Skinfaxi - 01.12.1995, Blaðsíða 34
34
UMFÍ
SAMBUÐ FYRIRTÆKIS
OG UMHVERFIS
Olíuverslun íslands hf. (Olís) er sextíu og sjö ára gamalt fyrirtœki og elst olíufélaga
á Islandi. A undanförnum árum hafa umhverfismál skipaö háan sess í rekstri Olís
og starfsmenn hafa farib ab „hugsa grœnt" og reyndar grœnna meb hverju ári. í
nýlegri vibhorfskönnun mebal almennings var spurt hvaba íslenskt fyrirtceki vœri
umhverfisvœnast. Þar lenti Olís í efsta sœti og þykir starfsmönnum ab sjálfsögbu
vœnt um þá viburkenningu. En betur má ef duga skal og starfsmenn Olís slá
hvergi slöku vib í vibleitni sinni til ab bœta sambúb fyrirtœkisins og umhverfisins.
Olís flytur inn, dreifir og selur rúm-
lega tvö hundruð þúsund tonn af
eldsneyti á ári auk annarra vöruteg-
unda. Eldsneyti fyrir bifreiðar, flugvél-
ar, skip, verksmiðjur, fyrirtæki og
vinnuvélar. Hver lítri er meðhöndlað-
ur fimm sinnum þannig að starfs-
menn félagsins höndla um eina millj-
ón tonna eldsneytis á ári eða um þrjár
milljónir lítra á dag.
Þessi umfangsmikla meðferð hættu-
legra efna sem geta mengað jarðveg,
loft, vötn og höf, krefst aga, aðhalds
og ábyrgðar. Öryggis er gætt í hví-
vetna og hvergi sparað til að hætta
vegna starfsemi fyrirtækisins verði
eins lítil og mögulegt er.
Olís hugsar um umhverfisvernd í
smáu sem stóru. Undir póst fyrirtækis-
ins eru notuð fjölnota umslög úr end-
urunnum pappír og pappakassar eru
notaðir margsinnis. A sumum þjónust-
ustöðvum gefst fólki kostur á að kaupa
frostlög, rúðuhreinsi og olíu „af bar"
sem kallað er og sparar það mikla um-
búðanotkun og á þeim stöðvum eftir
að fjölga sem bjóða þessa þjónustu.
Bensín það sem félagið selur er með
hreinsiefnum sem sannanlega minnka
útblástur kolsýrings, kolvetnis og köfn-
unarefnis.
Þá ætti flestum að vera kunnugt um
stuðning viðskiptavina Olís við Land-
græðsluna, en hluti verðs hvers lítra af
eldsneyti rennur til hennar. Þegar hafa
verið afhentar þrjátíu milljónir króna
og þegar verkefninu lýkur mun Land-
græðslan hafa fengið fimmtíu millj-
ónir króna frá Olís. Fimmtíu milljónir
þýða uppgræðslu tuttugu milljón fer-
metra lands.
Olís gaf einnig í sumar sem fyrri
sumur viðskiptavinum sínum fræpoka
til dreifingar á gróðurlítið land. Einnig
hefur félagið staðið fyrir fræðslu um
umhverfismál meðal ungs fólks með
útgáfu fræðslumyndbanda og bóka.
Hér er aðeins tæpt á fáum atriðum í
umhverfisstefnu Olís.
Starfsmenn Olís vilja að fyrirtækið
verði framúrskarandi. Framúrskarandi
fyrirtæki stendur ekki undir nafni nema
það uppfylli þarfir viðskiptavina, starfs-
manna, eigenda og umhverfis síns.
Einar Ólafsson
forstöðumaður sölu- og
þjónustudeildar Olís
Landgræbsla er lífsnaubsyn
Fyrir skömmu voru afhent verðlaun
í ljóða- og ritgerðarsamkeppni með-
al nemenda sjöunda bekkjar grunn-
skóla sem Landgræðslan efndi til
ásamt menntamálaráðuneytinu og
með stuðningi Olís. Alls voru veitt
ellefu verðlaun fyrir ljóð og ritgerðir
en þátttaka var góö og barst efni
víöa að. Brúarásskóli á Héraði og
Hólabrekkuskóli í Reykjavík fengu
sérstakar viðurkenningar fyrir góöa
þátttöku og vandaða vinnu.
Yfirskrift samkeppninnar var
Landgræðsla er lífsnauðsyn en verð-
launaafhending fór fram í Gunnars-
holti en flogið var með verðlauna-
hafa frá Reykjavík austur í Gunnars-
holt í flugvél Landgræðslunnar.
Jafnframt var tækifærið notað og farið
útsýnisflug yfir nokkur þau svæði
sunnanlands sem Landgræðslan hefur
einbeitt sér að síðustu ár, þá var
einnig svæði græðslunnar í Gunn-
arsholti skoöað.