Skinfaxi - 01.12.1995, Blaðsíða 65
UMFI
65
Hver Norðmaður hleypir að meðal-
tali fimm lítrum af úrgangsolíu út í
náttúruna á hverju ári. Þetta eru sam-
tals 20 milljónir lítra og enginn reynir
ab stöbva þetta. Miklu af eitraðri úr-
gangsolíu er einnig brennt og hleypt
út í andrúmsloftið. (Eru náttúruvernd-
arsamtökin dauð eöa er þeim borgað
fyrir ab þegja? Þessi samtök fá styrk
frá ríkinu en eins og alkunna er slátr-
ar maður ekki gæsinni sem verpir
gulleggjunum.)
Hundraðföld ending
í vélinni óhreinkast olían af miklu
magni af þungmálmum, sýrum og út-
fellingarefnum sem gera hana mjög
eitraða. Þegar olían nær að brenna,
annaðhvort í mótor eöa í olíubrenn-
ara, berst hluti af þessum eitruðu gas-
tegundum út með útblæstrinum. Aug-
ljóst er að það er betra að hreinsa olí-
una áður en hún er brennd en eftirá.
Eins og olían er nú notuð sem ódýr
orkugjafi er hvorki tekið tillit til
kostnaðar vegna mengunar né heilsu-
vandamála í framtíðinni. Við verðum
að fara að skilja að olían endist ekki
til eilífðar og ekki heldur náttúran.
Þetta gefur okkur tvo kosti: annað-
hvort að horfa til nýrra orkuauölinda
eða reyna að láta olíuna sem við höf-
um tii ráðstöfunar endast hundrað
sinnum lengur. Hvort tveggja er
mögulegt í dag. Spurningin er bara
hvað viö veljum og hvenær. Umhverf-
is-, heilsu- og fjárhagssjónarmiö ættu
að vega þungt við þessa ákvörðun.
Olíuvibhald
Olíuviðhald er aðferö til að hreinsa
olíuna algerlega bæöi fyrir notkun og
meban á notkun stendur. Hér er ekki
átt við þessa venjulegu síun á olíunni
heldur hreinsun sem fjarlægir stöbugt
öll laus, bundin og uppleyst efni í
olíunni. Olíuviðhald byggist á þeirri
hugmynd að smurolía missir aldrei
eiginieika sína ef allir þeir hlutir sem
geta brotið hana nibur eru hreinsaðir
jafnóðum úr henni.
Olíuviðhald er ekki bara hreinsun á
olíunni, þaö miðast líka við að halda
vélinni sjálfri og umhverfi hreinu. Allt
loft og olía verða að vera laus við vatn,
aukahluti, ryk og skít. Þar að auki
veröa allir sem fást við vélar að fá til-
sögn í fræðunum og verklagsreglum
um olíuviðhald. Slík fræðsla yrði að ná
til viðgerðarmanna, sölumanna, not-
enda, flutningsaðila, lagermanna og
þeirra sem vinna aö framleiðslu svo
ekkert verði tilviljunum háö. Hreinlæti
og gæði verða alltaf að vera í fyrirrúmi.
Hafa verður í huga að engin keðja er
sterkari en veikasti hlekkurinn.
Takmarkalaus ending
Olíuviðhaldsbúnaðinum skal komið
fyrir eins og hreinsibúnaði fyrir olí-
una og vélina. Gæta verður vel að því
aö búnaðurinn henti þeirri tegund
olíu sem á að hreinsa og viðhalda og
að búnaðurinn fjarlægi ekki aukaefnin
í olíunni (sérstaklega dísilolíunni).
Búnaðurinn verbur ab fjarlægja allar
agnir stærri en 0,1 míkrómetra úr
olíunni og þar að auki að geta hreins-
að laust og bundið vatn án þess að
það hafi áhrif á síunina/hreinsunina
eða búnaöinn. Loftið sem leikur um
vélina og fæðiloftiö verður einnig að
vera þurrt og ryklaust.
Ef allt þetta er fyrir hendi getur
bæði olían og vélin enst nær tak-
markalaust. Þessar ráðstafanir munu
hjálpa til við ab minnka notkun úr-
gangsolíu um 95% og þar að auki
stuðla að mörgum öðrum jákvæðum
hlutum fyrir samfélagið og umhverf-
ið. „Margt smátt gerir eitt stórt." Okk-
ar einkunnarorð eru ab umhverfis-
vernd á ekki að kosta peninga, hún á
ab borga sig.
Ægir Bjömsson, Hans Storebö
og Tom Seeberg
Europafilter
Kaffiskógar á
Islandi 1 dós = 1 tré
Skógarnir stækka
við sérhvern sopa!
SKOGRÆKT RIKISINS
mhihd
100% ARABICA GÆÐI
Sígarettur eru 50 ár
að eyðast í náttúrunni.
ilSÉSí
Krabbameinsfélagið.