Skinfaxi - 01.12.1995, Side 10
Ungmennafélagiö Mývetningur lét hendur standa fram úr ermum og hreinsaöi svœöi í nágrenni Mývatns.
Sumar fjörur eru hreinsaðar reglu-
lega en ýmislegt drasl frá sjó skolast
alltaf upp á land og er Steingríms-
fjöröur í Strandasýslu glöggt dæmi
þess. Þar er stöndin hreinsuð reglulega
af ungmennafélögum en alltaf safnast
þar drasl jafnóðum. Þótt móttaka fyrir
rusl frá skipum hafi batnab mikiö á
undanförnum árum hér á landi þá
virbist ekki allt rusi frá skipum komast
til skila. Þetta er ekki bara innlent
vandamál því borið hefur á því ab er-
lend skip hafa hent rusli í sjóinn inn-
an íslenskrar lögsögu sem síðan skol-
ast upp á land. Það má merkja á um-
búðum undan flöskum og matvörum
og öbru sem eru ljóslega af erlendum
toga. Mengunardeild sjávar hjá Holl-
ustuvernd ríkisins hefur reynt að rekja
uppruna þessara hluta til ákveðinna
skipa og hefur þeim í einstöku tilvik-
um verið skilaö til viðkomandi skipa
þegar þau hafa lagst að bryggju á Is-
landi.
Nú beina menn sjónum sínum að
því hvernig hægt er að koma í veg
fyrir að þetta rusl lendi úti í náttúr-
unni. Þá vaknar sú spurning hvernig
við meðhöndlum ruslið. Förum við
með ruslið á réttu staðina? Með áfram-
haldandi fræðslu og á,róðri vekur það
landsmenn til aukins skilnings á mikil-
vægi þess ab koma í veg fyrir að rusl sé
úti á víðavangi þannig að rétt meðferð
úrgangs verði enn frekar í hávegum
höfb en verið hefur hingað til.
Aðilar að alþjóöasamtökum
Til gamans má geta þess ab umhverf-
isverkefni UMFI '95 er aðili að alþjóð-
legum samtökum er heita „Clean up
The World", en þau eru aðili að Um-
hverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna.
Áttatíu lönd eiga abild að þessum
samtökum. Meginmarkmið samtak-
anna er að vinna að verkefnum sem
þessu og virkja almenning til þátttöku
í að hreinsa umhverfi sitt. Um leið að
efla vitund almennings um mikilvægi
hreins og ómengaðs umhverfis.
Uppeldislegt gildi
Ungmennafélagshreyfingin hefur frá
upphafi starfsemi sinnar sinnt um-
hverfismálum af miklu kappi. Mark-
miðið er að ná fram viðhorfsbreytingu
meðal almennings til bættrar um-
gengi við náttúru landsins. Meb því
að leiðbeina börnum um að setja rusl-
ið á rétta staði, fá þau til ab tína rusl,
jafnframt því að huga að hvaðan það
kemur, t.d. sælgætisbréfin og umbúðir
af drykkjarvörum, þá skilja þau betur
mikilvægi ábyrgrar umgengni um
náttúruna. Ræktun lýðs er það sem
hér um ræðir sérstaklega fyrir kom-
andi kynslóð sem er að vaxa úr grasi.
Tökum höndum saman
Það er mikilvægt að við lítum á um-
hverfisverkefni af þessum toga sem
vettvang þar sem við tökum höndum
saman, verðum virkir þátttakendur og
stuðlum að bættri umgengni við nátt-
úru landsins, ekki bara nú í ár heldur
sem hluti af áframhaldandi baráttu
fyrir betra og fegurra landi. Gleymum
því ekki að aðalútflutningurinn okkar
er hreint og ómengað land, hvort sem
við erum að tala um sjávarútvegsmál,
landbúnab eða ferðamál. Þab er á
ábyrgð okkar að spilla ekki auðlindum
fyrir komandi kynslóðum. - Umhverf-
ið er í okkar höndum.
Arina Margrét Jóhannesdóttir
verkefnisstjóri umhverfisverkefnis
UMFÍ
UMHVERFIÐ
í OKKAR HÖNDUM