Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.12.1995, Page 20

Skinfaxi - 01.12.1995, Page 20
Flokkun heimilisúrgangs; möguleikar í dag - framtíöarsýn ■ X Urgangur er hvers kyns efni eba hlutir sem einstak- lingar eöa lögaöilar ákveöa aö losa sig viö. Undan- farin ár hefur veriö miöaö viö aö á íslandi falli til um 230 þúsund tonn af úrgangi árlega, þaö er um 890 kg á íbúa á ári. Hollustuvemd ríkisins hefur endur- metið árlegt magn úrgangsefna miðað við upplýsingar frá nokkrum förgun- arstöðum. Telur stofnunin að á árinu 1994 hafi fallið til á landinu 180 þús- und tonn af úrgangi eða um 700 kg á íbúa. Skiptist úrgangurinn þannig: Tegund úrgangs Magn Vægi tonn/ári % Neysluúrgangur 75.600 42 Framleiðsluúrgangur 43.200 24 Fiskvinnsluúrgangur og stóriðja (áætlað magn) 36.000 20 Sláturúrgangur 3.600 2 Garðaúrgangur 5.400 3 Brotamálmar 16.200 9 Samtals 180.000 100 Heimilis- eöa neysluúrgangur Heimilis- eða neysluúrgangur eru leif- ar, rusl og umbúðir sem falla til við heimilishald eða aðra starfsemi og úr- gangur sem hefur svipaða eiginleika. Eins og kemur fram á mynd 1 þá er heimilis- eða neysluúrgangur talinn um 42% af heildarmagni úrgangs sem fellur til, þ.e. árlegt magn er um 300 kg á íbúa á ári. Fjögurra manna fjöl- skylda skilar því af sér 1,2 tonnum af heimilisúrgangi árlega. Á heimsráðstefnu Sameinuðu þjóð- anna um umhverfi og þróun í Ríó de Janeiro árið 1992 var samþykkt víðtæk framkvæmdaáætlun, þ.e. Dagskrá 21. Sú áætlun telur til leiðir og markmið sem þjóðum heims ber að stefna að til að stuðla að sjálfbærri þróun. Hugtak- y ið sjálfbær þróun á um það að ekki sé gengið á auðlindir náttúrunnar, og einn hluti af því ferli er að huga að úrgangsmálum. Starfshópur um fram- kvæmdaáætlun í umhverfismálum á sviði úrgangsmyndunar, sorphirðu og meðferðar á spilliefnum setti fram eft- irfarandi hugmynd um sorphirðu í skýrslu sinni til umhverfisráðherra: Hér kemur fram að fyrst skal hugað að því aö koma í veg fyrir að úrgang- ur myndist, en síðan að endurnota og endurnýta það sem mögulegt er. Varð- andi heimilisúrgang þarf því fyrst og fremst að reyna að meta með hvaða hætti draga má úr magninu og síðan hvort skila þarf öllum úrganginum til förgunar eða hvort mögulegt er að nýta tiltekin úrgangsefni í endur- vinnslu eða endurnýtingu. Ef endur- nýta á einhver úrgangsefni verður yf- irleitt að halda þeim tegundum sem á að skila til endurvinnslu aðskildum frá öðrum. £ Flokkun heimilis- eöa neysluúr- gangs Víða eru nú komnar gámastöðvar þar sem hægt er að skila af sér ýmsum tegundum af úrgangi sem til fellur við heimilishald svo sem pappír og pappa, garðaúrgangi, timbri, brota- málmum, spilliefnum, heimilistækj- um o.s.frv. Fjöldi flokka á gámastöðv- um fer eftir því hvort og þá hvernig á Fiskvinnslúrgangur og stóriðja Framleiðsluúrgagnur 24% Mynd 7. Áœtlub samsetning úrgangsefna 1994. Heimild: Hollustuvernd ríkisins.

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.