku fengið einn kennarann sinn til aðstoðar sem ýmislegt kunni fyrir sér í blaki. En allt fór á sömu lund, Danir töpuðu, þó ekki væru lokatölur jafn niðurlægjandi og fyrri daginn. Eitthvað fór söngurinn fyrir ofan garð og neðan hjá dönskum þegar leið að lokum og þegar úrslit voru ráðin hrópaði einn dönsku áhangandenna sem einna hæst hafði látið til sinna manna:”Já, var það ekki, þið tapið aftur. Viljið þið baraekki bjóðaíslendingum ílúdónæst!” Slappað af eftir œfingu. A skemmtikvöldi. "Aðeins til vinstri, nei hœgri..." Agústa Pálsdóttir, leiðheinir Arna Olafi Asgeirssoyni í "Brúðkaups- nœturleik". Skemmtikvöldin Vikan var fljót að líða og fyr en varði var kominn tími til heimferðar. En það var dálítil rúsína í pylsuendanum. Kaupamannnahöfn. Reyndar var það ekki mikið, föstudagskvöld og laugard- agsmorgunn. En nóg til að kíkja á Strikið og í Tívolí. Hópurinn átti gistingu á því sem nefnt var “ungdómsheimili” en reyn- dist vera ódýrt og þreytulegt far- fuglaheimili þar sem herbergjum var ekki læst. Fyrir velvilja húsráðenda fékkst stórt herbergi fyrir allan hópinn. Þar með var málum borgið þar sem aðeins var um að ræða eina nótt. Fólk gat læst her- berginu og verið þar með þokkalega öruggt með farangur. Hópurinn fór því ánægður í Tívolí á föstudagskvöldinu. Það var því ánægður og þreyttur hópur sem héltheimáleiðþann 1 l.júnímeðósk um að ferðin hefði staðið aðeins lengur. Það verður önnur ferð á næsta ári! IH "Djö.. getur maður brunnið." Hilmar Frímannsson fœr smurningu hjá Kristjönu Hrafnkels. Steinunn fylgist með. 18 Skinfaxi

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.