Skinfaxi - 01.12.1995, Blaðsíða 47
önnur lög og reglugerbir um um-
hverfismál
Núoröið taka fjölmörg önnur lög og
reglugerðir á umhverfismálum en
mengunarvarnareglugerðin. Meðal
þeirra mikilvægustu eru lögin um mat
á umhverfisáhrifum og reglugerð um
sama efni. Samkvæmt þeim þarf að
meta áhrif framkvæmdar á umhverfið
áður en ráðist verður í hana, hvort
framkvæmdin skaði umhverfið og því
nauðsynlegt að grípa til mótvægisað-
gerða, eða hvort framkvæmdin hafi
ekki teljandi breytingar á umhverfinu í
för með sér. Ákveðnar framkvæmdir
eru ávallt matsskyldar, t.d. sorpförgun,
stóriðja eða vegalagning, í öðrum til-
fellum getur umhverfisráðherra ákveð-
ið hvort tiltekin framkvæmd þurfi að
fara í mat á umhverfisáhrifum.
Umhverfis- og náttúruvernd verður
ekki tryggð nema með góðu skipulagi
og þess vegna gegna skipulagslög og
-reglugerðir mikilvægu hlutverki í því
sambandi. í þeim eru ákvæði um að
gæta jafnan umhverfissjónarmiða við
gerð skipulags og forðast mengun eftir
því sem unnt er.
Segja má að umhverfismál hafi nú
fengið viðunandi lagaramma hér á
landi. Enn vantar þó nánari stefnu-
mörkun á ýmsum sviðum og að
ákvæðum laga og reglugerða verði
framfylgt svo að markmið þeirra um
umhverfisvernd og mengunarvarnir
nái fram að ganga.
Lúðvík E. Gústafsson jarðfrœðingur
sérfrœðingur Hollustuvemdar
ríkisins í úrgangsfórgun
Helstu lög og reglugerbir er
fjalla um umhverfismál:
• Lög um hollustuhætti og heil-
brigðiseftirlit nr. 81/1988, með
síðari breytingum
• Mengunarvarnareglugerð nr. 48/
1994, með síðari breytingum
• Lög um mat á umhverfisáhrifum
nr. 63/1993
• Reglugerð um mat á umhverfis-
áhrifum nr. 179/1994
• Skipulagslög nr. 19/1964
• Skipulagsreglugerð nr. 318/1985,
með síðari breytingum
• Lög um náttúruvernd nr. 47/1971
• Reglugerð um náttúruvernd nr.
205/1973
ÆVINTYRAHEIMUR
ÍSLENSKRA STRANDA