Skinfaxi - 01.08.1988, Side 24
Afturelding á hraðferð
“Þettafórfram úrokkarbjörtustu vonum
og það má segja að við höfum komið
okkur sjálfum og öðrum á óvart.”
Sá sem þetta segir er Halldór Rag-
narsson, þjálfari sunddeildar Aftureldin-
gar úr Mosfellsbæ. Krakkarnir úr
Aftureldingu stóðu sig frábærlega. Það
eru ekki nema tvö ár síðan sunddeildin fór
af stað í núverandi formi og framfarirnar
hafa komið fram á þessu AMÍ móti.
Afturelding skaust úr 17. sæti í fyrra (þá
með 11 stig)uppí 10sætiðnúmeð85 stig.
“Mín spá var að við fengjum 55 til 60 stig
þannig að þetta er mjög gott. Geir Birgis-
son vann 4 Aldursflokkatitla og
drengjasveit Aftureldingar vann 4x100
metra skriðsundið. Svo var það kannski
til að kóróna mótið hjá okkur að við
vorum valin prúðasta lið mótsins. Þetta
var ánægjuleg rúsína í pylsuendanum en
setur auðvitað á okkur vissa kvöð fyrir
árið.”
-Og hvernig fannst Halldóri mótið takast
í heild?
“Alveg hreint frábærlega. Mótið var
mjög vel skipulagt, það gekk hratt og vel
fyrir sig og allur aðbúnaður var til
fyrirmyndar, matur og gistiaðstaða.”
-Halldór vonast nú eftir auknum áhuga í
Mosfellsbæ á sundíþróttinni í kjölfar AMÍ
mótsins.
“Okkur hefur vantað krakka í yngstu
hópana, hnokka, hnátur og sveina. Þessi
góði.árangur berst auðvitað um bæinn og
það er von á frásögn um mótið í blaðið
okkar hér í Mosfellsbæ. Það hefur alltaf
sitt að segja. Þá erum við að hugsa um að
gera alvöru úr gamalli hugmynd um að
fara í skólana og kynna sunddeildina.
Hugmyndin er að krakkar úr sunddeild-
inni verði með í þessari kynningu, segi frá
sundfþróttinni og hvernig það er að æfa
sund. Mér sýnist þetta góð hugmynd og
tilvalið að hrinda henni í framkvæmd nú.
Nú setjum við síðan markið á að halda
okkur í annarri deildinni. Eftir aðeins
tveggja ára æfingar er ekki hægt að ætlast
til meira. Það er nokkuð raunsætt.”
-En krakkamir í Aftureldingu hafa farið
fram úr raunsæinu hans Halldórs.
Halldór jánkar því. “Jú, það er rétt og
Þrír efnilegir í Aftureldingu. F.v. Valgeir Sœvarsson sem erfyrirliði hópsins,
Kristján Sigurðsson og Geir Birgisson.
Sundfólkið í Aftureldingu ípottinum að Varmá en hann er vinscell eftir æfingar.
Halldór Ragnarsson, þjálfari, ásamt aðstoðarfólki á bakkanum.
það væri þá bara enn skemmtilegra ef þau
gerðu betur, eins konarábætir. En ég geri
mig ánægðan með að halda okkur í 2.
deildinni.
Við erum í fríi núna en byrjum um
mánaðamótin ágúst/september á nýjum
æfingum. Við í sunddeildinni erum með
ákveðna hugmynd um æfingar sem krefst
velvildar góðra manna sem hafa með
sundmál bæjarins aðgera. Miglangarað
skipta hópnum upp íþrennt. A hóp í fyrsta
lagi sem væri sex sinnum í viku áæfingum
og auk þess í aerobikki og léttum lyftin-
gum til að liðka sig. Síðan væri það um
það bil 10 manna A-B hópur sem æfði 5
sinnum í viku og einu sinni í aerobikki og
lyftingum. Svo C hópur sem væru yngstu
krakkarnir. Þeir myndu æfa 4 sinnum í
viku. Með hann vonast ég til að fá
aðstoðarþjálfara. Það vill verða dálítið
erfitt, að minnsta kosti óþægilegt að
24
Skinfaxi