Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.12.1995, Page 76

Skinfaxi - 01.12.1995, Page 76
Umhverfisvernd alla daga Umhverfismál hafa alltof lengi veríb umfjöllunarefni sérfrœöinga, stjórnmála- og embœttismanna nœr ein- göngu. Umfjöllun um umhverfismál hefur einatt veriö flókini, frœöileg og úr tengslum viö veruleika og at- hafnir almennings. Fjölmiðlar hafa verið heldur ódrjúgir við að setja hlutina í samhengi. Hin yfirþyrmandi vandamál hafa ekki ver- ið sett í samhengi við daglegt líf okkar neytendanna, almennings. Okkur hef- ur í ákaflega takmörkuðum mæli verið bent á hver okkar þáttur er í þessum vanda og hvernig við getum lagt um- hverfinu lið á fjölmarga vegu og þó með afar einföldum hætti. Ekki með sérstökum átaksverkefnum, þótt þau séu afar góðra gjalda verð, heldur alla daga, í stóru sem smáu. Grænu bókinni um neytendur og umhverfi er ætlað að bæta úr þessum skorti á upplýsingum og samhengi. Neytendasamtökin, Norræna félagið og grænu fjölskyldurnar í Kópavogi tóku höndum saman um útgáfu rits- ins með það að markmiði að gefa fólki kost á aðgengilegum leiðbeining- um um þab hvernig heimilin geta sveigt neysluvenjur sínar að hagsmun- um umhverfisins og dregið úr þeim skaba sem neysluhættir okkar valda á umhverfinu. Margir kannast við hugtakið sjálf- bær þróun. I því felst ab þróun geti haldið áfram og velferð haldist hjá þeim sem nú gista jörðina án þess ab verulega sé dregið úr möguleikum síð- ari kynslóða til hins sama. Hugtakið sjálfbær neysla hefur sama inntak en beinir sjónum okkar að samhengi neyslu og umhverfis. Sjálfbær neysla er háleitt markmib og fjarlægt miðað við háttalag okkar nú urh stundir. Við getum hins vegar nálgast það með því að tileinka okkur einkunnarorðin þrjú: Endurvinna! Endurnota! NOTA MINNA! Til þess að geta fetaö inn á braut sjálf- bærrar neyslu þarf þrennt til: Vilja, upplýsingar og trúna á að framlag okkar skiptir máli. Græna bókin um neytendur og umhverfi hefur ab geyma ýmsar gagnlegar upplýsingar og boðar þá trú ab framlag okkar allra skipti máli. Hún er semsé fyrir fólk sem hefur viljann til þess að sveigja neysluvenjur sínar í þágu umhverfis- ins. Hún er ekki bænaskjal til yfir- valda um úrbætur í umhverfismálum. Hún er fyrir þá sem vilja taka málin í eigin hendur og sýna umhyggju sína fyrir umhverfinu í verki. Það að leggja umhverfinu lib alla daga snýst ekki um að taka upp mein- lætalifnað. Vib þurfum heldur ekki aö slá af kröfum um raunveruleg lífs- gæði. Kannski þvert á móti. Sem fyrr segir þarf þó vilja og dálítið skipulag. Þetta kemur ekki af sjálfu sér en er þó engum um megn. Við getum þetta öll! Garðar Guðjónsson blaðamaður og höfundur Grcenu bókarinnar um neytendur og umhverfi Náttú rusýn * Safn greina um siðfræði oq náttúru Safn greina um siðfræöi oa nátt ÉÉPfc .. Náttúrusýn geymir á priðja tug greína eftir jafnmarga höfunda þar sem horft er til náttúrunnar frá sjónarhóli trúar, siðfræði, samfélags, lista og vísinda. I bókinni er einnig að finna fjölda íslenskra náttúruljóða og eftirprentanir af landslagsmálverkum. Ritstjórar eru Róbert H. Haraldsson og borvarður Arnason. Náttúrusýn kom út árið 1994, hún er 356 bls. að stasrð og útgefandi er Siðfrasðistofnun Háskóla Siðfrseðístofnun • Há&kólaútgáfan te> Ratmsóknarslofnun í siöfræði

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.