Skinfaxi - 01.12.1995, Blaðsíða 9
UMFÍ
9
um aö skipuleggja hvaöa svæöi skyldu
hreinsuö, fá leyfi landeigenda og semja
viö viökomandi sveitarfélag um förgun
á því msli sem safnaö var. Þátttaka í
hreinsunarátakinu var meö ágætum á
flestum stööum á landinu og tóku hin
ýmsu félagasamtök og starfsmannafélög
þátt í verkefninu, einnig tóku fjölskyld-
ur sig saman og lögöu hönd á plóginn.
Samhliða hreinsunarátakinu var
skráð niður hverskonar og hversu
mikið rusl fannst á hverjum staö.
Gögn og niöurstöður eru aö skila sér
til þjónustumiöstöövar UMFÍ og veröa
niðurstöður birtar meö haustinu og
þá veröa verölaun og viöurkenningar
veittar á grundvelli þátttöku.
Umhverfib er í okkar höndum því
mengun í náttúrunni er af manna
völdum
Þátttakendur í umhverfisverkefninu
einbeittu sér mest aö ströndum lands-
ins en einnig var töluvert hreinsaö
meðfram ám og vatnsbökkum. Þörfin
á þessu leyndi sér ekki því mikið af
rusli fannst. Samkvæmt þeim gögnum
sem borist hafa til UMFÍ var algeng-
asta ruslið spýtur, pappaúrgangur og
plast, t.d. slitrur af ýmsu plasti, bygg-
ingarplasti, innkaupaplastpokum og
fleiru. Einnig tíndust til plastílát und-
an matvælum, drykkjarvörum og
' hreinlætisvörum aö ógleymdu
frauðplasti. Þá var einnig mikið um
ýmsan pappa undan neytendavörum,
pappakassa og fleira. Einnig var tölu-
vert af málmílátum eins og t.d undan
drykkjarvörum og olíu. Vefnaðarvör-
ur, bandspottar, hanskar, skósólar,
skothylki, glerbrot, girni, gúmmídekk
og sígarettustubbar voru líka algengir
aöskotahlutir í fjöruborðinu.
Hvaban kemur ruslib?
Meö þeim upplýsingum sem safnaö
hefur verið er hægt aö reyna að rekja
hvaðan rusliö kemur. Uppruna rusls-
ins má rekja til umgengni og neyslu-
venja okkar, annars vegar á landi og
hins vegar á sjó. Auðvelt er aö átta sig
á uppruna sumra hluta t.d. netadræsa,
veiðihylkja, veiðilína og sígarettu-
stubba. Erfiöara er að greina uppruna
plasts, sumt var greinilega byggingar-
plast og landbúnaöarplast en annað
ógreinilegir plastbútar. Mikiö af um-
búöum undan matvælum fannst og er
ljóslega einhvers staðar pottur brotinn
varöandi söfnun og förgun á þeim.
Mögulegt er að þessu rusli hafi verið
hent í sjó af skipum eöa af landi.
Sums staðar er ekki gengiö nógu vel
frá ruslahaugum og getur þá rusliö
fokiö út á sjó. Einnig vakna spurningar
um umgengni feröamanna þegar um-
búöir undan matvælum finnast inni í
landi t.d. meöfram vötnum og ám.
Mikib er af plastdrasli víöa á fjörum, ár- og vatnsbökkum landsins.
Af stærri hlutum var töluvert af
netadræsum og fiskikössum. Stór
málmstykki, hlutar af bílhræjum og
bátsflökum fundust einnig en mis-
munandi var hvaöa tök þátttakendur
höföu á að fjarlægja þau. Sums staðar
var töluvert af rekaviö sem var látinn
vera í flestum tilfellum.
Fjölskyldur úr Reykjavík tóku sig saman og hreinsuöu hluta af Hvalfjaröarströnd.