Skinfaxi - 01.12.1995, Qupperneq 25
öðrum stendur oft orð á móti orði.
Tökum sem dæmi að kvartað er und-
an rusli í fjöru. Þar ægir saman alls
kyns drasli, almenningur sér
óþverrann, en enginn gengst við að
vera valdur að þessu og þó margt
bendi til að einhver ákveðinn aðili sé
sekur er ekki hægt að sanna það.
Hugsanlegt er að áhöfnum skipa verði
gert skylt að gera skrá yfir það rusl og
þann úrgang sem til fellur og settur er
í land og þannig verði hægt að finna
út hvað hefur lent í sjónum. Margir
verða eflaust til að andmæla því, að
slíku kerfi verði komið á en um leið
og þeir gera það vil ég biðja hina
sömu um ráð um hvernig á að koma í
veg fyrir að það rusl sem ekki má
fleygja í sjóinn lendi þar, því þrátt fyr-
ir boð, bönn og áróöur fyllast fjörur
landsins víða af rusli. Enginn yrði
ánægðari en yfirvöld ef einhver kæmi
með lausn sem auðveldar eftirlit með
lögum og reglum og mat á árangri.
Nauðsynlegt er að koma því við-
horfi inn hjá landsmönnum að það sé
skylda hvers og eins að umgangast
land, strendur og haf eins og þann
hlut sem honum þykir vænst um og
sjá til að aðrir komist ekki upp með
annað, ef verulegur árangur á að nást.
Mat á árangri
Það hefur löngum viðgengist hér á
landi að nota frasa eins og „við ís-
lendingar erum svo fáir og þess vegna
þurfum við ekki að hafa áhyggjur". í
nútímasamfélagi eru sífellt háværari
kröfur um að sýnt verði fram á með
staðfestum upplýsingum að ástandið
sé eins og sagt er.
Það dynur löngum á opinberum að-
ilum að þeir sitji og semji reglur og
láti menn fylla út hin og þessi eyöu-
blöð. Hvers vegna þarf að fylla út
þessi eyðublöð? Jú til þess að hægt sé
að fylgjast með því að farið sé að lög-
um og reglum og meta árangur.
Til að meta árangur þarf að gera
reglulegar kannanir á ástandinu, en
ekki er til neitt eitt allsherjarsvar við
því hvernig best er gera slíkar kannan-
ir. Góð viðleitni til að nálgast það er
sú flokkun sem UMFÍ lagði upp með í
umhverfisátaki sínu, sem hefur verið í
gangi undanfarið. Ekki er hægt að
segja hvernig til hefur tekist fyrr en
úttekt er lokið og átakinu hefur verið
fylgt eftir á einhvern hátt. Það er hins
vegar alveg Ijóst að ef við viljum sýna
fram á bætta umgengni viö hafið
verðum við að nota ákveðnar og helst
staðlaðar aðferðir til að meta ástand-
ið, þannig að hægt sé að gera saman-
burð milli tímabila.
Mebferb úrgangs sem safnab er
Eitt atriði sem stundum gleymist er að
þegar búið er að sáfna saman öllu því
drasli sem liggur á víö og dreif þarf að
farga því á viðeigandi hátt. Víða út
um land er gripið til þess ráðs að
brenna það. Það verður til þess að
ruslið hverfur, en þá gleymist oft að
þegar brennt er við opinn eld gjósa
upp ýmis eiturefni sem hafa mjög nei-
kvæð áhrif á líf og umhverfi. Við slík-
ar aðstæður vaknar sú spurning hvort
rétt sé að eyða sjáanlegum óhrein-
indum með því að framleiða önnur
sem ekki sjást. Þetta á einkum og sér í
lagi við um ýmiskonar plastefni.
Mín skoðun er sú, að ef þess er
nokkur kostur þá skal farga þessu eftir
þeim reglum sem eru í gildi á hverj-
um tíma og nota skilagjald til að auka
skil á úrgangsefnum til förgunar. Eyð-
ing á að vera hluti af framleiðslu-
kostnaði og framleiðsluferlinu lýkur
ekki í raun fyrr en búið er að farga
hlutnum á lögmætan hátt.
Helgi Jensson
mengunarvömum sjávar
Hollustuvemd ríkisins
Pappír er
Pappírssöfnun sparar mikið fé, vegna þess að ekki þarf að farga
pappírnum eins og öðru sorpi. Pappírinn er fluttur til Svíþjóðar
og endurunninn. Markmiðið er að fimmfalda útflutning á
pappír til endurvinnslu.
Söfnunargámar fyrir dagblöð, tímarit og annað prentefni eru
víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu, m.a. við verslunarmiðstöðvar
og bensínstöðvar. Gámarnir eru vel merktir.
Helmingi minni orkunotkun, helmingi minni vatnsnotkun,
fimm sinnum minni loftmengun, - þetta og margt fleira vinnst
með því að endurvinna pappír. Er ekki til nokkurs að vinna?
endurtekið efni
Söfnum pappír - sýnum vistvernd í verki