Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.08.1988, Page 27

Skinfaxi - 01.08.1988, Page 27
-Og eruð þið ánægð með viðbrögðin eftir árið? "Já, ég er mjög ánægður með þau. Anægðastur er ég með að finna það sífellt meira hjá fólki hér á Vestfjörðum að það erað taka við sér, það erfá trú á skólanum. Þetta er eins konar trúboð”. Kári brosir. “Sálnaveiðar. En það þyrfti að verða dálítil skip- ulagsbreyting á héraðsskólanum. Sveitarfélögin ættu að hafa dálitla eignaraðild að skólanum. Og þá um leið einn mann í skólanefnd. Þá held ég að Vestfirðingar myndu enn frekar líta á Núp sem sinn skóla. Sveitarfélög hafa sýnt viðleitni í þessa átt með því að styrkja nemendur sem koma hingað úr þeirra sveitarfélögunr. Ég vona að þeir geri það aftur. Hingað hafa komið nemendur frá Bíldudal og Patreksfirði. A síðamefnda staðnum er skóli sem tekur nemendur upp í 9. bekk. A Rauðasandi og Barðaströndinni eru hins vegar skólar sem hafa ekki 9. bekk. Ég vildi fá að sjá fólk þaðan hér á Núpi. Skólinn hefur burði til að sinna öllum nemendum á Vestfjörðum.” IH Gömul ímynd Þetta var öðrum þræði gert til að sýna fólki fram að hér er nú svolítið annað en grotnandi moldarkofar. Það þarf ekki að fara langt til að finna fólk sem stendur í þessari trú. Það er gömul ímynd sem búið er að hamra á í langan tíma að héraðsskólar séu úreltir, þeir séu fjársveltir og í niðurníðslu. Hér séu bara afbrotaunglingar sem ganga um og brjóta niður. Þessari ímynd þarf maðurað breyta °g gerir það best með því að fá fólk til að koma og sjá staðinn og það sem hér er að gerast. Og viðhorfin til héraðsskólaeru að hreytast. Ráðuneytismenn segja nokkuð eðlilega; "Þið þurfið að sýna að það sé þörf fyrir þennan skóla.” Og það er það Ýmislegt er það sem nemendur á Núpi taka sérfyrir hendur yfir skólatímann. Hér eru nokkrir þeirra á skólaskipinu Mími á Veiðum. Þau veiddu aðeins þennan eina í þetta sinnið. Iþróttahúsið á Núpi er orðið gamalt en það stendur fyrir sínu, með viðgerðum og endurhótum málanámskeið í vetur sem var mjög gagnlegt. Svo var glímunámskeið og á þaðfóru þrírnemendur á Grunnskólamót Glímusambandsins í Reykjavík. Við tókum einnig upp samskipti við héraðsskólann í Reykjanesi í ísafjarðardjúpi. Úr því varð heljarmikil keppni í knattspyrnu, körfubolta, skák, borðtennis og bandy. Núpsskóli vann fyrri keppnina og Reykjanesskólinn vann síðari keppnina, á sínum heimavígstöðvum. Þannig að þau halda bikarnum sem keppt var um fram á næsta vetur. Við héldum hér einnig körfuboltamót. A það mættu tvö lið frá Patreksfirði, frá Menntaskólanum á Isafirði og eitt lið frá Suðureyri. Þetta var nokkuð gott mót og skemmtilegt. sem gerist. Þá getum við farið suður og sagt; “Mætingin fer vaxandi, fólk vill þennan skóla, þetta og þetta þurfum við til að bæta skólann enn frekar.” Það var komið óorð á skólann og foreldrunt fannst ekki kræsilegt að senda sín börn hingað. Þetta er að breytast. Við þurfum að sýna fólki fram á að þetta er kostur, að senda þau hingað.” Ánægður með viðbrögðin Skinfaxi 27

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.