Skinfaxi - 01.12.1995, Blaðsíða 41
UMFÍ
ammmmammmm 41
„GRÆNIR FERÐAMENN
- NOKKUR ORÐ TIL UMHUGSUNAR
Áöur en þú ákveöur aö fara í frí, geröu
þér grein fyrir því hverjar ástæöurnar
séu fyrir því aö þú vilt fara í frí og í
framhaldi af því hvernig frí þú vilt fara
í. Þaö er mikilvægt aö hver einstakl-
ingur geri þaö upp viö sjálfan sig hvort
hann vill kaupa þaö sem ferðaskipuleg-
gjendur bjóða upp á eöa hvort hugur-
inn stefni annað. Láttu ekki almenn-
ingsálitið hafa of mikil áhrif á þig. Þaö
er mjög algengt að fólk rjúki til og geri
„bara eins og allir hinir".
Skilgreindu sjálfan þig og endur-
skoðaðu út frá umhverfissjónarmið-
um: Ef þú ákveður aö feröast að heim- *
an, veldu þá réttan ferðamáta sem
hentar tiigangi þínum. Þaö þjónar litl-
um tilgangi aö leggja á sig 2ja vikna
feröalag til stórborga heimsins ef þig
langar frekar til aö slappa af í viku á
rólegum staö eða jafnvel heima.
Margir snúa heim úr sumarfríum sín-
um enn þreyttari og uppgefnari en
þegar þeir lögöu af staö.
Ferðastu utan háannatíma og reyndu
aö forðast margmenna áfangastaöi.
Það er oft ódýrara að ferðast utan há-
annatíma og auk þess tekur þú þá
minni þátt í því aö auka neikvæð
áhrif „fjöldaferöamennskunnar".
Veldu „rétta" ferðaskrifstofu eöa feröa-
skipuleggjenda til aö ferðast meö og
taktu ekki endilega fyrsta eöa ódýrasta
tilboðinu. Spuröu um umhverfis-
stefnu fyrirtækisins og starfsaðferöir
þess á þeim áfangastað sem þú hefur
ákveðið að feröast til. Fer einhvers-
konar endurnýting á pappír eöa öör-
um úrgangsefnum fram hjá fyrirtæk-
inu? Tekur fyrirtækiö þátt í að styöja
við þátttöku innfæddra aðila í ferða-
þjónustu á svæðinu? Tekur fyrirtækiö
þátt í kostnaöi vegna hreinsunar
baðstranda eöa annarra verkefna á
sviði umhverfismála? Veit viökom-
andi ferðaskipuleggjandi hvað margir
feröamenn eru á tilteknum áfanga-
stað á háannatíma? Fara hagsmunir
feröaþjónustu og verndum umhverfis
saman á áfangastaönum? Ef ekki,
hyggst fyrirtækiö þá stuöla aö því aö
slíkt gæti orðið?
Leggöu þaö á þig að lesa þér til um
áfangastaðinn sem þú feröast til. Þú
nýtur gestrisni heimamanna betur ef
þú hefur þekkingu á þjóðfélaginu og
landinu sjálfu. Taktu eins lítiö meö
þér og þú getur af pakkningum, s.s.
utan af snyrtivörum. Losun úrgangs-
efna og frágangur á rusli er víöa
vandamál. Þegar þú ert kominn á
áfangastaö, reyndu þá aö nýta þér al-
menningssamgöngur sem mest í staö
þess aö keyra um á einkabíl. Þaö er
oft líka alveg ágætt aö ganga.
Veldu aö gista hjá heimamönnum, á
gististöðum sem eru í eigu heima-
manna en ekki í eigu stórra alþjóö-
legra fyrirtækja. Þægindin eru ekki
alltaf þau sömu en gistingin kannski
ódýrari og þú kemst í nánari snert-
ingu við menningu viðkomandi
lands.
Hugleiddu hvaöa áhrif vera þín hefur
á náttúrulegt og félagslegt umhverfi
áfangastaöarins. { sumum löndum
eru auölindir sem okkur þykir sjálf-
sagöar af skornum skammti svo sem
vatn. Aö meöaltali nota ferðamenn
fjórum sinnum meira vatn en inn-
fæddir, t.d. í þriöja heims löndum.
Berðu viröingu fyrir tilfinningum og
hefðum heimamanna t.d. hvaö snert-
ir tökur á ljósmyndum og klæðnað.
í sumum löndum er ljósmyndun
mun óþekktara fyrirbæri en hér hjá
okkur í hinum vestræna heimi.
Mundu aö þú ert gestur í heimalandi
annarra.
Það er ekki alltaf viðeigandi aö prútta
um verö á þeim vörum sem þú
hyggst kaupa. Sýnt hefur veriö fram á
aö margur innfæddur beri skarðan
hlut frá boröi í viðskiptum fyrir þá
ástæðu eina aö sköpuö hefur veriö
ímynd þess aö „þaö sé hefö" aö
prútta. Best er aö finna út sjálfur hver
venjan sé og haga sér samkvæmt því.
Þegar þú kemur til baka úr fríinu,
gefðu þér tíma til aö skrifa til eða
heimsækja ferðaskipuleggjandann
eöa þann þjónustuaðila sem þú skipt-
ir viö og segöu honum hvort ráölegg-
ingarnar sem hann gaf þér voru
nægjanlegar og góðar. Segðu.frá því
hvort þér sýndist áhrif ferðaþjónustu
vera jákvæö eöa neikvæð og ef þú
hefur einhverjar hugmyndir, bentu
honum á hvernig hann geti breytt
viðskiptaháttunr sínum til betri vegar
ef þess þarf.
Sigríður Þrúður Stefánsdóttir
ferðamálafrœðingur