Skinfaxi - 01.12.1995, Page 64
Nýjung í nýtingu spilliefna
Meö því aö leggja á mengunarskatt og greiöa skila-
gjald af úrgangsoiíu eru norsk stjórnvöld á rangri
braut. Nœr vœri aö beina sjónum aö árangursríkari
aöferöum sem hafa miklu minni mengun i för meö sér.
Meö olíuviöhaldi er olían hreinsuö jafnóöum og þann-
ig er hœgt aö koma í veg fyrir aö úrgangsolía myndist.
sköttum sem lagöir hafa veriö á allar
smurolíutegundir, en því miöur fer
aöeins lítiö brot af sköttunum í þetta.
Hvers vegna einbeita menn sér ekki
aö því aö leysa sjálft vandamáliö í
staö þess aö verja öllum tímanum og
fjármununum í aö greina það og skrá-
setja? Hið sama er upp á teningnum á
fleiri sviðum, t.d. í stefnu norska ríkis-
ins í umferðaröryggismálum.
Hvað er úrgangsolía?
Úrgangsolía er öll olía sem búið er að
nýta og á að farga, t.d. mótorolía, gír-
olía, olía í vökvakerfum o.s.frv. í fyrra
féllu til 40.000 tonn af úrgangsolíu í
Noregi og reiknað er með 10 til 20%
aukningu á ári.
í staö þess að nota nýja tækni til aö
leysa þau vandamál sem úrgangsolían
skapar er ómældu fjármagni variö til
aö auka afkastagetu móttökustööva
fyrir hana. Milljónir króna renna til
nefnda og ráða sem sett eru á laggirn-
ar til að kortleggja og skrá olíunotk-
unina. Einnig fara miklir peningar í
aö hvetja menn til að skila inn úr-
gangsolíu meö því að greiða skilagjald
fyrir hvern lítra. Árið 1995 veröa
greiddar 75 milljónir norskra króna í
skilagjald í Noregi, sem er að vísu
ljómandi góö viöleitni hjá ríkinu.
Samt eru þetta aðeins smápeningar
og hreinasti áróður hjá stjórnvöldum
til aö afla stefnu þeirra í mengunar-
skattamálum stuönings. Skilagjöldin
eru einmitt fjármögnuö með þessum
Eitra&ur ska&valdur
Úrgangsolía er þúsund sinnum eitr-
aðri en ný olía. Sýnt hefur veriö fram
á aö einungis 0,1 mg af úrgangsolíu í
hverjum lítra af vatni getur orsakað
genabreytingar hjá vatnalífverum. Úr-
gangsolían drepur fugla, fisk og aðrar
vatnalífverur þegar henni er sleppt út
í náttúruna og enginn getur sagt fyrir
um hver áhrifin veröa til langframa.
Nái úrgangsolía aö síga niður í grunn-
vatnið mengast þaö til mjög langs
tíma auk þess sem hún hefur áhrif á
lífríkiö í hafinu.