Skinfaxi - 01.12.1995, Qupperneq 83
UMFÍ
83
Hvab eru abrar
þjóbir ab gera?
• í Pennsylvaníuríki í Banda-
ríkjunum þarf að greiða 5
dollara fyrir förgun á einu
bíldekki.
• í sumum bæjarfélögum í
Bandaríkjunum á sér stað ná-
kvæm flokkun þar sem al-
menningur flokkar heimilis-
úrgang í brúnt, grænt og
glært gler, plast, pappa,
pappír og álumbúðir.
• í Þýskalandi eru framleið-
endur umbúða ábyrgir fyrir
því að taka á móti umbúð-
um sínum, sem verða að
vera hæfar til endurvinnslu.
Þeir eru einnig ábyrgir fyrir
því að fara með umbúðirnar
til endurvinnslu. Hefur það
leitt til þess að framleiðend-
ur hafa reynt að draga úr
umbúðamagni vara.
• Skilagjald á rafhlöður í Sví-
þjóð leiddi til þess að 95%
rafhlaðna var skilað í spilli-
efnamóttöku árið 1993, bor-
ið saman við 12% á íslandi.
• Danir leggja svokallaða um-
hverfisskatta á bensín, olíu,
vatn og sorp og ætla á móti
að lækka tekjuskatt um 16%
fyrir 1998. Hugmyndin er að
skattlagningin hvetji menn
til að draga úr mengun frek-
ar en neyslu.
• Frá og með 1996 munu iðn-
fyrirtæki í Sviss borga svo-
kallaðan kolefnisskatt, rúm-
ar 2.000 íslenskar krónur á
tonnið af koltvísýringi (COz)
sem fer út í andrúmsloftið.
Þriðjungur teknanna fer til
umhverfismála en hinn hlut-
inn í að minnka aðra skatta
og gjöld.
• Ferðamenn í Japan og í öðr-
um löndum sjá oft liðinn
„umhverfisgjöld" tilgreindan
á reikningum frá hótelum og
minjagripaverslunum á vin-
sælum ferðamannastöðum.
Afraksturinn af þessum
gjöldum fer í að halda stöð-
unum hreinum og vernda
náttúru þeirra.
• Flest hótel í Týrol í Austurríki
biðja gesti nú að flokka rusl
til endurvinnslu og hafa
hætt að bjóða hluti eins og
sultu, smjör og hársápu í
pínupakkningum til að draga
úr úrgangi. Hóteleigendur,
sem voru hræddir við að
móðga gesti með þessu, hafa
orðið hissa á jákvæðum við-
brögðum.
• Mengandi fyrirtæki í Los Ang-
eles í Bandaríkjunum þurfa að
draga úr mengun annars stað-
ar til þess að fá starfsleyfi.
Mörg ný fyrirtæki hafa gripið
til þess ráðs að kaupa gamla
bíla án hvarfakúta og taka þá
úr umferð til að fullnægja
þessum skilyrðum.
• Umhverfisverndarsamtök
hafa keypt upp hluta af er-
lendum skuldum ríkja á borð
við Brasilíu og Kosta Ríka
gegn því að ríkin friði ákveð-
inn hluta af regnskógum sín-
um.
• Fyrirtæki í timburiðnaði í
Indónesíu greiða gjald fyrir
tré sem þau fella, en fá það
endurgreitt ef þau planta
nýjum trjám í staðinn.
• Venjulegar ljósaperur eru
skattlagðar í Danmörku, en
sérstakar orkusparandi perur
eru undanþegnar skattinum.
Þá er sérstakur skattur lagður
á plastmál, plasthnífapör og
annan einnota boröbúnað.
• í Þýskalandi er gjald lagt á há-
vaða frá flugvélum. Það er
innheimt um leið og lending-
argjald og er því hærra eftir
því sem flugvélagerðin er há-
værari.
• í Svíþjóð er rekinn úrelding-
arsjóður bifreiða til að hvetja
menn til að skila ónýtum
bílum til viðurkenndra söfn-
unarstöðva. Menn borga
1.300 sænskar krónur í sjóö-
inn við kaup á nýjum bíl en
fá 1.500 krónur til baka þeg-
ar þeir skila bíl með skoðun
til úreldingar, en 500 kr. ef
bíllinn er án skoðunar.
• Námufyrirtæki í Ástralíu þurfa
að skrifa undir skuldabréf þar
sem þau skuldbinda sig til að
koma umhverfinu í samt lag
að námugreftri loknum. Upp-
hæð bréfsins fer eftir áætluð-
um kostnaði við hreinsun og
lagfæringar.