Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1942, Page 12

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1942, Page 12
7- 7 Sjáum viö af fornum fræðum frjáls var jafnan sjámannslund, fardrengir í fögrum lclæðum flcyttu sfceið um mararsund. Atlantsálinn óðu óblauðir, upj} að ströndum lands vors bar, hræddust ekki hel né nauðir hugumstórir víkingar. Þeirra starf er starfið mesta - stöndum, föllum öll með því. Þeirra starf er starfið versta, stríðum hafs í veðragný. Þeir eru okkar styrkust stálin, stoðin sem upp landið ber. Þeir eru okkar þjóðarsálin, því er skylt þá heiðrum vér. Árin liðu, aldir runnu, öllu tæknin hefir breytt, greipar iðnar gullið spunnu, græði úr var fénu veitt. Bæir risu, byggðist dalur brúarmóðu tengslin sterk. Því sjá bæði hrund og halur hulin liggja ei sjómannsverk. Þó að höggvist skörð í skjöldinn skelfist ek.ki drengja val, við gamla Ægi glíma um völdin, gulli ná af yggldum hal. Fórnarlund er farmanns hróður fagurgreypt í hvers eins borð. Styðja fyrst hann Steina bróður standa gullin þessi orð. Enn má sjá að fsland elur ekki tóma miðlungsmenn, hræðast ei né hlaupa í felur, hlutgengir þeir reynast enn. Undan ægis brettum brúnum bilar hvorki þrek né ráð, hlutverk sjómanns hetjurúnum hefir þeirra saga skráð. Sjáum við af fornum fræðum frjáls var jafnan sjómannslund, enn mun lifa í þeim glæðum, ekki dvína nokkra stund. Hvar sem fslands farið flýtur fjallkonunnar merki skreytt, hvar sem byrðings brotna spýtur, bræður, verið allir eitt. Guðm. Magnússon. Norðfirði.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.