Skinfaxi - 01.08.1988, Síða 37
Einherji með yfirburðalið
Albert Eymundsson frá Hornafirði fjallar um 3. deild
íslandsmótsins í knattspyrnu, Norð-Austurlandsriðil.
Meistaraflokkur Einherja frá Vopnafirði í knattspyrnu.
Þegar þessar línur eru skrifaðar er
keppnin í norð-austur riðli þriðju deildar
Islandsmótsins í knattspyrnu rétt hálfnuð
°g staða liðanna er þessi:
Fj. leikja U J T Mörk Stig
Þróttur N. 8 5 1 2 16:7 16
Reynir Á. 9 5 1 3 16:12 16
Einherji 7 4 2 1 16:7 14
Dalvík 8 3 2 3 12:22 11
Hvöt Bl. 9 2 4 3 5:7 10
Magni 8 2 3 3 8:8 9
Huginn 9 2 3 4 15:21 9
Sindri 8 1 2 5 12:16 5
Þessi staða hefur komið mörgum, sem
fylgst hafa með liðunum undanfarin ár, á
0vart. Það er ekki auðvelt fyrir höfund
Þessa pistils að tjá sig um liðin og varla get
ég talist hlutlaus þar sem ég ber ábyrgð á
neðsta liðinu. Það sem kemurmest áóvart
er góð staða Dalvíkinga og slök staða
Sindra og jafnvel Magna líka sem ég átti
von á að kæmu sterkir til leiks þar sem þeir
virkuðu sannfærandi í fyrra og un-
dirbjuggu sig vel fyrir mótið. En lítum þá
á liðin í þeirri röð sem þau eru nú:
Reynir
Styrkur liðsins fellst í miklum
baráttuvilja, ákveðnum og áræðnum
framherjum ásamt mjög góðum
markverði, sem ég hef aldrei séðbregðast,
þó sjálfsagt eigi hann sína góðu og slæmu
daga. Þó Reynismenn séu á toppnum
núna hef ég ekki trú á að þeir endi þar.
Liðið vantar betri spilara og meiri breidd
til að eiga erindi í 2. deild. En það má
komast langt á reynslunni, viljanum og
metnaðinum.
Þróttur
Norðfirðingar hafa komið mjög á óvart
í sumar með góðri frammistöðu. Miklar
breytingar urðu á liðinu frá s.l. ári því
margir bestu leikmenn þeirra fluttu sig til
efri deildar. Ég hef aðeins séð Þróttarana
í einum leik sem þeir töpuðu fyrir Sindra
og virkuðu þeirekki sannfærandi. En mér
skilst að þeir hafi bætt sig með hverjum
leik og með velgengninni hafi skapast góð
stemming í liðinu sem er nauðsynleg ef
sigrar eiga að vinnast. Ekki spái ég þó
Þrótturum 2. deildarsæti frekar en
Reynismönnum. Til þess vantar þá meiri
styrkleika ogjafnvægi í liðið. En þettaeru
ungir strákar sem með þolinmæði gætu
ly ft Þrótti á það plan sem félagið var á fyrir
nokkrum árum.
Skinfaxi
37